Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Síða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
9
Hór má sjá umrædda sendingu sem er verðlaun frá bókaklúbbi eriendis fyrir að hafa aflað nýrra áskrif-
enda. D V-mynd Ingibjörg Magnúsd.
Neytendur Neytendur Neytendur
TolEar á gjöfum erlendis frá:
„Gjafir” frá
bókaklúbbum
eru tollskyldar
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur frétta-
ritara á Húsavík.
Það getur verið gaman að fá
gjafir, verölaun og viðurkenningar. En
gamanið getur kárnað ef þessar gjafir
berast frá útlöndum. Tollyfirvöld hér á
landi meta slíkar gjafir til verðs eins
og þær myndu kosta út úr búð hér. Og
að auki bætast tollar ofan á það verð.
Á þessu fékk ung kona á Húsavík,
Oddfríður Reynisdóttir, að kenna ný-
lega. Þannig var að hún hafði safnað
tveimur áskrifendiun fyrir Hjemmet
kogeklubb í Noregi. En eins og flestir
vita er algengt að bókaklúbbur verð-
launi þá sem afla nýrra áskrifenda.
Oddfríði var sendur myndalisti og
boðið að velja sér gjöf sem verðlaun
fyrir dugnaðinn.
Hún valdi fjórar stærðir af glösum
og sex glös af hverri stærð. Þá valdi
hún einnig salatsett. Sendingin var því
nokkuð fyrirferðarmikil en ekki að
sama skapi verðmæt.
Tollyfirvöld neituðu að afgreiða
sendinguna sem gjöf og mátti Odd-
fríður greiða alls 1.499 krónur áður en
hún fékk sendinguna afhenta.
„Mér hefði aldrei dottið í hug að
kaupa mér þessa hluti hér fyrir þessa
upphæð,” segir Oddfríður.
„Eg er ekki sátt við það að þurfa aö
borga fyrir þetta þessa upphæð. Eg lít
á sendinguna sem gjöf eða viðurkenn-
ingu.
Ef ég hefði vitað um þetta áöur en
ég pantaði heföi ég beðið um eitthvaö
f y rirf erðarminna. ’ ’
Svar:
Við höfðum samband við tollstjóra-
embættið í Reykjavík og spurðumst
fyrir um hvernig vörur af þessu tagi
væru metnar til tollafgreiðslu.
Páll Fransson varð fyrir svörum.
Hann sagði að ákveðin ákvæði í lögum
fjölluöu um gjafir. I þeim er gert ráð
fyrir að heimilt sé að lækka eöa fella
niður öll gjöld af gjöfum. Þetta á við
gjafir sem gefnar eru á milli félaga,
s.s. líknarfélaga og ekki eru notaðar í
atvinnuskyni. Þessi ákvæði ná einnig
tiltækifærisgjafa, s.s. jólagjafa.
Það er því spuming hvort þessi
sending fellur undir þá skilgreiningu
að vera tækifærisgjöf.
Páll sagði að þessi sending, eða gjöf,
gæti ekki fallið undir þá skilgreiningu
að vera tækifærisgjöf. Hún ætti því að
vera tollskyld eins og aðrar vörur sem
fluttar eru inn til landsins. Þetta voru
m.a. glös og væri 40 prósent tollur á
þeim, 30 prósent vörugjald og 25,85
prósent sölugjald.
Það er því full ástæða til að vara
fólk við því hér á landi að taka við
gjöfum frá klúbbum og öðrum sem
bjóða slíkar gjafir eða verðlaun fyrir
að útvega nýja viðskiptavini. Fólk ætti
aö kynna sér fyrst þær reglur sem
gilda um þennan varning áður en það
ákveður aö þiggja þessar gjafir.
APH
Mikil álagning
á mjólkurglas
— segir veitingahúsgestur
„Þaö kostar 16 krónur eitt
mjólkurglas á veitingastaðnum Ar-
seli á Selfossi,” sagöi veitingahús-
gestur sem nýlega hafði samband
við DV. Benti hann jafnframt á að í
sama húsi væri hægt að kaupa 1 lítra
af mjólk fyrir krónur 22,30. Stóö hann
í þeirri meiningu að Mjólkurbú Flóa-
manna ætti staðinn, ásamt Kaup-
félagi Arnesinga, og þótti því nokkuö
mikil álagning á mjólkurglasi.
Matreiðslumeistari á veitinga-
staðnum Árseli verður fyrir svörum.
Veitingastaöurinn Ársel er
einungis í eigu Kaupfélags Árnes-
inga og á það skal bent að frjáls
álagning er á veitingastöðum.
Ferðamannaverslun er á staðnum
þar sem mjólkin er seld á 22,30 lítr-
inn. I sömu byggingu er þar einnig
vísir að kaffiteríu og grilli. Vísaði
hann síðan á verðkönnun sem Verð-
lagsstofnun gerði nýiega á veitinga-
stöðum. Þar kemur fram að verð á
einu mjólkurglasi er á bilinu frá 13
krónum í 21 krónu. Mjólkin er af-
greidd í glasi sem tekur 25 sentilítra
og hefur verðið verið óbreytt í meira
en eitt ár.
Til samanburðar fengum viö upp
verð á fleiri drykk jum sem seldir eru
á veitingastaðnum Arseli.
Te kostar 21 krónu, kaffi 25, gos
28, malt og pilsnersglas kostar 35
krónur. Tuborg-bjór kostar 35
krónur og er afgreiddur í flöskunni
ásamt krús. Sami háttur er hafður á
ef afgreidd er bjórdós frá Carlsberg,
en hún kostar 52 krónur.
-RR
VERKSMIÐJUSTÖRF -
STARFSFÓLK ÓSKAST
Starfsfólk óskast til eftirfarandi starfa:
I. Til stillinga og keyrslu véla.
II. Tilverksmiöjustarfa.
Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar gefnar í síma 38383 eöa á
staðnum.
Kassagerð Reykjavíkur hf.,
Kleppsvegi 33.
HUMA-
NIC
Þessi vinsælu
leðurstigvél frá
HUMAIMIC eru
seld í eftirtöldum
verslunum:
Skósölunni,
Laugavegi 1.
Skóverslun
Kópavogs
Staðarfelli,
Akranesi
M.H. Lyngdal,
Skóverslun ’
Leos, ísafirði.
Er bleyta
i garðinum?
DRENBARKAR
Ef bleyta er í garðinum, tjaldstæðinu eða annars staðar, þá
getur lagning drenbarka verið rétta lausnin.
Drenbarkar til ræsilagna eru úr plasti, léttir og auðveldir í
notkun.
Allir fylgihlutir fyrirliggjandi. Stærðir 50,80 og 113 mm (50 m
rúllur).
VATNSVIRKINN/J
Ármúli 21.
S Skrifstofa: 685966. Verslun: 686455. Sölum.: 685961.