Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 14
I Hætta er ð þvi að þróunin í framtíðinni verði öfug við það sem sést é þessari mynd. ' Stofurnar og tækin verði æ fínni en við sjálf hins vegar andlegir öskuhaugar. DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985. NOKKRAR KANNANIR Á ÁHRIFUM OFBELDIS í KVIKMYNDUM: VERÐUM VK) Æ OFBELDISHNEIGÐARI? Christopher Mahan frá Fairport í New York dó 2. mars á síðasta ári eftir aö hafa leikiö sér í rússneskri rúllettu eins og hann hafði séð í kvikmyndinni Hjartarbananum (The Deer Hunter sem sýnd var í íslenska sjónvarpinu um síöustu helgi). Hann var einmitt nýbúinn að horfa á myndina í útsend- ingu sjónvarpsstöðvar. Atvikið gerðist í veislu sem Christopher hélt heima hjá sér þegar foreldrar hans voru ekki heima. Pilturinn var áhugasamur um kvikmyndir og leik og að sögn hafði hann gaman af að horfa á ofbeldiskvik- myndir. Hann hafði drukkið nokkuð og fór í svefnherbergi foreldra sinna þar sem hann fann skammbyssu föður síns. Hann setti í hana eitt eða fleiri skot, kom fram og sagðist vera að leika hjartarbanann. Svo skaut hann sig. Hjartarbaninn mun hafa komiö af stað 35 svipuðum stælingum á atriðinu í myndinni í Bandaríkjunum sem leiddu í 31 tilviki til dauða. Allt hafa þetta verið karlmenn sem hafa skotið sig og helmingur þeirra hefur verið undir 18 ára aldri. Til allrar hamingju hefur sýning Hjartarbanans ekki haft svipuð áhrif á Islandi og í Bandaríkjunum enda andinn kannski annar og feður ekki almennt með skammbyssur undir koddanum. En nóg hefur framboðiö og eftirspumin á ofbeldis- og klám- myndum verið á íslenskum mynd- bandaleigum til að Kvikmyndaeftir- litiö hafi tekið til hendinni og hreinsað vænan skammt út af leigunum. Fréttaskjár og... I kjölfar þeirrar byltingar, að menn geta leigt sér myndir úti í búð og spilaö þær heima hjá sér, hefur fylgt mikil umræða um hver munur sé á myndum á myndbandi og í kvik- myndahúsum. Hvaða raunveruleg hætta stafi af því að hið óæskilega of- beldis- og klámefni gangi kaupum og sölum. Bent hefur verið á að horft er á vídeó á venjulegum sjónvarpsskjá, þeim sama og sýnir almennar fréttir, í faðmi f jölskyldunnar þannig að notkun- vídeóefnisins er mjög sambærileg við sjónvarpsgláp almennt. Sumir óttast að þessi ruglingur hafi sérlega slæm áhrif á börn sem ekki hafa náö tánings- aldri. Algengt er að foreldrar leyfi börnum • að horfa á kvikmyndir sem koma í sjónvarpi seint að kvöldi. (Hve mörg skyldu hafa fengið að horfa á Hjartar- banann?) Astæða er til að ætla að ákaf- lega mörg böm fái að horfa á full- orðinsvídeómyndir með foreldrum sinum. Einn möguleikinn í viðbót sem gefst á vídeóinu heima en ekki í kvikmynda- húsunum er að hægt er að skoða aftur og aftur viðbjóðsleg atriði og hugsan- lega úr öllu samhengi við verkið í heild. Þaö er eitt sjónarmiðið á bak við það að vera strangari gagnvart myndum á vídeóspólum en í kvik- myndahúsum. Það hve auðvelt er fyrir böm að komast i vídeómyndir veldur mörgum áhyggjum. Bömin eru fljótari að læra á ný tæki en foreldrar þeirra. Og þau sem búa í fjölbýlishúsum þar sem er vídeókerfi geta auðveldlega stillt vídeótækið þannig að það taki upp kvikmyndir sem af ásettu ráði eru sýndar í húskerfinu eftir að þau eru farin að sofa. Kannanir Fjölmargar kannanir hafa verið gerðar sem sýna slæm áhrif ofbeldis- og klámmynda. Niðurstöður Victors B. Cline, sem er vel þekktur bandarískur sálfræðingur, voru raktar nýlega í helgarblaömu. Hann segir að næst á eftir fjölskyldunni séu kvikmyndir og sjónvarp mikilvægust fyrir þroska barna. Ef fjölskyldan vanræki hlut- verk sitt við að ala upp og veita böm- unum aðhald aukist vægi kvikmynda og sjónvarps. Hann segir að finna megi mörg dæmi um það að kvikmyndir hafi orðið ungu fólki fordæmi til óhæfu- verka. Hann segir að það sé enginn vafi á því að sjónvarp og kvikmyndir kenni oft beinlínis aðferðir við ofbeldi. Það að barn sé öruggt og elskað þýði ekki sjálfkrafa aö þaö sé í minni hættu. Á bak við þá fullyrðingu Cline eru einföld rök: Ef við teljum jákvæðar myndir uppbyggjandi hljótum við einnig að verða að viðurkenna að sora- myndir brjóta niður. Það sem átta ára barn sér í sjónvarpi segir Cline skipta máli bæði samstundis og þegar þaö er orðið eldra. Til eru margar karmanir sem styðja það. Það verða allir fyrir áhrifum sem horfa á svona efni, segir Cline. Hann segir aö þaö eigi einnig viö um þá sem starfa við kvikmyndaeftirlit. Það verði aö skipta um eftirlitsmenn reglulega. Hann heldur því fram að hann gæti vanið hvem sem er við að horfa á barnaklám með ofbeldisívafi þannig að hann hefði fljótlega ekkert sérstakt viö þaö aö athuga. Tæknin er nefnd flooding og byggir á því að sýna viðkomandi mikið magn af ákveðnu efni. Brátt verður hann ónæmur. Þessi aðferð er notuö til aö lækna fólk af þráhyggju. Ein spuming sem Cline varpar fram er í hve miklum mæli ofbeldisklám leiði til aukins umburðarlyndis meö ofbeldi gagnvart konum í samfélaginu. Cline heldur því fram að reynslu þeirra sem orðið hafa fyrir áhrifum af odbeldis- og klámfengnu efni megi skipta í fjögur stig. Fyrst laðast maður að efninu, svo verður maður háður því, þá ónæmur fyrir því og lokastigið er að framkvæma eitthvað svipað í veruleik- anum. Cline segir að kynferðisleg brenglun sé lærð en ekki meðfædd. Hann segir að myndir af þessari gerð hafi það alvarlegar afleiðingar fyrir þjóðfélagið að eölilegt sé að hefta það nokkuð sem leyft er að sýna. Hann segir að í kvikmyndum almennt þurfi nýjar hetjur og fyrirmyndir meö önnur og jákvæðari viðhorf. Tilraunir á fullorönum Ed Donnerstein og Daniel Linz viö háskólann í Wisconsin hafa gert tilraunir á hópum nema úr eigin háskóla. Þeir hafa sýnt þeim mis- munandi fjölda ofbeldismynda mis- munandi lengi og síðan á marga ólika vegu metið það hve þeir vöndust myndunum og uröu tilfinningalausir fyrir þeim. Þeir spurðu nemendur bæði hve mikið ofbeldi þeir töldu vera að finna í myndunum og um viðhorf þeirra til þess. Afstaöa nemanna til of- beldis í raunveruleikanum var einnig mæld og það var ljóst af niður- stöðunum að menn verða greinilega 'smám saman tilfinningalausari af því að horfa á ofbeldisefni. Donnerstein og Linz halda þvi einnig fram aö jafnvel þó svæsnasta ofbeldið og ofbeldis- klámiö væri hreinsaö út á myndbanda- markaðnum þá væri enn að finna sama grundvallarboðskap í mörgum öörum myndum, í efni sem engum dettur í hug að hrófla við. Nýjung í rannsókn þeirra Donnerstein og Linz er sú að þeir rannsökuðu bæði karlkyns- og kvenkynsnema. I ljós kom að áhrif voru mjög svipuö meðal kvenna og karla með nokkrum undantekningum. John Wayne — James Bond Þeir Rowell Huesmann, sál- fræðingur við háskólann í Illinois, og dr. Riva Bachrach, yfirmaður Kibbutz Child & Family Clinic í Tel Aviv í Israel, hafa velt fyrir sér áhrifum ofbeldis á böm í mörgum löndum. Niðurstöður þeirra eru að árásarhneigð hefur enga eina ástæöu heldur koma margir þættir til. Hins vegar er góð ástæða til að telja að of- beldi í f jölmiðlum leggi sitt af mörkum til að gera menn ofbeldissinnaöri, ekki bara samstundis heldur einnig ef til lengri tíma er litið. Bein áhrif ofbeldis í fjölmiðlum segja þeir svo greinileg að liggi í augum uppi. I nútimanum sé hægt að finna djúptækar hugarfars- breytingar. Rannsókn sem Huesmann tók þátt í sýnir að þeir afbrotamenn sem horfðu mikið á ofbeldi á barns- aldri hafa að meðaltali mun lengri af- brotaferil á fertugsaldri en aðrir. Þá má einnig sjá að börn fólks sem hefur alist upp við að horfa mikið á ofbeldis- myndir eru árásargjarnari. Einnig er það staðreynd að árásarhneigt bam horfir meira á ofbeldi í fjölmiðlum en önnur böm og við það verður það enn ofbeldissinnaðra. Þegar til lengri tíma er horft er það samt ekki sérstaklega hið blóðugasta og viðbjóðlegasta of- beldi sem hefur mest að segja að mati Bachrach. Heldur eru það stórir skammtar af hetjutengdu ofbeldi sem almennt er viðurkennt. Dæmi um það eru myndir meö John Wayne eða James Bond-myndir. Dr. Bachrach segir frá sérstökum aöstæðum á samyrkjubúum i Israel. Þar hafa böm varla nokkurt tækifæri til að sjá nokkurt ofbeldi yfirhöfuð og eru einnig í félagahópum þar sem gilda ströng lögmál. Þessi böm sýna engin áhrif frá ofbeldi í fjölmiölum. Annars staðar í Israel, utan samyrkju- búanna eru aðstæður hins vegar aðrar og þar sýna böm greinilega áhrif. frá ofbeldi í f jölmiðlunum. Viðbrögðin við þessu hafa verið að víðs vegar í heiminum hafa verið settar hömlur við leigu ákveðinna vídeómynda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.