Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Page 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
15
Sviðsliósið Sviðsljósið Sviðsljósið
INNRÉTTAR BARNAHERBERG-
IÐ EINS OG DISNEYLAND
Nú hefur Christina Gnassis tilkynnt
að hún eigi von á bami með nýorðnum
eiginmanni sínum, Thierry Roussel.
Christina, sem er orðin 33 ára og ein af
ríkustu konum í heimi, hefur lengi ósk-
að sér þess að eignast bam en hún hef-
ur nokkrum sinnum misst fóstur í þeim
þremur hjónaböndum sem hún á að
baki. En nú á allt að ganga vel og hún
hefur meðal annars ráðfært sig við
fæðingarlækni Díönu prinsessu sem
hefur fullvissað hana um að allt sé í
lagi.
Christina er að vonum mjög glöð
yfir þessum góðu tíðindum og undirbýr
nú af kappi fæðingu bamsins. Góður
vinur hjónanna segir að þriggja hæða
íbúð þeirra hafi nú verið breytt í smá-
Victoría Príncipal ásamt heitmanni sinum, lýtalækninum Harry
Glassmann.
ENGAR NEKTARMYNDIR
TAKK!
Victoria Principal, sem ieikur Pamelu i Oallas, hefur hafnað tilboði Playboy-
timaritsins um að birta nektarmyndir af henni i timaritinu fyrír sem sam-
svarar 1,5 milljón króna. Hún segist vera orðin það fræg að hún þarfnist
ekki lengur slíkrar auglýsingar. Auk þess só hún að fara að gifta sig manni
sem á tvö börn á táningsaidri og þeirra vegna komi þetta ekki til greina.
útgáfu af Disneylandi, þar sé að finna
alls konar leiktæki og fígúrar baminu
til skemmtunar og í einu horni barna-
herbergisins hafi Christina látið gera
lítið þorp í hæfilegri stærð fyrir lítinn
stubb.
„Við vonum að þetta verði strákur
og ef viö fáum strák þá á hann aö heita
Alexander Aristoteles eftir bróður
mínum og pabba,” segir Christina.
„Ef þetta verður stelpa þá á hún aö
heita Christina.”
Eftir að barnið fæðist segir Christ-
ina að allur hennar tími muni fara í
að snúast i kringum það, en eins og
kunnugt er er hún ein af athafnasöm-
ustu viðskiptakonum í heiminum. „Eg
mun sjá um öll viðskipti í gegnum síma
og ef einhver þarf nauðsynlega að hitta
mig þá veröur hann að koma heim á
meöan barnið sefur,” segir hún.
Þó að Christina sé aöeins komin á
þriðja mánuð þá hef ur hún aöeins hægt
á sér í starfi og hefur m.a. beðið bíl-
stjórann sinn um að aka aldrei hraðar
en á 50 km hraða.
Hvað segirðu um það, Albert?
Aíbert í hjúskaparhugleiöingum?
Það eru sífelldar vangaveltur um
þaö í heimsblöðunum hver veröi eig-
inkona Alberts prins af Mónakó.
Hann hefur verið orðaður við ýmsar
þekktar konur, m.a. Brooke Shields,
leikkonuna bandarísku, og svo dóttur
Gregory Peck sem heitir Cecilia.
Enn hefur Albert ekki fest ráð sitt.
Nú hermir sagan aö Albert sé ást-
fanginn upp fyrir eyru og heitir and-
lagið Marlene Vermeulen og er hún
hollensk að uppruna. Skyldi eitthvaö
vera hæft í þessu? Ja, Albert hefur
að minnsta kosti að sögn Mariene
-hringt oft og mörgum sinnum í hana
og boðið henni út og meira að segja
kysst hana galant á höndina. „Það
eru ekki allir sem gera það,” segir
Marlene. Annars er Marlene tísku-
ljósmyndafyrirsæta og hefur m.a.
komiö fram fáklæddari en góðu hófi
gegnir í sjónvarpsauglýsingum,
„Mér finnst skemmtilegast að sýna
föt og það er þaö sem ég fæst aðal-
lega við,” segir Marlene, vonglöð um
að það komi ekki til að spilla mögu-
leikum hennar á að verða furstafrú