Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Qupperneq 17
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGUST1984.
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
17
fþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
fþróttir
Lárus Guðmundsson.
Larus a við
meiðsli íhné
að stríða
— og leikur ekki fyrstu
leikina með Uerdingen
Lárus Guðmundsson — dýrastl lclkmaður
Bayer Uerdlngen (600 þús. mörk), mun ekkl
getað leikið fyrstu leiki félagsins í Bundesilg-
unni þar sem bann á við meiðsli að stríða i
hné.
Lárus hefur fengið það hlutverk hjá
Uerdingen að skora mörk — hann á að leíka
sem fremsti maður og þjálfari félagsins, Kalli
Feldkamp, hefur sagt að Lárus eigi aö leika
lausum hala og gera sem mest upp á eigin
spýtur.
Uerdingen leikur sinn fyrsta leik í Bremen
um næstu helgi en þá hefst keppnin í V-Þýska-
landi. -SOS
Fékk sekt fyrir
nautaat
Spánski knattspyrnukappinn Juanito hjá
Real Madrid var sektaður á laugardaginn um
250.000 peseta fyrir að fara í nautaat. Félagið
taldi að Juanito hefði þarna teklð mikla
áhættu — hefði getað slasast og ekki lelkiö
knattspyrnu á næstunnl.
Þetta er þó ekki eins há sekt og enski lands-
liðsmaðurinn Laurie Cunningham fékk hjá
Real Madrid um árið fyrir að fara tábrotinn á
diskótek.
Cunningham hefur nú gerst leikmaður með
franska félaginu Marseiiles.
-SOS
Giresse tryggði
Bordeaux sigur
Nantes og Bordeaux eru elnu félögin sem
eru með fullt hús stiga í Frakklandi eftlr tvær
fyrstu umferðirnar þar í knattspymu. Alain
Giresse tryggði Bordeaux sigur 1—0 á útivelli
yfir Nancy og Nantes vann stórsigur í gær-
kvöldi 3—0 yflr Marseilles. Það vora þeir
Halilhodzlc frá Júgóslavíu, Loic Amisse og
Philippe Robert sem skoruðu mörkin.
önour úrslit í Frakklandl urðu þessi í gsrkvöldi:
Monnco — Tours 4—0, Lille — Paris St. Germato J—1,
Lavel — Auxerre 2—1, Ractog Paris — Lens 2—1,
Rouen — Sochaux 1—1, Toulouse — Bastla 3—0,
Strasbourg—Metz 4—log Toulon—Brest 2—1.
-SOS
Bond rekinn
frá Burnley
Það er enginn öruggur með framkvæmda-
st jórasæti sitt i Englandi. Því fékk John Bond,
fyrrum framkvæmdastjóri Norwich og
Manchester City, að finna fyrir í gær er hann
var rekinn frá 3. deildarfélaginu Burnley —
aðeins nokkrum dögum áður en keppnistima-
billð hefst í Englandl.
Tony Knapp gerir
það gott í Noregi
— þjálfarinn sem ekkert 1. deildarfélag vildi ráða er nú að gera stóra hluti
hjá 2. deildarfélaginu Vidar. Víkingar vilja fá hann aftur
Tony Knapp, landsliðsþjálfari
Islands í knattspyrau, er að gera góða
hlutl með norska 2. deildarliðlð Vidar
frá Stavangri. Vidar er nú í efsta sæti í
riðli B í 2. deildarkeppninni og hefur
sett stefnuna á 1. deild.
A sama tíma er Fredrikstad, sem
Knapp kom upp í 1. deild sl. keppnis-
tímabil, í neðsta sæti í 1. deildarkeppn-
inni norsku en félagið vildi ekki endur-
nýja samning sinn við Knapp.
Norska blaöið VG sagði fyrir helgina
að enn væri Tony Knapp, þjálfarinn
sem ekkert 1. deúdarfélag vildi ráða,
kominn í sviðsljósið — með Vidar sem
er nýliði í 2. deild. Félagið hefur aðeins
tapað einum leik undir stjórn Knapps
— unnið átta af fjórtán og gert fimm
jafntefli.
Já, Knapp er í sviðsljósinu, eins og
fyrri daginn, en hann gerði Víking frá
Stavangri bæði að deildar- og bikar-
meistara 1979. Víkingum hefur ekki
gengiö vel að undanförnu og er þetta
fyrrum stórveldi í norsku knattspym-
unni nú i sjöunda sæti í 1. deUd með 13
stig og enn í fallhættu.
Háværar ræddir eru uppi í Stavangri
um aö Knapp taki að nýju við Víkings-
liðinu næsta keppnistimabU. w
„Kann vel við mig í Noregi"
Knapp var spurður í greininni í
VG hvers vegna hann væri í Noregi
• Tony Knapp — leikur oft golf í f rítímum sinum. Hér sést hann á golfveUinum.
Skorar Magnús
hjá Schumacher?
— þegar hann leikur gegn Köln
„Eg er búinn að æfa mun skemur en
aðrir leikmenn hér og ég hef Utla trú á
aö ég verði i byrjunarUðlnu í fyrstu
lelkjunum,” sagði knattspyraumaöur-
inn Magnús Bergs en hann mun, elns
og DV skýrði frá í fyrradag, leika í
BundesUgunni með Eintracht Braun-
sweig. Vestur-þýska knattspyraan
hefst á laugardag og þá á Braunswelg
að lelka gegn FC Köln og i næsta leik
þar á eftir fer Uðið tU Stuttgart.
„Leikurinn gegn Köln verður mjög
erfiður. Braunsweig hefur aUtaf geng-
ið iUa á móti Köln og það er orðið mjög
langt síðan iiðið vann Köln ef þaö hefur
þá nokkum tímann unnið. Eg hef trú á
því að þetta verði erfitt keppnistímabU
hjá okkur. Það eru margir nýir leik-
menn í liðinu og það veltur mikiö á því
hvemig menn ná saman. Eg á jafnvel
Clive Allen á
skotskónum
Clive Allen, sem Tottenham keypti Irá QPR
á dögunum fyrir 750 þús. pund, hefur heldur
betur veriö á skotskónum. Hann skoraöi tvö
mörk fyrir Tottenham um si. helgl þegar fé-
laglö vann Sheff. Utd. 3—0. Allen hefur skoraö
þr jú mörk fyrir félagiö í tvelmur lelkjum.
-SOS
von á því að við verðum í faUbarátt-
unni,” sagði Magnús.
Þýsku blööin eru ekki sammála
Magnúsi. Flest þeirra gera ráö fyrir
Magnúsi í byrjunarUðinu og segja að
hann muni leika sama hlutverkiö hjá
Braunsweig og hann lék með spánska
Uðinu Santander í fyrra. Ef Magnús
verður með á laugardaginn verður
fróðlegt að sjá hvort honum tekst aö
skora hjá hinum heimsþekkta mark-
verði Köln, Tony Schumacher.
-SK
\ á
• MagnúsBergs.
þegar ekkert 1. deildarfélag vildi ráða
hann. — Ég er hrifinn af norskri knatt-
spyrnu og hér finnst mér gaman að
vinna. Það skiptir mig ekki hvort þaö
er hjá 1. eöa 2. deUdarliði, sagðiKnapp
og hann bætti viö að hann væri ekki í
Noregi tU aö þéna peninga. — Ef ég
vildi þéna mikla peninga, þá væri ég
nú í Kuwait eða Qatar, sagði Knapp.
Ef Knapp tekur að nýju við Víkingi
næsta sumar þá má fastlega reikna
með að hann verði ekki áfram lands-
liðsþjálfari Islands, heldur stjómi
íslenska landsliðinu í þremur leikjum
þess á þessu keppnistimabiU — tvisvar
gegn Wales og einu sinni gegn
Skotlandi.
i -SOS
•Heimir Karlsson er hér kominn einn inn fyrir gegn Breiðabliki i gærkvöldi. Heimir var kolrangstæður
þegar hann fókk knöttinn og Friðrik varði mjög vel. D V-mynd Brynjar Gautí
„Ég trúði því varla
að ég hefði skorað
sagði Sigurjón Kristjánsson, Bliki, en hann skoraði sitt fyrsta mark í sumar ífyrsta heimasigri
Breiðabliks gegn Víkingi, 2:0 ★ Jón Oddsson innsiglaði sigurinn með þrumumarki
„Það er ekki langt frá því að þetta sé
faUegasta mark sem ég hef skorað.
Þetta var góður sigur og hann var
mjög sanngjara,” sagði Jón Oddsson,
knattspyraumaður í Breiðabliki, cftir
leik Breiðabliks og Víkings í 1. deUd ts-
landsmótsins í knattspyrau í Kópavogi
í gærkvöldi. Breiðablik vann mjög dýr-
mætan slgur, 2—0, og lyfti sér örlitið
ofar á stigatöfluna.
Jón Oddsson skoraöi annað mark
BreiðabUks með miklu þrumuskoti af
20 metra færi og þeir voru fáir sem sáu
knöttinn fyrr en hann söng í netinu. ög-
mundur Kristinsson, markvörður Vík-
ings, var ekki á meðal þeirra enda
skotiö gersamlega óverjandi.
Leikurmn var mjög lélegur og leiöin-
legur. Ekki var hægt að sjá á leik Uð-
anna að þar færu tvö Uö i fallbaráttu.
Lítil barátta og klaufaskapur og
Guðmundur
dæmir í
Danmörku
— ogÞorvarður
íNoregi
Þegar sagt var frá þelm dómurum
sem dæma fyrir hönd Islands í Evrópu-
keppnlnni í knattspyrnu hér á síðunni í
gær féUu nlður nokkrar línur sem urðu
tU þess að tveir línuverðir, sem eiga að
vera línuverðir á bikarúrsUtaleik
Fram og Akraness, voru orðnir
linuverðlr i Evrópuleik.
Verkefni dómara og ltouvarða verða þessl:
• Guðmundur Haraldsson dæmir Evrópu-
leik Arhus KFUM og Lodz frá Póllandi.
Ltouveröir verða Þóroddur Hjaltalto og
Magnús Theódórsson.
• Þorvarður Björnsson dæmir leik
Válerengen og Sparta Prag frá Tékkó-
slóvakíu í Noregi. Línuverðir verða þeir
Kjartan Ólafsson og Kjartan Tómasson.
• Eysteton Guðmundsson dæmir leik Fram
og Akraness á sunnudaginn. Linuverðir veröa
Óli Olsen og Eyjólf ur Ólafsson.
-SOS
hugsunarleysi leikmanna í fyrsta, öðru
og þriðja sæti.
Litlu munað á 28. minútu að Heimir
Karlsson næði að skora fyrir Víking.
Hann fékk knöttinn, kolrangstæður, óö
að markinu en Friðrik varði mjög vel.
Þar svaf línuvörðurinn vært á línunni.
Tíu mínútum síðar náðu Blikar for-
ystunni. Sigurjón Kristjánsson fékk þá
góða sendingu inn í vítateig Víkings og
skot hans réð ögmundur ekki við.
Fyrsta mark Sigurjóns í sumar. „Ég
trúði því varla að ég hefði skorað. Ég
er búinn að bíða lengi eftir því að
skora. Þetta var yndislegt augnablik,”
sagði Sigurjón eftir leikinn. Staðan í
leikhléi var 1-0.
Þegar 26 mínútur voru liðnar af síð-
ari hálfleik skoraöi Jón Oddsson mark
sitt og tryggði Blikunum sigurinn. Á
sömu mínútunni geystist Jón að marki
FelixMagath.
Víkings og hleypti af á svo til nákvæm-
lega sama stað og þegar hann skoraði
en nú varði ögmundur prentari snilld-
arlega að hætti góðra markvarða. Og
enn var ögmundur á ferðinni fimm
mínútum síðar. Þá komst Jón Einars-
son einn inn fyrir vörn Víkings og átti
ögmund einan eftir. Skot Jóns var
mjög fast og engu líkara en hendur ög-
mundar væru vaxbornar. Hann hélt
knettinum, frábær markvarsla.
Allir höföu, þegar hér var komið
sögu, sætt sig við orðinn hlut. Blikarnir
þó heldur frískari og Jón G. Bergs var
klaufi að skora ekki þriðja markið þeg-
ar hann komst einn inn fyrir á síðustu
mínútu leiksins. Rétt þegar hann ætl-
Walesekki
meðíEM21
Wales hefur dreglð sig út úr Evrópukeppni
landsiiða, skipuðum landsUðum 21 árs og
yngri. tsiand mun því ekkl lelka tvo landsleUd
gegn Waies etos og stóð tU f haust. 21 árs Uðlð
leikur þvf eton lelk — gegn Skotum f SkoUandi
16. október. Spánver jar eru etonlg f riðltoum.
-SOS
aði að fara aö skjóta tókst einum Vik-
ingi að bjarga í hom.
Þrátt fyrir þennan sigur lék Breiða-
bliks-liöið lélega í þessum leik. Meira
þarf að sýna í þeirri baráttu sem fram-
undan er ef ekki á illa að fara.
Enginn Blikanna var áberandi betri
en annar. Sigurjón duglegur og markið
hans dýrmætt. Bæði fyrir hann og Blik-
ana. Sömu sögu er að segja af Jóni
Oddssyni.
Víkingar voru vægast sagt lélegir.
Liðið hefur nú 17 stig og ekki er útlit
fyrir að þeim fjölgi ef liðið leikur síð-
ustu leikina í mótinu í svipuðum klassa
og þennan í gærkvöldi.
•Brciðablik: Friðrik, Omar, Benedikt, Loft-
ur, Olafur, Vignir, Guðmundur, Jóhann, Sig-
urjón, Jón Odds. (JónG. Bergs), JónE.
•Víktogur: Ögmundur, Unnsteinn (EinarEin-
arsson), Ragnar, Gylfi, Magnús, Andri, Krist-
inn, Omar, Amundi, Heimir og ömólfur.
Engin spjöld og áhorfendur um 500. Dómari
Þorvarður Bjömsson og dæmdi hann þokka-
lega.
•Maður leiksins: Sigurjón Kristjáns-
son, Breiðabliki. -SK.
Felix Magath á
að taka við starfi
Gunter Netzer
— sem framkvæmdastjóri Hamburger SV
Hamburger SV tilkynntl í gær að v-
þýski landsliðsmaðurinn Felix
Magath, fyrirllði félagslns, muni taka
vlð starfi framkvæmdastjóra Ham-
burger SV þegar samningur hans við
félagið rennur út í júlí 1986.
Magath, sem er 31 árs og hefur leikið
24 landsleiki fyrir V-Þýskaland, mun
verða í læri hjá Gunter Netzer, núver-
andi framkvæmdastjóra félagsins,
næstu tvö árin.
• Franz Beckenbauer, landsliðsein-
valdur V-Þýskalands, hefur tilkynnt.
að hann vilji fá Magath aftur til að
leika meö landsliðinu, en Magath hætti
að leika með liðinu þar sem hann var
ekki ánægður með Jupp Derwall, fyrr-
um landsliðseinvald. -SOS
SKAGAMENN ÓTJ-
UÐUST KEPPNISBANN
—Nýlunda að leikmenn komi til dómara fyrir leik og biðjist
vægðar, segir Grétar Norðf jörð, f ormaður KDSÍ
— Þetta er nýlunda. Hefur aldrei
skeð áður, svo við hjá KDSt vitum um.
Það er nýlunda að leikmenn komi til
dómara fyrlr lelk og biðjlst vægðar,
seglst vera með níu refsistig og biðji
um aðvörun áður en þelm er gefið gult
spjald. Þetta er ekki snlðugt, sagðl
Grétar Norðfjörð, formaður Knatt-
spyrnudómarasambands tslands, í
spjalli við DV í gærkvöldi.
Það átti sér stað fyrir leik Vals og
Akraness á dögunum aö tveir leik-
menn Skagamanna — þeir Sigurður
Lárusson og Guðjón Þórðarson —
komu til Friðgeirs Hallgrimssonar
knattspymudómara fyrir leikinn og
sögöu honum að þeir væru með níu
refsistig, þannig að Friðgeir gerði sér
grein fyrir að þeir væru á mörkunum
að fara í keppnisbann vegna tiu refsi-
stiga. Var greinilegt að leikmennirnir
óttuöust að missa af bikarúrslitaleikn-
um gegn Fram á sunnudaginn, vegna
leikbanns út af tíu refsistigum.
„Sögdustvera
með 9 refsistig ”
— segir Friðgeir Hallgrímsson dómari sem
dæmdi leik Vals og Akraness
„Það er rétt að það komu tvelr
leikmeun ÍA-liðsins til mín á letk-
stað. Annar sagðist vera með 9 refsi-
stig og ég bað hann vinsamlegast um
að koma sér i burtu. Hlnn sagði við
mlg að hann væri með 9 refslstig og
bað mlg vinsamlegast um að gefa
sér aðvörun áður en ég gæfi honum
gult spjald,” sagði Friögeir Hall-
grímsson knattspyraudómari en
hann dæmdi lelk Vals og Akraness í
1. delldinni fyrir nokkrum dögum.
„Eg lít þetta mál að sjálfsögðu
alvarlegum augum. Eg fór á fund
aganefndar í gærkvöldi og geröi þar
grein fyrir mínu máli. Mér skilst að
það eigi að gera eitthvað í þessu
móli,” sagði Friðgeir.
Hann sagði ennfremur að hann
hefði ekki gert sér grein fyrir því
strax að úrslitaleikurinn í bikar-
keppninni væri inni í dæminu. Og að
lokum sagöi Friðgeir: „Eg held því
miöur að þetta sé ekki eína dæmið af
þessutagi.” -SK.
•Friðgeir Hallgrimsson dómari:
„Lit þetta mól alvarlegum augum.”
„Var ekki að fara
fram á vægð”
— segir Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagamanna
„Jú, það er rétt — viö töluðum við
dómaranu og sögðumst vera með niu
refslstig. Vlð báðum hann ekki að gera
eitt né neitt,” sagði Sigurður Lárusson,
fyrirliðl Skagamanna, þegar við spurð-
um hann um atviklð á Valsvellinum.
„Eg sagöi viö dómarann aö ég væri
ekki að fara fram á vægð heldur bað ég
hann að aðvara mig ef honum fyndist
ég leika fast. Þeir dómarar, sem hafa
dæmt Evrópuleiki okkar, hafa þá reglu
að aðvara okkur og segja: „Ef þessu
heldur áfram, færðu gult spjald. Það
var þessi aðvörun sem ég fór fram á,”
sagöi Sigurður og hann sagðist einnig
hafa sagt: „Ef brotið er gróft þá gefur
þú aö sjálfsögöu gult spjald strax.”
— Hvers vegna baðst þú um þessa
aðvörun?
„Eg var ákveðinn að fara af leikvelli
ef ég hefði fengið aðvörun.
— Hvað sagði dómarinn við þig?
„Hann vildi ekkert við mig tala —
sagði hvorki já né nei.”
Siguröur sagðist ekki hafa verið aö
fara fram á vægð. „Ef maöur er ekki
nógu skynsamur til aö leika eftir sinu
WORL0
1
Mættu á fundi hjá aganefnd
KSÍ
Þeir Grétar og Friðgeir mættu á
fund hjá aganefnd KSI í gær þar sem
Friðgeir lagöi inn greinargerð um
þetta atvik. — Ég hreinlega veit ekki
hvað skeður, þetta er svo óvenjulegt
mál. Það er nú i höndum aganefndar
og ég veit ekki hvenær hún tekur það
fyrir, sagöi Grétar Norðfjörð i viðtali
viðDV. -SK/-SOS
Tvö heims-
metíMoskvu
Rússton Sergei Zabolotnov setti nýtt beims-
met í 200 m baksundl f Moskvu f gær — syntl
vegalengdtoa á 1:58,41 min. Gamla metlö
átti Bandarfkjamaðurinn Rfck Carey sem
hann settf 27. júní f Indianapoils — 1:58,86
mto.
Þá setti kvennalandssveit A-Þýskalands
heimsmet í 4X100 m fjórsundi, 3:42,41 mín.
Gamla metið átti A-Þýskaland, 3:42,71 mfn.,
sem var sett 1980. -SOS
•Sigurður Lárusson tA: „Bað Frið-
geir um aðvörun.”
höföi þá á maöur ekki að vera að leika
knattspymu,” sagði Siguröur sem
sagðist ekki sjá neitt athugavert viö aö
bið ja um aðvörun. -SOS
Sanyo er með á nótunum.
GXr-200
Ótrúleg tóngæði og fallegt útlit fytir breakara
á öilum aldri.
Magnari 2X10 sin. wött.
Útvaip með FM sterió (ras 2) MW-LW.
Plötuspllari, hálfejálfvirkur með moving
magnet, plck-up og demantsnál.
Segulband með DOLBY Ni og METAL
stiUingu.
50 watta hátalarai og stórglæsilegur viðar-
skápur með reykUtðum glethutðum og ioki.
VERÐ AÐEINS
KR. 18.876,00 stgr. Ist
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
fþróttir
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 Sirni 9135200