Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 2
2
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985.
SKÓLASTARF VÍÐAST
FARIÐ ÚR SKORÐUM
Guðni rektor:
í gœr var skólataska í líki hins islenska fána lögð á minnisvarða Jóns
Sigurössonar. Athöfnin fór fram á vegum forráðamanna nemenda á
Suðurlandi sem eiga nú um sárt að binda vegna kennaraleysis. Þeir vona
Jóns Sigurðssonar vegna að heiðri mennta verði áfram haldið uppi.
DV-mynd GVA.
„Djöfullegt að sjá
krakkana hangsa hér"
„Ég er ekki búinn að gera neinar
ráðstafanir og býst ekki við að hægt sé
að gera miklar ráðstafanir. Það er
hugsanlegt að reynt verði að færa sam-
antima.
1 sumum greinum er alger mann-
auðn. Náttúrufræðin viö skólann leggst
til dæmis alveg niður og mikið fellur
niður af stærðfræðinni.
Nú er Ijóst að um 45 prósent kennara
hafa lagt niður störf. Það má reikna
með því að það sé um 50 prósent af
kennslunni sem bendir á þá staðreynd
að það eru þeir yngri sem hafa hætt
störfum.”
Þetta sagði Guðni Guömundsson
rektor í MA í löngu frímínútunum í
gær. Hann sagði að þrír kennarar, sem
áður höfðu sagt upp störfum, hefðu
hlítt fyrirmælum menntamálaráð-
herra um aö framlengja uppsagnar-
frestinn. Guöni sagðist ekkert hafa
heyrt frá ráðherra og bjóst heldur ekki
viöþví.
„Við verðum að keyra þetta í gegn
einn dag til að átta okkur á þessu.”
Guöni hefur verið í skóia í 54 ár og er
því ekki ókunnur skólahaldi hér á
landi.
„Þetta er auðvitað einsdæmi. En
ástandið var þó mun verra í verkfalli
BSRB. Ég er nýhættur aö reykja og al-
veg steinhissa á því að ég skuli ekki
vera byrjaður aftur. En ég hef reyndar
neftóbakið,” segir Guðni og fær sér
duglega í nefiö úr silf urdósinni.
„Þetta er auövitað mikið álag að
standa í þessu. En við erum af víkinga-
kyni og verðum því að reyna að herða
okkurupp.”
— En ert þú ekki hræddur um að erf-
itt verði að fá góða kennara ef flótti
grípur um sig meðal kennara úr stétt-
inni?
„Það er erfitt að spá og sérstaklega
um framtíðina. Hvað snertir mann-
„Við erum af vikingakyni og
verðum að reyna að heröa okkur
upp."
DV-mynd GVA.
skap í haust kemur það mjög fljótlega í
ljós hverjir ráða sig.
Það getur vel verið að við fáum
mannskap frá útlöndum. Þetta kemur
í pressunni á morgun þar, Reuter var
aðhringja.”
„Það er auðvitað djöfullegt að sjá
krakkana hangsa hérna í skólanum og
ekki nema rúmar fimm vikur til
prófs.”
Það er ljóst að skólastarf í flestum
framhaldsskóium landsins hefur farið
úr skorðum. DV hafði samband við
nokkra þeirra.
Menntaskólinn á
Akureyri
Þar mættu ekki til starfa 20 af 34
kennurum skólans. Tveir kennarar,
sem áöur höfðu sagt upp, ákváðu aö
fresta uppsögninni.
Þar hefur verið ákveðið að fella
niöur alla reglulega kennslu. 1 stað
hennar hefur verið komið upp bráða-
birgöaaðstööu fyrir nemendur til að
lesa í skólanum undir umsjón og hand-
leiöslu þeirra kennara sem kenna enn
við skólann.
Skólameistari þar segir að þetta
fyrirkomulag geti ekki gengið lengi.
Menntaskólinn
í Kópavogi
Helmingur kennara hefur sagt upp
störfum þar og er hættur. Alls eru það
16 kennarar. Tveir hættu við að hætta.
Þar er kennt samkvæmt stundatöflu.
Nemendur geta hins vegar setið á
bókasafni eða sal og lesið skólabækur.
Þá hefur verið ákveðið að
nemendum og kennurum sé heimilt að
gera ákveönar breytingar á röðun
kennslustunda, svo fremi að það bitni
ekki á annarri kennslu. Skólameistari
þar segir aö þetta sé mikil brotalöm og
ljóst að skólastarfið leggist niður með
þessu áf ramhaldi.
Menntaskólinn á ísafirði
Þar virðist vera tiltölulega lítil
röskun á kennslu. Aöeins þrír
kennarar af 10 hafa sagt upp störfum
og hætt, einn leikfimikennari og tveir í
bóklegu.
Fjölbraut í
Ármúla
Þar standa yfir Árdagar nemenda og
ekki komin nein reynsla á hvemig
kennarafæðin virkar þar. Þar hafði
meirihluti kennara sagt upp störfum.
Iðnskólinn
í Reykjavík
Þar er líklegt að minnst verði röskunin
á kennslu. Aðeins 14 kennarar af um
140 hafa sagt upp störfum og hætt.
Ástæðan fyrir því er líklega sú að þeir
eru í BSRB og tilheyra ekki HlK. Það
má því segja að ástandið í skólanum
hafi snúist við þar núna miöað við
hvemig það var í verkfalli BSRB.
Hins vegar ber á það að líta að mesta
röskunin er í bóklegu fögunum, s.s.
tungumálum, og reyndar einnig iðn-
teiknun.
Svipað ástand er í öörum iðnskólum.
Fjölbraut
á Akranesi
Þar mættu 22 ekki til starfa í gær af
40 kennurum. Af kennslu er aðeins um
einn þriðji hluti i gangi. Þar hafa engar
sérstakar ráðstafanir verið geröar.
Menntaskólinn
á Egilsstöðum
Þar hafa allir kennarar skólans, sem
eru í HÍK, sagt upp störfum og hætt.
Aðeins tveir leikfimikennarar í Kl
mættu til starfa. Ákveðið var að fella
niður kennslu þar um stundarsakir.
I gær voru nemendur að tínast burt
úr skólanum til síns heima.
Menntaskólinn
við Sund
„Ástandið er hörmulegt,” sagði
Bjöm Bjamason rektor þar í gær.
Reynt var að kenna eftir stundaskrá.
Þar eru 35 kennarar af 68 hættir. Það
munu vera um 60 prósent af kennsl-
unni. Einn kennari hætti við að hætta. I
ofanálag voru þrír kennarar veikir í
gær.
Fjölbraut í Breiðholti
Þar var skólahald í lamasessi í gær.
Nemendur mættu illa tii kennslu. Þar
hafa 60 kennarar af 115 hætt störfum.
Þrír hættu við að hætta. Þar hefur
engin áætlun verið gerð um hvemig
bregðast eigi við.
Menntaskólinn
á Laugarvatni
Þar em ekki nema 30 prósent
kennara í starfi. I gær var taliö líklegt
að kennsla félli niður þar um stundar-
„UMHYGGJAN ER EKKI
BARA KENNARANNA”
„Þetta er mikið ólán sem ekki hefði
þurft að koma til,” sagði Sigurlaug
Bjarnadóttir, frönskukennari í MH og
fyrrverandi alþingismaður sjálfstæðis-
flokksins. DV hitti hana aö máli á
kennarastofu MH. Hún var ein af þeim
kennurum sem ekki sögðu upp starfi.
Það voru 10 kennarar sem mættu í
gærmorgun til starfa þar. „Mín skoðun
er sú að það hefði ekki þurft að koma
til þessa ástands. Það var nægur tími
til að leysa þessi mál. Það er hart aö
þetta skuli vera komiö á þetta stig.
Ég dreg heldur ekki dul á að það hef-
„Við vonumst til að þetta leysist sem
fyrst. Við viljum ekki missa af þessari
önn,” sögðu stelpumar í 6. B í MR í gær
þegar DV hitti þær í kennslustofunni
sinni þar sem þær biðu eftir kennar-
anum sem ekki kom. Það er engin
furða að þær óttist að tapa niður þess-
ari önn. Þær eru nefnilega væntanlegir
stúdentarivor.
ur ekki verið rétt að þessu staðið af
hálfu fjármálaráöuneytisins og
menntamálaráöuneytisins.
Þetta er ósköp ömurlegt ástand. Það
er gefið mál að kennarar gera þetta
ekki hlæjandi.
Við héma vonum öli að við eigum eft-
ir að sjá kollega okkar eftir nokkra
daga,” segir Sigurlaug og bætir við:
„Það eru fleiri sem þurfa að sýna um-
hyggju fyrir skólakerfinu og nemend-
um en kennarar. Sú skylda hvílir á
fleiri herðum”.
APH
„Okkur finnst eins og þetta eigi ekki
eftir að standa lengi. Guðni hefur að
minnsta kosti ekki gert neinar ráðstaf-
anir.”
Þær sögðu einnig að þetta ástand
kæmi misjafnlega niður á bekkjum.
Einn bekkur hefur næstum fulla
kennslu en annar nær enga.
-APH.
„Þaö hafur ekki verifl staflið rótt afl
þessu af hálfu rófluneytanna," segir
Sigurlaug Bjarnadóttir.
DV-mynd GVA.
„VIUUM EKKI
TAPA ÖNNINNI”
Stúlkurnar í 6. B óttast að þœr missi af önninni.
DV-mynd GVA.