Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Page 34
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JULt 1984.
svokölluðu hástarti en þá eru
módelin dregin upp með spili á sama
hátt og venjulegar svifflugur. I há-
starti er keppt í tveim greinum þ.e.
tímaflugi og hraðaflugi.
I tímafluginu eiga keppendur að
halda módelunum á lofti í nákvæm-
lega 6 mínútur og ljúka fluginu með
marklendingu og eru gefin stig eftir
því hve langt frá þessum takmörkum
menn eru. Besti tíminn í tímafluginu
var nákvæmlega 6 mínútur, en þeim
árangri náði Einar Páll Einarsson.
I hraðaflugmu eiga keppendur að
fljúga módelinu 4X150 metra á sem
skemmstum tíma. Mestum hraða
náði Guðjón Olafsson en hann flaug
módeli sínu þessa vegalengd á 26
sekúndum, en það samsvarar 83 km
hraöa á klukkustund. Hraðafluginu
lýkur síðan eins og tímaflugi meö
marklendingu. 8 keppendur hófu há-
startið og 5 luku keppninni. Sigur-
vegari varð Einar Páll Einarsson
með 5928 stig, annar Erlingur
Erlingsson meö 4771 stig og þriðji
Jón Pétursson meö 4758 stig.
Mótsstjóri var Stefán Sæmundsson.
Flugmódelfélagið Þytur þakkar
góðar móttökur heimilisfólksins að
Velli, en þar gistu þátttakendur
meðan á mótinu stóö.
Dagana 27.-29. júli verður
Norðurlandamót í módelsvifflugi
haldið hér á landi við Hvolsvöll og
Gunnarsholt. Það er í annað skiptið
sem slíkt mót er haldiö hér en það
var fyrst 1979, og er það jafnframt
eina fjölþjóða flugmót sem haldiö
hefur verið hérlendis. Það er einnig
flugmódelfélagið Þytur sem stendur
fyrir því móti.
Guðjón
Ólafsson er
hér nýbúinn
að sleppa
sinni vél.
Módelin ná
allt að 200
metra hæð
áður en lin-
unni er
sleppt.
Vænghafið á
módelinu er
2,5 metrar og
módelið er
um 1,5 kg að
þyngd.
Samskonar
stýri eru á
svona mód-
eli og svif-
flugum af
fullri stærð.
Mynd ÓG.
Fjarstýrð módel af ýmsum
gerðum hafa átt vaxandi fylgi að
fagna hérlendis eins og annars
staðar á undanfömum árum. Fjar-
stýrð módel eru til af nánast öllum
farartækjum sem fundin hafa verið
upp, allt frá fallhlifum upp í farþega-
þotur, mótorhjólum til skriðdreka og
seglbátum í farþegaskip. Til dæmis
notaöi Bandaríska geimferðastofn-
unin fjarstýrt módel af geimskutl-
unni til þess að prófa hvort hún gæti
flogiö og hér á Islandi er nú verið að
nota fjarstýrðar þyrlur við tökur á
nýjustu myndinni um James Bond.
En langalgengast er að fjarstýrð
módel séu notuö og smíðuð af fólki á
öllum aldri því til ánægju og dægra-
styttingar.
Nýlega fór fram á vegum flug-
módelfélagsins Þyts 5. Islandsmótið
í módelsvifflugi skammt frá Hvols-
velli í Rangárvallasýslu. Keppt var í
tveimur greinum, á laugardeginum í
hangflugi og á sunnudeginum í
hástarti.
I hangflugi (hlíðaruppstreymi) er
keppt utan í fjallshlíð, áveöurs,
þannig að vindurinn ber módelin
uppi. Fer keppnin þannig fram aö
keppendur eiga aö fljúga 1500 m
fram og til baka meöfram hlíðinni án
þess að missa hæð á sem skemmst-
um tíma. 9 keppendur hófu keppnina
og 8 luku henni. Hlutskarpastur varð
Einar Páll Einarsson með 3.953,2
stig af 5000 mögulegum. Annar varð
Theódór Theódórsson með 3861,8 stig
og þriðji Heiðar Hinriksson með
3819,6 stig, en hann er aöeins 15 ára
gamall.
Á sunnudeginum var síðan keppt í
' * « §m b >.
Hér er sigurvegarinn í módelsvifflugi, Einar Páll Einarsson, um það bil
er fyrir framan hann og hann stjórnar því með fætinum. Fjarstýringunni
að draga módel sitt á loft i tímafluginu. Spilið sem dregur vélina á loft
heldur hann á í hægri hendi. Mynd ÓG.
íslandsmót í
Þeir sem luku keppni i módelsviffluginu um helgina, talið frá vinstri: Jón Pétursson, Einar Páll Einarsson, Guðjón Ölafsson, Erlingur Erlingsson og Heiðar Hinriksson.
Mynd ÓG.