Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Qupperneq 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGUST1984.
í dag mælir Dagfari _____________í dag mælir Dagfari___________I dag mælir Dagfari
Boxkeppni í karphúsinu
Dagfari fór stundum í Hálogaland í
gamla daga. Þar voru háðar eftir-
minnilegar hnefaleikakeppnir. Há-
punkti náði boxið þegar islenskir
hnefaleikakappar börðust gegn
Ameríkönum af Vellinum. Þá var
troðfullt hús og mlkil stemmning,
ekki síst þegar landinn rotaði and-
stæðingana, sló þá kalda, þannig að
enginn vissi hvort þeir voru lífs eða
liðnir. Þá æptu menn sig hása af
fögnuöi.
Hnefaleikakeppni fer þannig fram
að áður en s jálf keppnin hefst gengur <
dómarinn inn í miðjan hringinn og
kynnir keppendur. Þegar nöfn þelrra
eru lesin upp ganga kapparnir fram
á gólfið, lyfta höndum til himins, og
taka á móti fagnaðarlátum. Síðan
eru þeir kynntir hver fyrlr öðrum og
núa saman boxhönskunum ábúðar-
miklir og einbeittir á svipinn. Þetta
voru rafmögnuð augnablik og ólýs-
anlegur hrollstraumur fór um hverja
taug hjá áhorfendum sem þyrsti í
blóð og góðan bardaga.
Þessar boxkeppnir í Hálogalandi
rifjast óneitanlega upp þegar maður
virðir fyrir sér myndlr af upphafi
þeirra samningaviðræðna sem nú
eru að hefjast milli Verkamanna-
sambandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins.
Þelr standa álengdar Guðmundur
jaki og fulltrúar vinnuveitenda og
takast í hendur eins og boxarar sem
eru þess albúnir að lumbra hver á
öðrum. Dramatíkln leynir sér ekkl.
Þeir brosa góðlátlega, sigurvissir og
elnbeittlr, núa saman boxhönskun-
um og velfa til áhangenda sinna.
Sástu hvernig ég tók hann? sagðl
Jón vinnumaður. Sjáið þið hvernig
ég tek hann segja þeir Guðmundur
og Magnús Gunnarsson og tvístíga í
hringnum af einskærri óþollnmæðl.
Taugarnar eru þandar tll hins
ýtrasta.
Sennilega verður að teija að þessi
keppni vinnuveltenda og verka-
manna sé í þungavigt. Að minnsta
kosti eru þeir keppendur sem teflt er
fram allir í pólitiskrl þungavigt.
Guðmundur jaki hefur vöxtinn með
sér. Þar að auki reiðir hann hátt til
höggs, hvorki meira né mlnna en 40
tll 50% kaupkröfur sem eru taldar
hafa 100% verðbólgu í för með sér.
Guðmundur ætlar sér að sigra með
rothöggi. Slá andstæðinginn kaldan
svo kommarnir æpi sig hása af fögn-
uði. Það dugar ekkert minna þegar
andstæðingurlnn rifur kjaft og derrir
sig.
En vinnuveitendur tefla einnig
fram harðsnúnu liði og þetta verður
tvísýn keppni.
Fyrsta lotan er að hefjast. Enginn
býst við úrslitum strax. Keppendur
munu þreifa fyrir sér, gefa lausa
kinnhesta, pústra og högg hér og þar
eftir því sem andstæðingurinn gefur
færi á sér.
Vlð heyrum til dæmis að vinnuveit-
endur byrji á því að vísa kröfum
Verkamannasambandsins algjör-
lega á bug. VUji halda fast við sam-
komulagið frá því í fyrravetur. Guð-
mundur joð segir kröfurnar smáræði
og fylgir þeim fast eftlr. Þannig
munu þeir standa hvor frammi fyrir
öðrum og yggla sig eins og mannýg
naut og hnykla vöðva eins og góðum
boxurum sæmir.
Vinnuveltendur ætla sér að þreyta
kappann, enda eru feltir menn í
þungavigt fljótir að mæðast. Vinnu-
veitendur ætla sér að sigra á
„teknisku knock outi”. Hvorugur
sækist eftlr fegurðarverðlaunum
þegar dansinn er stlginn á hnefa-
leikapalli kjarabaráttunnar.
Þess er og að minnast úr Háloga-
iandi að áður en yfir lauk tóku kepp-
endur til þess ráðs að hvíla slg í
faðmlögum hver við annan. Það voru
leiðinleg endaiok. Vonandi fer ekki
eins fyrir boxurum í karphúsinu.
Dagfari