Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Qupperneq 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
Nú stendur yfir útsala á blómkáli og því kjöriö tækifæri aö kaupa birgðir og
frysta.
Notiö meira af blómkáli nú þegar þaö er ódýrt. Nú eru verslanirnar fullar af norsku, ódýru blómkáli, reyndu því að
notfæra þér tækifærið á meöan það býðst. Blómkál getur þú notað meö næstum því öllum mat og einnig fryst þaö.
Mundu að smásjóöa þaö fyrst í 3-4 mínútur. Kauptu nokkur höfuð í dag. Við rákumst á þessa auglýsingu í norsku
blaöi. Nú er fyrirsjáanlegt aö mikil framleiðsla verður á grænmeti í ár hér á landi. Spurningin er því hvort nægilega
mikið sé gert aö því að auglýsa og kynna fyrir neytendum hvað hægt er að gera við grænmetið.
Stefnir í metuppskeru
á grænmeti þetta áriö
Bruk mer bíontkálitá
somctenermttjg!
Nd er butikkene fulle av bitíig norsk bhhnkdl,
sdbenytt sjansen mens du harden. BlomkM
kan du bruke til nesten all mat, dessuten er .
den fin til frysing. Husk forveUing 3-4 min.
Kjop noen hoder i dagí
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
13VWUV
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
Einkaviðtal Vikunnar við Pierre
Cardin
- eða var það kannski einkaviðtal Pierre Cardin við blaðamann
Vikunnar? Það er kannski vandséð hvort er hvort, en svo mikið
er víst að þessi frægasti af öllum frægum tískuhönnuðum var
fullur af áhuga á íslandi og lét hann ótæpilega í Ijós í þessu sér-
stæða og hressilega Vikuviðtali.
Svæðanudd gegn höfuðverk
- og nú er kennt hvernig nudda skal fingurna til að losna við fjandans hausverkinn!
Dreymdi
fyrir
bílnum
- Það var létt yfir hjónunum
sem fengu bílinn í afmælisget-
raun Vikunnar, eins og sjá má
í Vikunni núna.
Ljós í Viðeyjarstofu
Jónas Árnason ríthöfundur fer á
gömlu, giðu kostunum í þessum
frásöguþætti úr daglega lífinu.
Hann er úr bók sem Jónas hefur
á prjónunum nóna og kemur út á
næstunni - ásamt endurútgáfu á
gömlu, góðu bókinni með Jóni
Kadett, sém Jónas er með hór á
myndinni.
rju svaraði
steinninn?
Umsögn dómnefndar: Úvenjuleg frásögn um óvenjulegar
kringumstæður, og á sem slik erindi til almennings. -
Þetta er frásögnin sem fékk önnur verðlaun i samkeppn-
inniVIKAN OG TILVERAN.
Bflasýning í Los Angeles
Sveinbjörn Guðjohnsen sýnir okkur myndir af nokkrum völd
um „hot rods" sem voru á sýningu þar fyrir vestan fyrr í
sumar.
OG ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ
AUGLÝSINGADEILDINNI:
Nú er það auglýsingaverðið sem gildir!
Litaauglýsing í Vikunni margborgar sig!
Beinn sími auglýsingadeildar: 68 53 20.
Hvít peysa
úr bómull og hör
í handavinnuþættinum.
„Ef heldur fram sem horfir verður
metuppskera á öllum garðávöxtum í
ár,” sagöi Þorvaldur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna, í viötali við DV.
Hann sagði aö nú stæði yfir útsala á
blómkáli og myndi hún standa yfir í
nokkra daga. Heildsöluverð á blóm-
kálinu væri nú 30 krónur. Þaö var áður
45 krónur en fyrst þegar það kom á
markað 110 krónur.
En er gert nógu mikið að því að
kynna fyrir neytendum möguleikana á
að geyma grænmeti og að borða hrein-
lega meira af því?
Þorvaldur sagði að það væri mikið
gert að því og m.a. væri skrifað mikið
um grænmeti í blöð sem heföi að sjálf-
sögðu þau áhrif að salan ykist.
Það sem gerði hins vegar útslagið í
sölunni á grænmeti væri verðið. Sölu-
félag garðyrkjumanna auglýsti mikið í
útvarpi fyrir nokkru þegar tómatar
voru seldir á lágmarksverði. Að þessu
sinni veröur einnig auglýst í útvarpi út-
salan á grænmetinu.
En það et ljóst aö það stefnir í met-
uppskeru á grænmeti og kartöflum og
má búast við því aö verð lækki mjög
vegna offramboðs. Það er einnig vert
að kynna sér alla möguleika á því að
sjóða og frysta grænmeti.
Þá er einnig vert að benda á að
mikiö framboð er nú á hvítkáli og er
heildsöluverðið á því 30 krónur. Hins
vegar er erfiðara að geyma hvítkálið
en blómkálið.
APH
Fjördagurskáta:
Mikið um að vera
— um næstu helgi
Þaö verður mikið að gera nk.
sunnudag í f jölmörgum kaupstööum
á landinu. Það eru skátar sem ætla
að standa fyrir svokölluöum fjör-
degi. Eins og nafnið bendir til á að
vera mikið fjör á hverjum stað. Á
þeim stööum þar sem fjördagurinn
verður haldinn verður margt í boði.
Það sem þeim er sameiginlegt er það
að keppt verður í 10 íþróttagreinum
og verður keppt í tveimur aldurs-
flokkum. Það verður sippaö, farið i
snú-snú, hlaupið, labbað á grind-
verki og haldið kassabílarall svo eitt-
hvaðsénefnt.
Það sem vakir fyrir skátunum er
að gera fjördaginn að árlegum
skemmtidegi þar sem ungt fólk
kemur saman. Og á næsta ári, sem
er ár æskunnar, er stefnt að því að
fjördagur verði haldinn í nær
hverjum kaupstað á landinu.
Skátar hafa undanfarin ár staðið
fyrir skemmtun í Hljómskála-
garðinum í Reykjavík og verða fjör-
dagarnir með svipuöu móti. I Hljóm-
skálagaröinum verður boðið upp á
fjölmörg skemmtiatriði auk íþrótta.
Þar verða 14 dagskráratriöi, júdó,
glíma, karate, kraftlyftingar og
margt fleira. Þá gefst tækifæri til að
reyna krafta sína undir leiðsögn
lyftingamanna og hægt verður að
tala við aðra krakka, sem mættir eru
á f jördaginn úti á landi, gegnum tal-
stöö.
Þá koma 8 hljómsveitir fram og
spila. Skemmtunin byrjar kl. 14.30 og
stendur fram til kl. 18 og er þetta
kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að
njóta útiverunnar.
VAR SEM NÝTT
EFTIR FJÖGUR ÁR
Maður nokkur kom í verslunina
Kjötmiöstöðina til að láta saga niður
fyrir sig læri. Hann ætlaði að steikja
lærissneiðar til aö hafa með í ferðalag-
ið. Hrafn Backmann í Kjötmiðstöðinni
tók viö lærinu og ætlaði að fara að saga
en varð þá litið á verðmiða sem hékk á
því. Við nánari athugun kom í ljós að
lærið var frá árinu 1980 og kostaði þá
2.740 gamlar krónur sem þýðir aö það
kostaði 27 nýjar. Nú kostar læri sem
kunnugt er 206 krónur kílóið svo að
greinilegt er að eitthvaö hefur þessi
ljúffengi gripur hækkað á þessum
tíma.
En það er oft erfitt að gera sér grein
fyrir svona hækkunum sem átt hafa
sér stað milli ára. Og hvað sem því
líður var merkilegt við læri þetta að
það var orðiö 4 ára og ekki byrjað að
láta á sjá. Það var næstum því sem
nýtt og það fylgdi sögunni að maðurinn
sem kom með lærið átti afar góða
frystikistu.