Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985.
15
Eins og mörg önnur fyrirbæri mann-
anna þá taka orð einhvers konar tísku-
sveiflum. Þessi orð eru þá notuð mjög
mikiö í daglegu tali í nokkum tíma.
Síðan verður ofnotkun þeirra til þess
að merking þeirra slævist og önnur
koma ístaðinn.
Er þess skemmst að minnast þegar
stjómmálamenn fóm að harma alla
skapaða hluti í vetur.
Enn má nefna orðið alfarið. Það er
orðið að nokkurs konar stöðutákni
þeirra sem telja sig hafa eitthvaö til
málaaöleggja.
Hlutir verða þá alfarið góðir eða
slæmir og allt þar á milli.
Enginn má skilja orð mín svo að
þetta sé eitthvað sem menn ættu endi-
lega að forðast. Þetta er einfaldlega
svona og ekki gott við því að gera. Það
er ekkert athugavert þótt menn harmi
orðna hluti eða séu alfarið á móti
einhverju. Hitt er auðvitað verra ef
önnur orð falla í gleymsku vegna
þessa. Fjölbreytni í orðavali hefur
enda verið talið prýði á góðu máli.
Sögnin að pæla í merkingunni að
hugsa er t.a.m. gott og gilt orð en
ofnotkun þess leiðir af sér að önnur orð
týnast.
Tískuorð unglinga
Oft em þessi orð bundin við ákveðna
hópa. Má þar nefna íþróttafréttamenn
sem dæmi. Oft og iöulega ganga sömu
orðatiltækin aftur í hverri blaðagrein-
inni á fætur annarri.
Unglingar eiga líka sín tískuorð.
Ami Böðvarsson safnaði saman
slatta af orðum úr orðaforða unglinga
og birti í Samvinnunni árið 1971 undir
nafninu Hrifsað úr orðabelg. Á þessum
lista kennir margra grasa og eru orðin
flokkuð eftir merkingarsviðum.
Eg hef gert mér það til gamans að
láta nemendur mína sjá þennan lista.
Og það kemur á daginn að þeir kannast
ekki við nema lítinn hluta þessara
orða.
Þannig virðast ný orð í orðaforða
unglinga hverfa fljótlega þótt sum nái
fótfestu og megi teljast sígild.
Um tökusagnir
Tökuorð í íslensku em að sjálfsögöu
fjölmörg. Nýir hlutir og nýjar hug-
íslensk tunga
Eiríkur
Br ynjélfsson
skrifar
myndir þurfa orð og er þá oft gripið til
þess að nota erlent orð í breyttri mynd.
Flest þessara orða em sjálfsagt
nafnorð, færri sagnir og nokkur
lýsingarorö. Reyndar hefur þetta
aldrei verið á Islandi en tajningar
tökuorða meðal annarra þjóða sýna
þessa niðurstöðu.
Tökusagnir em því ekki mjög
margar. En fleira er athyglisvert
varðandi tökusagnir og verður hér
f jallað um beygingu þeirra.
Sagnimar að brúka og ske em
gamlar tökusagnir en fíla, flippa og
sniffa em ungar í málinu.
Allar þessar sagnir eiga það sam-
merkt að beygjast veikt, þ.e. þær bæta
við sig -ði í þátíð. Beygjast sem sagt:
brúka — brúkaði — brúkað
ske — skeði — skeð
ffla — fílaði — fílað
flippa — flippaði — flippað
sniffa — sniffaði — sniffað.
Engum dettur í hug að beygja fíla
eins og lita: og segja:
fíla — feil — filum—filið.
Eöa að beygja flippa eins og bresta:
flippa — flapp — fluppum — floppið.
Samt væm þessar beygingar leyfi-
legar samkvæmt málfræðireglum.
Tökusagnir em þannig fáar og
beygjastallareins.
Annað eiga þessar sagnir sameigm-
legt en það er að vera taldar óæskilegir
gestir í íslensku máli.
Yfirleitt virðast tökusagnir eiga
erfiðara uppdráttar en aðrir orð-
flokkar og ef til vill skýrir það fæð
þeirra.
Sögnin að ske hefur sérstöðu. Hún
virðist hafa unnið sér það helst til
óhelgis að enda á -e en það gerir engin
önnur sögn í íslensku.
I Islenskri málfræði Bjöms Guð-
finnssonar stendur þessi setning:
Sögnin að ske er útlendur slæðingur og
vart rithæf.
Þessi útlendi slæðingur nam hér land
fyrir að minnsta kosti 400 árum og lík-
lega hefur jafnlitil sögn aldrei orðið
fyrir jafnmúdu andstreymi. En þrátt
fyrir allt er ekki annað aö sjá en aö hún
lifi enn góðu lifi. Og þaö sem meira er,
hún færir sig upp á skaftið.
Nú heyrir maður sagt: Þetta skeði
fyrir mig. Að sjálfsögðu em þetta áhrif
frá því þegar sagt er: Þetta kom fyrir
mig.
Svona geta lítil dauöadæmd orð
hefnt sin.
Laugrarciag frá lcl. 10-4 og sunnudag frá kl. 1-5
bivnclar veröa lybb araeröirnar ai:
Mazda 323 Mazda 626
Mazda ESeries Mazda TSeries HnR XmYKlL/ LAjn Mazda 929i
Sérstaklega kynnum við nýjan MAZDA 929 EGI með nýrri 120 hestafla vél
með tölvustýrðri beinni innspýtingu. Ennfremur sýnum við úrval af notuðum
MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð.
Gerið ykkur dagamun og KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA,
og auðvitað verður heitt á könnunni.
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99