Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGUST1984.
5
Leifur Benediktsson heldur á tveimur fallegum löxum úr Brynjudalsá nýlega, 8
og 4 punda f iskum. Veiðst hafa um 65 laxar í ánni.
DV-mynd G. Bender.
Stóra-Laxá í Hreppum:
Töluvert af væn
um laxi í ánni
— veiðst hafa 530 laxar
„Það hefur verið mikil bleikjuveiði á
fremsta svæðinu í Eyjafjarðará, en
veitt er á f jórum svæðum, mest eru
þetta 2 til 5 punda bleikjur,” sagði
Jóhannes Kristjánsson á Akureyri í
gær, er við spurðum frétta úr sólinni
nyrðra. „8 punda bleikja er sú stærsta
sem veiðst hefur ennþá af silungi. En
strákurinn minn missti væna nýlega,
11—12 punda og tók hún litla flugu, en
mikið er veitt á þær í ánni. Líklega
hafa veiðst um 600 bleikjur og 9 laxar,
13 punda sá stærsti. Aðalbleikjutíminn
er að byrja á neðstu svæðunum í bleikj-
unni. Lax hefur veiðst á öllum
svæðum.” En hvað er að frétta úr
Fnjóská? „Ætli þaö séu ekki komnir
80 laxar og um 200 bleikjur. Þaö hefur
ekkert sést af smálaxi ennþá, besti
staðurinn í ánni er Kvíslardjúp og þar
er alltaf lax og um alla á eitthvað, en
ekki mikiö,” sagði Jóhannes í lokin. Og
Jóhannes var að fara í veiði í Laxá í
Aðaldal og viö skulum bara vona aö
hann fái lax. Annars væri bleik
brugðið.
Stóra-Laxá í Hreppum hefur komiö
vel út i sumar og er það fyrst og fremst
aö þakka því að laxinn kom snemma.
Hafði vit á að koma áður en netin voru
lögð og slapp við að lenda í þeim. En
þar sem netaveiði er ennþá stunduð í
ölfusá, kemur það í veg fyrir aö Stóra-
Laxá sé í hópi fengsælustu veiðiáa
landsins. En kannski kemur sá dagur
að netin verða tekin upp, hver veit?
Viö fréttum af veiðimönnum, sem
veiddu sunnudag og mánudag, á svæði
1 og 2. Fengu þeir þrjá væna laxa, 16,
18 og 14,5 punda. Sáu þeir nokkra væna
og fallega laxa, en vatnið fer
VEIÐIVON
minnkandi í ánni og ættu næstu
veiðimenn að fá hann. Misstu veiði-
mennirnir stóran lax í Kálfhagahyl og
var hann nokkru stærri en þessi 24,5
punda fiskur, sem veiddist á fluguna
Þingeying. Svæði 1 og 2 hafa gefið 278
laxa, 3. svæðiö 79 laxa og 4. svæðið 173
laxa, sem þýðir að Stóra-Laxá hefur
gefið 530 laxa. Það stefnir því í topp-
sumar í ánni.
Veiðin í Hvolsá og Staöarhólsá hefur
verið jöfn og góð síðustu daga og eru
komnir á land 126 laxar og 250 bleikjur.
Stærsti laxinn var 16 pund, en
stærsta bleikjan 3 pund. Mest af laxin-
um hefur veiðst í Staðarhólsánni. Um
220 laxar hafa gengið í árnar og má því
vel veiða næstu daga, en það er víst
hægt að fá einhverja daga í september
hjá Straumum og hver veit nema
hann taki. Veitt er á tvær stangir í
hvorri á og þetta er þrigg ja daga holl.
G. Bender.
GunnarBender
Silungsveiði getur verið skemmtileg
líka og menu fengið væna fiska. Veiði-
maður reynir að ginna fisk með flugu á
vatnasvæði Lýsu nýlega. Jú, fékk
nokkra. DV-mynd G. Bender.
Seinagangur í dómskerf inu að leggja f jölskyldu í rúst:
Skíthræddur
víö póstkassa
— segir Ómar Kristvinsson sem varð fyrir barðinu
á óprúttnum fasteignasala
Ómar Kristvinsson, fómarlamb í svikamyllu fasteignasala: — Ég hef heyrt
um félagsmáiapakka en ég vissi ekki að dómskerfið væri einnig komið með
sína pakka. DV-mynd S.
„Ég er orðinn skíthræddur við
póstkassann. Eg hugsa vart um
annað allan daginn og þegar ég svo
kem heim fæ ég brjóstsviða af því
einu að sjá bréf í kassanum — sér-
staklega ábyrgðarbréf. Enn einn
rukkarinn kominn af stað og á eftir
mér,” segir Omar Kristvinsson,
kvæntur og þriggja barna faöir,
maður sem lenti í klónum á óprúttn-
um fasteignasala fyrir rúmum tveim
árum með þeim afleiðingum að nú er
líf hans líkast rúst. Húsiö sem keypt
var og átti að verða samastaður f jöl-
skyldunnar um ókomna framtíð er
löngu glatað og allar tekjur þeirra
hjóna faraíþaöeitt aðgreiðaauka-
kostnaö af alls konar lánum sem
þau uröu að taka til aö brúa þaö bil
sem myndaðist þegar fasteigna-
salinn flaug með peningana þeirra.
„Ég veit svei mér ekki til hverra
ráða grípa skal,” sagði Ömar í sam-
tali viö DV. „Eg hélt að dómskerfið
kæmi manni til hjálpar í tilvikum
sem þessum en sú virðist ekki vera
raunin. I október 1982 fór máliö til
Rannsóknarlögreglu ríkisins, þaðan
til saksóknara, þá aftur til RLR, svo
aftur til saksóknara og nú liggur það
i Sakadómi og hefur gert í 9 mánuði.
Hversu lengi til viðbótar ég á að bíða
veit ég ekki en ég sekk dýpra og
dýpra í skuldafenið með hverjum
deginum sem líður, og veit reyndar
ekki hversu miklu lengur ég get
haldiðþetta út.”
I stuttu máli er sorgarsaga Ömars
og fjölskyldu þessi: Þau hjón bjuggu
á Akureyri ásamt börnum sínum
þegar þau ákveöa að flytjast suður.
Eiginkonan er gerð út af örkinni og
ratar inn á fasteignasöluna Húsa-
miðlunina sem Pétur nokkur EinaFS-
son rak í Veltusundi 3 í Reykjavík.
Er gengið frá kaupum á íbúð í Hafn-
arfirði og í kaupsamning er bætt á-
kvæði um að Omar og frú skrifi undir
víxla sem auðvelda eiga seljandan-
um að festa kaup á einingahúsi sem
fýrrnefndur Pétur var að selja
honum. Gallinn var bara sá að víxl-
arnir fóru aldrei lengra en í vasa
Péturs sem eftir öllum sólar-
merkjum að dæma notaði féð til
eigin þarfa. Víxlamir voru þrír og
hljóðuöu upp á 100 þúsund krónur
hver á þáverandi gengi. Þessi mistök
akureyrsku fjölskyldunnar hafa nú
orðið til þess að húsið er tapaö og lífið
lítið annað en streð og endalaus
hlaup á milli lánastofnana og lög-
fræðinga til að bjarga því sem b jarg-
að verður og þá alltaf fyrir hom.
„Þetta tekur óneitanlega á mann og
þá ekki sist tilfinningalega. Þaö er
ekki skemmtilegt að vera ekki
maður til að gefa börnunum sínum
vasapeninga eins og gerist og gengur
og svo er maður geðillur og vitlaus í
tíma og ótíma,” segir Omar, sem á
nú þá einu von að dómskerfið fari að
taka við sér og málið verði útkljáð í
eitt skipti f yrir öll.
En hann á ekki því láni að fagna. I
Sakadómi hefur mál hans legið
meðal annarra í heila 9 mánuði án
þess að nokkur hreyfing sé á þvi. Eða
með oröum Ármanns Kristinssonar
sakadómara sem hefur máliö á sinni
könnu:
„Við erum enn að rannsaka, það
hafa bæst ný mál á Pétur Einarsson
og hugmyndin er sú aö sameina þau
máli Ömars og taka allt fyrir í einum
pakka.” Sagöist Ármann ennfremur
ekki geta tjáð sig um hvenær niöur-
staða fengist í málinu.
Omar á vart orö til að lýsa til-
finningum sínum þegar honum eru
færð þessi tíðindi. ,,Ég hef heyrt um
félagsmálapakka og flugpakka
Flugleiða en ég vissi ekki aö dóms-
kerfið væri einnig komið með sína
pakka. A ég að líða fyrir það að ein-
hverjir aörir aðilar eigi kröfur á
hendur Pétri Einarssyni?” spyr
Omar Kristvinsson og lái honum það
hver sem vill. Aftur á móti er það af
Pétri Einarssyni að frétta að hann er
sagður heildsali í Reykjavík. Ná-
kvæmlega hvar vita f áir.
-EIR.
r1
WUBÖÐ — NÖTÁÐÍR BÍLAR
Teg. Árg. Km. Verð Útb. Eftirst. til
Skoda '77 75.000 12.000,- 0 4 mán.
Skoda120 L '81 6 mán. áb. 75.000 85.000,- 10.000,- 8 mán.
Plymouth Volaré coupé '80 6 mán. áb. 54.000 280.000,- 100.000,- 10 mán.
Chrysler LeBaron T/C '79 6 mán. áb. 50.000 370.000,- 100.000,- 12 mán.
Mustang Mach 1 '69 uppt. vél 115.000,- 5.000,- 10 mán.
Lada1500 '77 104.000 40.000,- 5.000,- 6 mán.
Lada 1500 station '78 85.000 55.000,- 5.000,- 6 mán.
Fiat 131 super Mirafiori '78 67.000 70.000,- 0 8 mán.
Fiat 127 '78 70.000 75.000,- 5.000,- 8 mán.
Simca 1307 GLS '78 55.000 95.000,- 20.000,- 10 mán.
Austin Mini '76 75.000 45.000,- 0 6 mán.
Willys Golden Eagie '76 100.000 330.000,- 75.000,- 12 mán.
Eða þá að við tökum gamla bílinn
upp í og semjum um milligjöfina jöfur hf.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
1