Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Síða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
3
Bardastaðafólki bannað
ævilangt að eiga búfé
„Ákæröu eru hvort um sig svift
ævilangt frá birtingu dóms rétti til aö
eiga, nota, hafa í umráðum sínum,
slátra eða sýsla um búfé nokkurrar
tegundar.”
Svo segir í dómi, sem nýlega var
kveðinn upp hjá sýslumannsemb-
ættinu í Snæfells- og Hnappadals-
sýslu, yfir bónda og vinnumanni á
bænum Baröastöðum í Staöarsveit
fyrir brot á dýraverndunarlögum.
Hin ákærðu, Guðrún Jóna
Halldórsdóttir og Ellert Guömunds-
son, voru einnig dæmd til að greiða
hvort tíu þúsund krónur í sekt eða
sæta átta daga varðhaldi. Þessum
dómi hafa þau áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Barðastaðir komust á forsíður
blaða í apríl síðastliðnum er fulltrúi
sýslumanns fór ásamt liði lögreglu-
manna að bænum til að farga bú-
fénaði sem samanstóð aðallega af
fuglum. Þessi harkalega aðgerð var
framkvæmd eftir að fyrirmælum
héraðsdýralæknis, um úrbætur
varöandi fóðrun og aöbúnað fugl-
anna, hafði ekki veriö sinnt.
Heilbrigðisnefnd héraðsins haföi
einnig afskipti af Barðastöðum. Hún
krafðist þess á sínum tíma að íbúðar-
húsnæðið yrði þegar í stað rýmt.
Skírskotað var til velferðar tveggja
ára gamals barns á bænum.
Barðastaðir á Snæfellsnesi. Heilbrigðisnefnd hóraðsins vildi láta
brenna íbúðarhúsið.
Nefndin taldi að mjög erfitt yrði
að gera húsnæðið íbúðarhæft á ný
enda gólf og veggir innbrennd af
andaskít. Gaf hún eigendum þó frest
til aprílloka í vor til að gera við-
eigandi hreingerningar- og sótt-
hreinsiaðgerðir.
„En að þeim tíma liðnum, ef
ástand verður óbreytt, telur nefndin
ekki annaö fært en að láta brenna
húsnæðiö og jafna það síðan við
jörðu,” sagði í bréfi heilbrigðis-
nefndarinnar til hlutaðeigandi aðila.
Barðastaðir hafa ekki enn verið
brenndir og ólíklegt að það verði
gert. Þar hefur enda ekki verið búið
frá því í vor. -KMU.
Arnarstofninn í hættu
vegna eiturútburðar
æðarræktarmanna:
Dreifa eitri
sem gæti
drepið alla
íslendinga
- nú eru 115-120
fuglar í arnarstofninum
Þessa dagana eru um 25 arnar-
ungar að verða fleygir á landinu. 37
pör eru á landinu sem hafa helgað sér
svæði (óðal). Um 25 tmgar komust upp
úr um 20 hreiðrum. Með vissu er vitað
um varp 8 annarra para sem misfórust
af einhverjum orsökum.
Einstaka ernir hafa sést á flugi það
sem af er þessu ári frá Gullbringusýslu
til Húnavatnssýslu, að Strandasýslu
undanskilinni. Af þessum 25 ungum
komust 8 ungar upp á svæði sem örn
verpti ekki á fyrir 10 árum. Tvö arnar-
hræ fundust sjórekin.
„Fordómar gegn örnum hafa
minnkað mikið og eins kvartanir um
tjón vegna ama sem í raun er mjög
lítið, einkum þar sem um varp er að
ræða og nytjafugl venst honum; einnig
verja ernir svæði sín fyrir öðmm
fuglum,” segir í frétt frá
Fuglaverndarfélagi íslands.
„Arnarstofninn á tslandi er líklega
um 115-120 fuglar sem er mjög lítil
stofnstærð.
Mesta hætta sem nú steðjar að
erninum er eiturútburður æðarræktar-
manna. Undanfarið hafa 217 aðilar
keypt í handkaupi hjá Lyfjaverslun
rikisins 300 kg af fenemali sem nægja
myndi til þess að drepa alla Islend-
inga. Þetta er gert með leyfi mennta-
máiaráðherra og samþykkt af for-
manni eiturefnanef ndar.
Aö dómi okkar er útrýming svart-
baks með eitri þýðingarlaus, stofninn
er það stór að þeir sem drepast af eitri
myndu drepast hvort sem er og máfar
forðast ekki hræ af sinni tegund.
Eina leiðin til þess að fækka svart-
bak er að henda ekki slori i sjó og moka
yfir sorphauga alls staðar.”
Alþjóðareglur um áhafn-
irfiskiskipa?
Þrjár alþjóðastofnanir, Alþjóða-
siglingamálastofnunin, IMO, Alþjóða-
vinnumálastofnunin, ILO, og Fisk-
veiða- og landbúnaðarstofnunin, FAO,
hafa ákveðið að setja á stofn sam-
starfsnefnd þessara þriggja alþjóða-
stofnana til að semja alþjóðleg ákvæði
til leiðbeiningar um menntun, þjálfun
og vagtstöðu áhafna fiskiskipa.
I þessari nefnd eiga sæti 2 fulltrúar
frá IMO, 2 frá FAO og 4 frá ILO, þar af
tveir frá útgerðarmönnum og tveir frá
sjómönnum. Annar tveggja fulltrú-
anna frá IMO var kosinn Hjálmar R.
Bárðarson siglingamálastjóri en hinn
fulltrúi IMO er frá Japan.
20%
Við erum löngu orðnir landsþekktir
fyrir okkar frábæru greiðslukjör á
notuðum bílum. Hér fást bílar
án útborgunar og
kaupveröið lánað til 6—12
mánaða. Nú bætum við um
betur og bjóðum
ST AÐGREIÐSLUAFSLATT
til þess að þeir sem hafa handbæra peninga geti gert
hér hagkvæm viðskipti eins og aðrir.
SKIPTIVERSLUN
Hvergi annars staðar býðst þér að koma á gamla bílnum
og skipta honum uppí annan nýrri. Svo lánum við þér
jafnvel alla milligjöfina.
örugg viðskipti við
« leiðandi fvrirtæki í verslun með notaða bíla.
>
J3
H
2
ECILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiöjuvegur 4 - Símar. 79944 og 79775.