Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Blaðsíða 12
12
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
á 10 sýningum af 14 og fylgdist oft
meö úr plötusnúöaklefanum, veit ég
fyrir víst aö á spólunni var ekki
röddin hennar. Enda söng hún
sjaldan sama lagið nákvæmlega eins
en þó alltaf jafn vel. Og þetta gat
hver maöur séö sem var í ástandi til
þess.
Angraðir lesendur ættu að láta
það ógert aö skrifa um hluti sem þeir
hafa lítið vit á og síst af öllu að láta
þaö bitna á saklausu fólki sem gerir
ávallt sitt besta til að skemmta
öðrum.
Dvöl þeirra Miquel og Mel var
mörgum til ánægju og hef ég sjaldan
hitt fólk jafnskemmtilegt og heiðar-
legt. Mér þykir því leitt að sumir
kunna ekki gott að meta.
Hver er þinn uppáhalds-
matur?
Tapað segulbandstæki
Nina Guðlaugsdóttir hafði samband
viðDV:
Sonur minn var staddur í Þjórsár-
dal um verslunarmannahelgina og
hafði nýkeypt segulbandstæki sitt með
sér. Á laugardeginum lánaöi hann ein-
hverjum tækið en sá skilaði því ekki
aftur og hefur sonur minn ekki séð þaö
síðan. Eins og áður sagði var tækið ný-
keypt og er skaði stráksins tilfinnan-
legur þvi það var bæði dýrt og auk þess
hefur strákurinn ekki lokið við að
borga það. Eg vil því biðja þann sem
fékk tækið lánað aö skila því aftur og
hafa vinsamlegast samband í síma
36308.
Eg hef svo í fórum mínum karl-
mannstölvuúr sem fannst í Háagerði.
Eiganda þess er velkomið að vitja þess
hjá mér. Símanúmerið er 36308.
Söngkonan IVJiquel Urown.
„MIQUEL BROWN ER
FRÁBÆR SÖNGKONA”
Davíð hringdi:
Svar við lesendabréfi Rúnu í DV
14. ágúst sl. sem bar yfirskriftina
„biöraðir og gabb í Hollywood”.
I bréfi sínu segir Rúna okkur frá
því hvernig hún þurfti að troðast
fyrir utan og innan skemmtistaðinn í
heilt kvöld fyrir 170 kr. sér til lítillar
ánægju. Ekki ábyrgist ég aðstöðu né
biöraðir þeirra í Hollí en hitt er vist
að söngkonan Miquel Brown stóð
sig ailtaf frábærlega. Það vita það
flestir sem fengu tækifæri til aö sjá
Miquel skemmta aö hún hefur stór-
kostlega rödd og meiriháttar radd-
svið (meira en hægt er aö segja um
margar stjörnur poppsins í dag) og
hreint æðislega sviðsframkomu.
Henni tókst alltaf að fá stuð á
áhorfendur sína og jafnvel þátttöku
allra hvort sem hún skemmti í Holly-
wood eða Brodway.
Þar sem ég fylgdi söngkonunni og
aðstoöarmanni hennar, Mel að nafni,
Sigurður H. Sigurðsson kennari: Mér
finnst íslenska hangikjötið best af öllu.
En annars finnst mér allur matur
góður.
Agnar Þorleifsson blikksmiður: Fyrir
utan saltfisk finnst mér matur yfirleitt
góður, svið sérstaklega.
Þessu mótmæli ég!
Bangsi hringdi:
Það er nú sitt af hverju sem mér
liggur á hjarta, en það helsta er það að
ég fagna því aö Hrafn Pálsson, ritari
bindindis — þrjósku — nefndarinnar,
var persónulega á móti áliti nefndar-
innar.
Það eru einnig eflaust 90% þjóðar-
innar.
Nú, þá er það meö mataræðið. Við
hér á heimilinu erum alveg hætt að
borða kjötfars og pylsursíðan rann-
sóknir sýndu innihald þessa. Nú er hér
á borðum fiskibollur og soðinn karfi.
Einnig höfum við aukið grænmetisát
og fer það vel í krakkana líka. Viö
höfum lært að borða sojabaunir og eru I
þær steiktar á pönnu eftir að fiskurinn
eða bollurnar eru tilbúnar.
Mér finnst ósanngjarnt að einokun á
grænmeti og kartöflum verði til þess
að viö neyöumst til aö boröa það sem
bændur ákveða, þótt annað sé á boð-
stólum. Eða hvemig er þetta? Þaö
má ekki hafa vísitölu á okkar laun en
laun bænda verða áfram á þeirra eigin
vísitölu.
Þessu mótmæli ég.
Bangsi minnist á físk i groin sinni.
Hórsjáum við nóg afhonim.
Anna Jónsdóttir húsmóðir: Eg borða
allan hollan mat. En betra en flest
annaö finnst mér skyr meö rjóma. Það
er minn uppáhaldsmatur.
Marsibil Gunnarsdóttir, vinnur á
Grensási: Mitt uppáhald eru kjúk-
lingar. Eg borða alltaf kjúklinga þegar
mig langar í eitthvað mjög gott.
Helga Halldórsdóttir nemi: Ég borða
flestan mat. Mitt uppáhald er þó lík-
lega slátur og ég borða það yfirleitt
einu sinni í viku.
Hólmfríður Bergþórsdóttir húsmóðir:
Eg er hrifin af öllum mat, sérstakiega
hangikjöti og sviöum.
ATHUGASEMDIR
VEGNA
„SKOPMYNDAR”
Kona hringdi:
Mig langar að gera stutta
athugasemd vegna „skopmyndar”
sem birtist á bls. 29 í DV 14. ágúst sl.
Mynd þessi hafði yfirskriftina
„þurfa ekki að borga fyrir sexið”. Þó
að nafn teiknarans hafi ekki fylgt
myndinni langar mig að varpa fram
þeirri spurningu til hans hvort jafn-
réttisumræða seinustu ára hafi alveg
farið fram hjá honum? Það væri
fróðlegt ef teiknarinn vildi skýra frá
því opinberlega hvert markmið
textans og myndarinnar sé.
Eg tel mynd þessa skerða veru-
lega sjálfsmynd ómótaðs fólks, t.d.
bamaog unglinga, og gefa ranga
mynd af jafnrétti kynjanna yfir
höfuð. Það væri gaman ef teiknarinn
fengist til að svara þessum spurn-
ingum mínum.
Spurningin