Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Side 13
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985. 13 Þessa hefmsog annars Thorsten Holmkvist á skyggnilýsingu hjá Sálarrannsóknaiélaginu „Því miöur, vinur, engar spurn- ingar. Eg hef slæma reynslu af blaöamönnum. Þeir hafa aldrei rétt eftir. — Nei, bíddu aðeins. Ég sé að þaö stendur miðaldra kona fyrir aft- an þig. Hún segir mér að þú hafir orðið að ljúga þig út úr vandræðum í 10 ára bekk. Er það rétt?” Nei, útilokaö. „Allt í lagi, þú manst þaö ekki nú en bíddu þangað til þú ert kominn heim og ferð að rifja þetta upp, þá veit ég að þú manst eftir þessu. Konan segir ekki ósatt.” Þannig lauk viöskiptum blaða- manns við miðilinn Thorsten Holm- kvist á fundi Sálarrannsókna- félagsins um síðustu helgi. Þar aö- stoðaöi miðillinn gesti viö aö rifja upp liðnar stundir úr lifi þeirra, allt aftur á blómatíma Míkeumenningar- innar á Krít. 1 augum efasemdarmanns lítur skyggnilýsingin út eins og vel skipu- lagt prógramm. Hraði og viðstöðulaus svör skipta miklu máli. Eitt já á réttum stað og næsta spuming á reið- um höndum. Nei við spumingu kallar tafarlaust á svariö: „þu vilt ekki viöurkenna það nú en gefðu þér tíma tilað hugsa málið. ”—Næsti! 150 manns, ef þeir sýni- legu eru taldir En vísindi eru ekki til að hafa í flimtingum, því vísindi eru það. Miðilsfundir hafa í áratugi laðað að trúaða og vantrúaða í leit að sönn- unum fyrir lífi eftir dauðann. Sú var tíð að ritstjóri útbreiddasta blaösins, dáðasti rithöfundurinn og áhrifa- ríkasti kennimaðurinn lögðust á eitt um aö kynna forfeðrum okkar hin nýju vísindi í upphafi aldarinnar. Æ síðan hefur spíritismi í ótölulegum afbrigöum verið vinsælasta sér- viska, og stundum skemmtun, Is- lendinga. Fundurinn um síðustu helgi er enn ein sönnun þess að trúin á lífið fyrir handan á sér marga fylgjendur. Þar vöru mættir um 150 manns ef þeir sýnilegu eru einir taldir. Aköfustu stjómmálamennimir hafa ekki gert beturivetur. GK. Thorsten Holmkvist skyggnist eftir framliönum i hópi gesta. Fjölmenni var ð fundinum og nœr almenn ðnœgja meö „svörunina" hjð miðlinum. vERO A LADABIl LADA 1200 - i LADA 1500 STsATIÍ LADA SPORT LADA STATÍOM K 213.000 260.000 KR. 408.000 KR 215.000 Goskynjnng fnl Sanitas BILASYNING LAUGARDAG KL. 10-17 SUNNUDAG KL. 13-17 38600 39230 Verkstæði Söludeild 39760 31236 Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf Suðurlandsbraut 14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.