Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Blaðsíða 14
14
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984,
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Robert Wagner ásamt Stephanie Powers i sjónvarpsþáttunum Hart á móti hörðu.
Enda þótt nú sé hætt viö framleiðslu
á sjónvarpsmyndaflokknum Hart á
mótl hörðu þá nýtur þessi sjónvarps-
þáttur óhemju vinsælda í Evrópu. Ro-
bert Wagner, sem lék annað aðalhlut-
verkið í myndaflokknum, vinnur nú að
stórkvikmynd sem byggð er á efni
sjónvarpsþáttanna. Wagner sem einn-
ig er framleiðandi kvikmyndarinnar
hefur fengið til liðs viö sig heimsfræg-
ar stjömur eins og Gina Lollobrigida,
Simone Signoret, Peter O’Toole og Bri-
gitte Bardot, en það veröur Stephanie
Powers sem leikur hitt aöalhlutverkið
á móti Wagner, eins og í sjónvarps-
þáttunum. Myndin verður frumsýnd í
Evrópu og veröur síðan sýnd í Banda-
ríkjunum.
Bandarisku stórstirnin tvö, Michael
Jackson og Diana Ross, hafa nú
ákveðið að leika saman i kvikmynd
sem gerð verður fijótiega. Þau hafa
áður leikið saman i kvikmynd
,, Galdrakarlinn i Oz " og ætia sumsó
að taka þann þráð upp að nýju.
Annars eru þau Michael og Diana
periuvinir og hafa stutt hvort annað
i gegnum þykkt og þunnt. Þau tai-
ast við í sima klukkustundum sam-
an um það sem þeim býr í brjósti,
Diana hefur verið nokkurs konar
verndari Michaelsá tónlistarsviðinu
frá þvi að hann varþriggja ára gam-
aii. í væntaniegri kvikmynd leika
þau Diana Ross og Michaei
Jackson systkin og það sýnist ekki
óiikiegt því að Michaei Jackson er
ekkert ósvipaður Diönu eftir sið-
ustu andlitsaðgerðir.
HVER SKAUT
BOBBY
ÍDALLAS?
LEIKBRUÐUR
AÐ LEIK VIÐ HÖLLINA
Ferðamenn i London leggja gjarnan leið sina að konungshöllinni, Bucking-
ham Paiace, og eiga jafnan leynda von íbrjósti að sjá einhvern úr konungs-
fjölskyldunni. Sjaldan verður þeim að ósk sinni og hugðust því leikbrúðu-
ieikarar bæta ferðamönnum upp vonbrigðin. Þeir brugðu sér íþessi ágætu
gervi og löbbuðu um haiiarsvæðið og heiisuðu ferðamönnunum með virkt-
um. Fremst á myndinni eru þau Diana og Karl með Vilhjálm litla á milli sín,
við hliðina á þeim er Margrót drottningarsystir. Bak við þau er Andrew
prins, Elisabet drottning og FiUppus drottningarmaður.
Þáttaröðin af Dallas, sem sýnd
var á síðastliðnum vetri í Bandaríkj-
unum og víðar, endaði þannig að ein-
hver skaut Bobby Ewing. Eftirvænt-
ingarfullir áhorfendur vita ekki enn-
þá hvort Bobby lifir skotárásina af,
hvort hann var skotinn í misgripum
fyrir J.R. eða hver það var sem vildi
ná lífi annars hvors þeirra. Nú f er aö'
líða að því aö ný þáttaröð hefjist og
hulunni verði svipt af þessum leynd-
ardómum.
Breskir sjónvarpsáhorfendur,
sem eru þekktir fyrir að veöja um
hvaðeina, hafa hleypt lífi í veðmála-
starfsemina þar í landi og veðja nú
grimmt um það hver tilræðismaður-
inn sé. Flestir veðja á þaö aö stúlkan
Katherine, sem hefur verið vonleys-
islega ástfangin í Bobby, hafi framið
verknaðinn en næstflestir veðja á að
óvinur J.R., Edgar aö nafni, hafi
skotið. Aðrar persónur Dallas sem
þykja koma til greina eru Cliff
Barnes, af því að J.R. kom honum á
hausinn, Sue Ellen sem er mikið í
nöp við eiginmanninn J.R., fyrrver-
andi, og eiginkona Bobbys, hún Pam-
ela, þykir einnig koma til greina eins
og Lucy og J.R. sjálfur en margir
veðja einnig um þaö að Bobby hafi
skotiðsigsjálfur.
Hámarksveðupphæð er um 2100
krónur en meðalframlög eru um 2—
300 krónur. „Eg held aö það sé eng-
inn að þessu til þess að verða ríkur,”
sagði eínn veðmangarinn. „Þetta er
bara til þess aö auka spennuna og
gamanið um leið.”
JACKSON OG ROSS
SAMAN í KVIKMYND