Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Qupperneq 26
26
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST1984.
Vegaræsi
Eigum fyrirliggjandi rör í vegaræsi, rillustyrkt, mjög sterk úr
galv.-efni. Stærðir: 10, 12,14,16, 18, 20, 22, 24, 26, 28, 30, 32, 40,
44 og 48 tommur.
Nýja Blikksmiðjan hf.,
Ármúla 30. Sími 81104.
x
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX j
llrauMa í tohur
o$ fi. sími 50003.
x
X
X
X
X
X x
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Auglýsing um rækjuveiðar
innanfjarða á hausti kom-
anda
Umsóknarfrestur til rækjuveiða á Arnarfirði, isafjaröardjúpi
og Húnaflóa á rækjuvertíðinni 1984 til 1985 er til 5. september
nk. I umsókn skal greina nafn skipstjóra og heimilisfang, enn-
fremur nafn báts, umdæmisnúmer og skipaskrárnúmer.
Umsóknir sem berast eftir 5. september nk. verða ekki teknar
til greina.
Sjávarútvegsráðuneytið,
17. ágúst 1984.
Utboð — Loftræsing
Stykkishólmshreppur óskar eftir tilboðum í smíði og uppsetn-
ingu loftræsikerfis í nýbyggingu Gagnfræðaskólans í Stykkis-
hólmi.
Utboðsgögn verða afhent hjá Verkfræðistofunni Fjarhitun hf.,
Borgartúni 17, Rvík., gegn 2.500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð föstudaginn 31. ágúst nk. kl. 11 f.h. hjá
F jarhitun hf.
/KJÖRINN \
FERÐAFÉLAGI, |
FER VEL
í VASA,
VEL
ÍHENDI
ÚR VALSEFNI
ÖLLU TAGI.
Launamál lögreglukvenna:
Vandamál í Kópavogi
—í lagi f Reykjavík
„Þetta er ekkert vandamál hjá
okkur,” sagöi Páll Eiríksson, aðstoö-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
þegar hann var inntur eftir því
hvernig fariö væri meö mál lögreglu-
kvenna í Reykjavík á meðan á meö-
göngu stendur. Eins og fram kom í
DV sl. laugardag hefur veriö leitað
til stjórnar Landssambands lög-
reglumanna vegna misréttis sem
lögreglukona úti á landi taldi sig
hafa verið beitta á meðgöngutíma og
í bamsburðarleyfi hvaö varðar
launamál.
I Reykjavík eru starfandi sex lög-
reglukonur í föstu starfi en þrjár í
Kópavogi. Ásgeir Pétursson, bæjar-
fógeti í Kópavogi, sagöi aö málið
væri í kyrrstööu þessa stundina en
veriö væri aö semja bréf til dóms-
málaráðuneytisins vegna þess. Hann
sagði ennfremur aö þetta væri nýtt
mál fyrir sér, en vitanlega hlyti
þetta aö vera mál sem sætti sam-
komulagi milli Landssambands lög-
reglumanna og samninganefndar
ríkisins. SJ
Nú er veriö í fyrsta sinn á tslandi aö reisa einbýlishús innandyra.
(DV-mynd: GVA)
EINBÝLISHÚS í LAUGARDALSHÖLLINNI
Nú er verið að reisa einbýlishús inn-
andyra í fyrsta sinn á íslandi. Húsið
er á annað hundrað fermetra stórt og
bygging þess mun einungis taka eina
viku. Húsið er reist í tengslum við
sýninguna Heimilið ’84 sem hefst í
Laugardalshöll nk. föstudag. Það
eru 20 aðilar sem standa að byggingu
hússins og í því verður allt sem
prýða má eitt heimili, allt frá stein-
Staða alþjóð-
legra orkumála
— rædd á f undi orkumálaráðherra
Á fundi orkumálaráðherra Norður-
landanna, sem haldinn var á Húsavík í
fyrradag, var rædd þróun á orkusviöi í
hverju landi fyrir sig svo og staða al-
þjóðlegra orkumála.
A fundinum var lögð fram skýrsla
um olíuhreinsistöðvar. Ráðherrar
töldu nauðsynlegt aö kanna möguleika
á hagnýtri, norrænni samvinnu á þessu
sviði. Verður máliö rætt frekar á næsta
fundi orkumálaráðherra.
A sviði orkurannsókna samþykktu
ráðherramir að fram skuli fara ýmis
Leyfi verður ekki veitt
Landbúnaöarráðuneytið hefur
ákveðið að leyfi verði ekki veitt fyrir
því grænmeti sem heildverslun Egg-
erts Kristjánssonar flutti inn og kom í
sölu án þess að tilskilin leyfi hefðu
verið fengin frá ráðuneytinu.
Að sögn Guðmundar Sigþórssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu, telur ráöuneytið að þetta sé
brot á lögum og heföi viðkomandi toll-
vörður, sem gaf út neyðarleyfi, átt að
ganga úr skugga um að leyfi væru fyrir
þessum innflutningi af hálfu land-
búnaðarráðuneytisins.
upplýsingaþjónusta og samhæfing
milli Norðurlandanna. Þetta mun fela í
sér sameiginlega skráningu á r£um-
sóknarverkefnum og útgáfustarfsemi,
stuðning við sérstök námskeið á olíu-
og gassviöinu, sameiginlegar
námstefnur, stuðning við ferðir rann-
sóknarmanna, sameiginlega bókaút-
gáfu o.fl. Orkuráðherrar töldu að auka
ætti samvinnu á orkurannsóknarsvið-
inu. Ráðherrar lögöu áherslu á mikil-
vægi náinnar samvinnu um upplýsing-
ar í orkumálum, þ.á m. með útgáfu-
starfsemi, sýningum og námskeiöum.
Þá bentu ráðherrarnir á aö fram-
kvæmdir í orkumálum gegndu mikil-
vægu hlutverki í efnahagslegri þróun
og i að halda uppi fullri atvinnu, en
ályktun þessa efnis hefur komið fram í
Norðurlandaráði.
Þeir sem sátu fundinn á Húsavík
voru: Seppo Lindblom, viðskipta- og
iðnaðarráöherra Finnlands, Sverrir
Hermannsson, iðnaðar- og orkumála-
ráðherra Islands, Birgitta Dahl, orku-
málaráðherra Svíþjóðar, Arild Rod-
lend, aðstoðarmaður orkumálaráö-
herra Noregs, og Michael Lund, ráðu-
neytisstjóri í orkumálaráðuneyti Dan-
merkur.
Ingibjörg Magnúsdóttir
Húsavik
klæðningum, parketgóUum, húsgögn-
um og hreinlætistækjúm upp í sófa-
púða og myndlist á veggjum. Og
auðvitað er öllum sýningargestum
boðið í heimsókn. ÞJH
Dýralæknafélag
Islands50ára
Aðalfundur Dýralæknafélags Is-
lands var haldinn að Bifröst í Borg-
arfirði dagana 27. til 28. júlí. Var
það jafnframt hátíöarfundur í til-
efni af 50 ára afmæli félagsins.
Til hátíðarfundarins var boðiö
frammámönnum í íslenskum land-
búnaði og fulltrúum frá norrænu
dýralæknafélögunum. Þá voru sex
dýralæknar gerðir að heiðursfélög-
um og sæmdir gullmerki félagsins
fyrir störf í þágu þess. 1 þeim hópi
voru þrír af núlifandi stofnendum
félagsins, þeir Jón Pálsson, Ásgeir
Þ. Ólafsson og Asgeir Einarsson
auk Guöbrands Hlíðar. Tveir er-
lendir dýralæknar voru einnig
gerðir að heiðursfélögum.
Auk hátíðarfundarins hélt félagið
árlegan fræðslufund, sem var helg-
aður fiskirækt og fisksjúkdómum.
I stjórn Dýralæknafélags Islands
voru endurkjörnir Halldór Runólfs-
son formaður, Gunnar örn Guð-
mundsson ritari, Grétar Hrafn
Harðarson gjaldkeri og Gunnlaug-
ur Skúlason, sem var kjörinn vara-
maður.
EA
APH