Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 2
2
DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985.
Suðurnesjamenn
ísamvinnu við
Færeyinga um
mikla fram-
leiðsluupp-
byggingu?
Krabbafætur búnir
til i Sandgerði ?
Um þessar mundír er verið að
kanna möguleika á samstarfi Suður-
nesjamanna og Færeyinga varðandi
ýmiss konar framleiðsluuppbygg-
ingu. Meðal annars er um að ræða
hugsanlega framleiöslu á svokölluöu
surimi og gervi-krabbafótum úr
ódýrumfiski.
TUtekinn aðili í Sandgerði hefur
sérstaklega sýnt áhuga á þessari
framleiðslu. Færeyingar eru í þann
mund að hefja sams konar starf-
semi. Þeir byrja á krabbafótum í
nýrri verksmiðju í KoUafirði næsta
haust. Suðurnesjamenn eiga þess
kost að nýta sér þá þekkingu sem
Færeyingar hafa aflaö sér.
Nú þegar eru hafnar tilraunir á
Rifi á SnæfeUsnesi í framleiðslu á
surimi. Það er í samvinnu við
Rannsóknastofnun fiskiönaöarins
og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Surimi er sérstaklega frá genginn
mamingur úr fiskafgöngum og ódýr-
um fisktegundum. Þetta er japönsk
uppfinning. Surimi er síðan notað í
aUs konar rétti sem hrifa nú meðal
annars Bandaríkjamenn.
Eitt af því sem framleitt er úr
surimi eru fyrmefndir krabbafætur
sem em með verðmætari réttum úr
þessu hráefni. I Sandgerði er nú að
verða tilbúiö hús sem hugsanlega
verður tekið til þess að hýsa krabba-
fótaverksmiðju. Til greina kemur að
Færeyingar leggi henni tU surimi í
fyrstu. Það framleiða þeir einkum í
tveim verksmiðjutogurum.
Hugmyndirnar að samvinnu
Suöumesjamanna og Færeyinga um
þetta og fleira á sviði framleiðslu,
kviknuðu í heimsókn Jóns Unndórs-
sonar iðnráðgjafa tU Færeyja rétt
fyrir síöustu áramót. Þar komst
hann í samband við Þormóð Dal sem
tU skamms tíma var forstöðumaður
Föroya iönaðarstovu en rekur nú
ráögjafafyrirtæki.
Þormóður hefur þegar komiö hing-
að tU lands i framhaldi af þessum
kynnum og sýnt mikinn áhuga á að
stuöla að samstarfi við Suðumesja-
menn. Talið er að báðir aðUar geti
lagt ýmislegt af mörkum. Þá er
einnig haft í huga að í slíku samstarfi
gætu orðið mikil not af svokölluðu
norð-vestur samstarfi innan Norður-
landaráðs og Norræna iðnþróunar-
sjóðnum.
HERB.
Fjórir bréfberar
áminntir:
Einn
„rekinn”
-tveir
gengu út
Uppákoma bréfbera í Austurstræti í
síðustu viku hefur dregið dilk á eftir
sér. Fjórir bréfberar hafa fengið
áminningu frá póstmeistara. Starfs-
samningur við einn þeirra hefur ekki
verið framlengdur. Honum lauk nú um
mánaðamót. Þessi bréfberi er því ekki
lengur við störf. Tveir aðrir bréfberar
gengu þegar úr staifi í gærmorgun er
þeir vom áminntir af póstmeistara.
t síðustu viku voru bréfberar með
uppákoinu í Austurstræti þar sem þeir
voru að mótmæla kjörum sínum. Þar
dreifðu þeir m.a. bæklingum í leyfis-
leysi. „Eg hef fengið lögregluskýrslu
um málið. Almenna bókafélagiö kæröi
þetta vegna þess aö bréfberamir
dreifðu bæklingi frá því,” segir Jón
Skúlason póst- og símamálastjóri við
DV.
Um það hvers vegna starfssamn-
ingur eins bréfberans var ekki fram-
lengdur segú- Bjöm Bjömsson póst-
meistari: „Hannhefuráðurgerstbrot-
legur í starfi og nú hefur það enn einu
sinni gerst. Þess vegna var ákveðið að
frainlengja ekki staifssamning hans
semlauk31.mars.”
APH.
Utanríkisráðuneytið:
„Ekkívæsirum
Malagafangann”
„Þótt drengurinn sé grunaður um
innbrot og þjófnað er að sjálfsögöu
óviðunandi að ekki sé búiö að rétta í
málinu eftir heila 8 mánuöi. Það brýt-
ur meira að segja í bága við spænsk
lög,” sagði embættismaöur í utanríkis-
ráðuneytinu um málefni Malagafang-
ans.
„En það á ekki að væsa um hann í
fangelsinu. Við höfum haft milligöngu
um peningasendingar til hans, bæði frá
aöstandendum og óskyldum. Þetta er
maður sem á eftir óuppgerðar sakir
hér á landi. Eg held að hann sé að bera
saman aðstæður á Litla-Hrauni og
þessu spænska fangelsi og honum líkar
bersýnUega ekki sá samanburður,”
sagði embættismaðurinn.
I kjölfar skrifa DV um ömurlega
aðstöðu þessa íslenska fanga á Malaga
hafa fjölmargir einstakUngar tjáö sig
reiðubúna til aö láta fé af hendi rakna
svo hægt sé aö kaupa fangann út. Sjálf-
ur segir Malagafanginn í bréfum, er
borist hafa til DV, aö veröið sé 100
þúsund krónur. Síðast þegar fréttist
hafði íslenska söfnunarfólkinu tekist
að öngla saman 60 þúsund krónum.
-EIR.
Hjalti Garöarsson, bilstjóri hjó Steypustöðinni hf., afhendir Þresti Ólafssyni, framkvœmdastjóra Dags-
brúnar, sögulegt bróf i gær. úrsögn 31 bíistjóra Steypustöðvarinnar hf. úr Dagsbrún. Ástæðan: „Loforð
um kjarabætur svikin."
DV-mynd: Kristján Ari.
Bflstjórará steypubflum Steypustöðvarinnar hf.:
— „Dagsbrún hefur gleymt okkur. Félagið hef ur brugðist okkur”
SÖGÐU SIG ÚR DAGSBRÚN
„Skil óánægju
bílstjóranna”
„Við hjá Dagsbrún erum mjög
óhressir meö þann hægagang sem
verið hefur í viðræðunum við Vinnu-
veitendasambandið út af þessu máli.
Og ég skil óánægju bílstjóranna mjög
vel.”
Þetta sagði Þröstur Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, í gær er
hann tók viö úrsögn bílstjóra steypubíl-
anna hjá Steypustööinni hf. úr Dags-
brún.
Þröstur sagði aö Dagsbrún væri að
semja viö báðar steypustöðvarnar um
kjör bílstjóranna og seinagangurinn
stafaði mest af miklum tíma sem heföi
farið í að reikna út hvernig ákveðið
bónusfyrirkomulag kæmi út fyrir bíl-
stjórana.
Hann sagði ennfremur að Vinnu-
veitendasambandið hefði komið með
tillögu um bónusinn í stað mikilla
almennra kauphækkana.
„En það hefur sýnt sig að bónusinn
kemur út fyrst og fremst sem sumar-
bónus. Þá er mest aö gera hjá steypu-
stöðvunum. Bónusinn nýtist því föstum
bílstjórum mjög illa.”
„Þá kemur bónusinn miklu verr út
fyrir bílstjóra Steypustöðvarinnar hf.
en BM Vallá. Framleiðnin er meiri hjá
BM Vallá og annatíminn lengri.
Það var því fyrst og fremst meö
hagsmuni bílstjóra Steypustöðvar-
innar hf. í huga að við gátum ekki sam-
þykkt aö sama bónusfyrirkomulagiö
gilti fyrir báöar stöðvamar.
„Nú er líka svo komið að lögð er
áhersla á almennar kauphækkanir
fyrir bílstjórana og minna rætt um
bónusinn.
En boltinn er hjá vinnuveitendum
núna. Eg bíð eftir svörum viö ákveðn-
um spumingum minum frá þeim,”
sagöi Þröstur Olafsson.
-JGH
Steypubílstjórar Steypustöðvar-
innar hf. sögðu sig úr Dagsbrún í gær-
dag og sóttu síðan um inngöngu í
Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
„Dagsbrún hefur gleymt okkur. Hún
hefur brugðist okkur,” sagði Hjalti
Garöarsson, starfsmaöur Steypu-
stöðvarinnar, í samtali við DV á skrif-
stofu Dagsbrúnar í gær.
Það var hann sem afhenti Þresti
Ölafssyni, framkvæmdastjóra Dags-
brúnar, listann með nöfnum bílstjór-
anna sem sögðu sig úr félaginu. Aöeins
einn bílstjóri skrifaði ekki undir.
I bréfinu stóö meöal annars:
„Astæðan fyrir þessu er sú að við
teljum að öll þau loforö, sem okkur
voru gefin um kjarabætur í haust, hafi
veriðsvikin.”
„Við fórum í aðgeröir síðastliðið
haust. Hófum þá að aka í hægagangi.
Okum á þetta 20 til 30 kílómetra hraða.
Og þessar aðgerðir virtust vera áhrifa-
ríkar,” sagði Hjalti.
„Þær leiddu tii þess að skriður komst
á málin. Þröstur Ölafsson kom
uppeftir og sagði að ef aðgerðum yröi
hætt yrðum við settir á oddinn hjá
Dagsbrún.
Okkur var lofað margra flokka
hækkun og áttum líka að fá bónus.
Þetta átti að liggja fyrir 20. október
síðastliðinn. Niðurstaöan núna er sú að
ekkert hefur gerst, að okkar áliti.
Það er líka alveg út í hött á hvaða
launum við erum hafðir. Við erum að
keyra stóra bíla, 20 til 30 tonna. Komi
eitthvað fyrir berum við bílstjóramir
ábyrgðina.
Samt erum við hafðir undir lág-
markstaxta. Við erum á lægra kaupi
en menn sem eru að leggja steypuna á
gangstéttir, líka á mun lægra kaupi en
þeir menn sem vinna í byggingar-
vinnu.
Eitt sinn vorum við að aka steypu í
byggingu. Þar voru 15 ára strákar í
sumarvinnu aö steypa. Þeir vom á
miklu hærri launum en viö. Þetta
gengur ekki lengur, við erum á alltof
lágum launum miöaö við þá ábyrgð
semhvílirá okkur.”
Það kom fram hjá Hjalta að mjög
örar mannabreytingar væru hjá bíl-
stjórum steypubíla stöðvarinnar.
„Menn em þama eins og farand-
verkamenn. Flestir stoppa viö aðeins í
stuttantíma.”
— Getur Verslunarmannafélag
Reykjavíkur gert eitthvað fyrir
ykkur?
„Árangurinn getur ekki orðið minni.
Þaö sýnir sig líka að Steypustöðin er
ljómandi ánægö með að Dagsbrún
klúöri öllu fyrir okkur.”
-JGH
Eftir hádegi i gær varð árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar. Þar rákust á bilar sem komu úr vestur- og norðurátt.
Talið er að sá er kom úr norðurátt hafi ekið yfir á rauðu Ijósi. Ekki urðu
alvarleg slys á fólki. ökumenn tveggja bifreiöa voru fluttir á slysa-
deild en fengu að fara heim skömmu síðar. Tveir bilanna voru
óökufærir eftir áreksturinn.
-ÁE. DV-mynd S.