Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 12
12 DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985. Jón Baldvin: „Sá sem hefur fleng- riflið um öræfi íslands mefl keng- fullum Skagfirðingi en náð háttum hjá vestfirskum heima- sætum afl lokum, hann veit hvafl hamingja er." Steingrimur: Ef eg vil lyfta pinu mer litið láta upp mer sýnast að ég ráfl einhverju í þessu landi þá set eg Wagner Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ogfleiri mektarmenn Guflni rektor snýtti sér hraustlega þegar Jón Baldvin fór að tala um i hvað hann heffli haft fallega Ijósa lokka í barnæsku. ff „Skylt er skeggiö hökunni eins og austurríska frjálsíþróttakonan sagði þegar hún var búin aö raka sig,” var eitt af spakmælunum sem Omar Ragnarsson brá fyrir sig í mælsku- keppni í Menntaskólanum í Reykjavík á miövikúdagskvöld. Keppendur voru auk Omars: Jón Baldvin Hannibalsson, Stefán Bene- diktsson og Steingrímur Hermanns- son. Þeir eiga þaö sameiginlegt aö vera ailir gamiir nemendur í Mennta- skólanumí Reykjavík. Viðfangsefnin sem þeir mælsku- kappar fengu voru af ýmsum toga. Framlag Omars um austurrísku íþróttakonuna tengdist til dæmis um- fjöllun hans um nýafstaöið þing Noröurlandaráös. Jón Baldvin lenti í því að ræöa um efnið: Eru Islendingar hamingjusöm þjóð. Steingrímur Hermannsson fékk efnið: Nektamýlendur. I annarri umferð fengu þátttakendur þaö verkefni aö tala í tvær mínútur meö einhverju ákveönu efni og svo í aðrar tvær á móti því. Stefán Bene- diktsson talaði þá um Svíþjóð, Omar Ragnarsson fékk Húsið á sléttunni, Jón Baldvin kvensemi, Steingrímur Hermannsson dró efnið Kennarar og hlógu þá margir. I síöustu umferö héldu keppendur bannorösræðu. Þá fengu þeir ákveöiö efni en máttu ekki nota viss orð í mál- flutningi sínum. Omar Ragnarsson var af dómnefnd talinn bestur mælskumaður þeirra félaga þetta kvöld. Hér á eftir fylgja nokkrar glefsur úr málflutningnum. Guörún Helgadóttir var meðal þeirra sem taka áttu þátt í keppninni en gat ekki mætt. Ómar Ragnarsson um þing IMorðurlandaráðs: „Munurinn á Páli Péturssyni frá Höllustööum og gleðikonu er sá aö Páll kallarhátt. Gleöikonanháttarkall.” „Viö erum sammála um það, biskupinn yfir Islandi og ég, aö þaö á að leggja gleðikonur niður. Viö eigum aö leggja það niöur fyrir okkur...” Jón Baldvin í ræðu um það að íslendingar séu hamingju- samasta þjóð í heimi: „Islenskir unglingar skera sig úr unglingum af öörum kynþáttum fyrir þær sakir einkum að þeir eru óhæfir með öllu til ásta vegna þess að þegar til kastanna kemur eru þeir venjulega svo ofurölvi aö þaö eina sem þeir geta skírskotaö til er til móðurástar hins kynsins.” „Annaö dæmi um hversu lygnir Islendingar eru er aö þeir halda því fram í þessari könnun (Skoðana- könnun Gallups og Hagvangs innsk.) aö þeir geri ströngustu kröfur í uppeldismálum til vinnusemi og aga. Hér í þessum skóla er ströngum aga haldiö uppi þannig að menn eru hér reknir fyrir aö gera það sem hinir stóru í þjóðfélaginu fá aö minnsta kosti smáriddarakross Fálkaoröunnar fyrir.” Vinnan og hamingjan: „Islendingar hafa aö sjálfsögöu alltaf fyrirlitiö það sem heitir vinnu- semi og agi. Þjóðarmottó okkar er: Skítt með alla skynsemi en gáfur eru gull. Hiö íslenska séní er því aðeins séní aö hann sé að vísu viö fyretu sýn ákaflega gáfaður en það liggi alveg í augum uppi aö þessar gáfur muni aldrei hvorki fyrr né síöar nýtast hvorki honum né neinum öörum. Með öðrum orðum hann þarf aö vera stór- gáfaðuraumingi.” Um hamingjuna er annars þaö aö segja að hann afi minn sem var Strandamaöur fór oft meö vísukorn f yrir munni sér sem var svona: Aö sigla fleyi, sofna á meyjararmi, ýtarvitayndibest og aö teygja vakran hest. „Aö teygja vakran hest. Um þaö er bara þaö aö segja aö sá sem hefur flengriöið um öræfi Islands meö keng- fullum Skagfirðingi en náö háttum hjá vestfirskum heimasætum að lokum. Hann veit hvaöhamingjan er.” Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um nektar- nýlendur: „Eg fer nú að trúa því þegar ég stend og lít yfir þennan hóp að Danir hafi rétt fyrir sér þegar þeir segja í dag aö for- sætisráðherra Islands sé „Ikke meö sinefuldefem”. Eina bók man ég vel, hún hér Elements of public speaking og maöurinn hét McFarlaine sem skrifaöi hana. Hann sagði. Regla númer eitt, tvö, þrjú og fjögur er: Láttu aldrei draga þig upp í ræðustólinn til aö tala um eitthvaösem þú þekkir ekki. Nú er ég að brjóta þetta boðorð meö því aö koma hingað. Eg hef aldrei farið í nektarnýlendu. Ég get kannski ekki neitað því aö mig hafi ekki stundum langaö.” Stefán Benediktsson með og á móti Svíþjóð Með: „Þaö sem ég dái mest viö Svía er hve þeir eru óskaplega nákvæmir í öllu sein þeir gera. Eg held til dæmis aö þaö sé ékkert land í heiminum þar sem menn geta fengiö nánast hvaöa þjónustu sem er, jafnvel þó þeir vilji hanaekki.” Móti: „Ég held að þaö sé nánast eins og aö búa í fangelsi að búa í landi þar sem er búið að skipuleggja lif manna svo nákvæmlega aö þeir eiga þess engan kost að gera neitt sem talist getur verið að eigin frumkvæöi. Meira að segja þegar menn detta í það gera þeir það ekki nema undir mjög ströngu eftirliti yfirvalda. Þau stjóma því nánast hvað menn drekka og hvenær þeirdrekkaþað.” Ómar Ragnarsson talar með og á móti Húsinu á slétt- unni Með: „Þaö má segja um Húsið á sléttunni. Því meira sem grenjaö er yfir sjón- varpinu því betra. Þetta segja allir sál- fræöingar.” Móti: „Þetta eru nú öll rökin. Gagnsæ rök eins og gjaman em viöhöfö þegar menn eru að reyna aö dylja mál á fræðilegan hátt og beita til þess alls konar frösum sem fundnir eru upp í fræðibókum. Eins og þessi þvættingur aö þaö sé eitthvaö sálfræðilega nauðsynlegt aö horfa á svona sjón- varpsþætti. Hver vill vera fyrir framan s jónvarp og láta græta sig og vera miður sín á eftir? ” Jón Baldvin talar með og á móti kvensemi Með: „Eg hef það eftir ekki óviröulegri heimildum en forsætisráðherra ríkis- ins hæstvirtum og einhverjum Mc Fariaine að maður eigi aldrei aö stíga upp í ræðustól og tala um það sem maður þekkir ekki.” „Kvensemi er að sjálfsögöu eitthvert sannasta hrósyröi sem hægt er aö segja um nokkum karlmann. Aö vera kvenhollur hvaö táknar þaö? Það táknar einlæga aðdáun á kórónu sköp- unarverksins.” Móti: „Þaö hefur veriö sagt um Jón Baldvin og hann staöfesti þaö nú rétt einu sinni enn í ræöu sinni áðan. Aö honum láti ákaflega vel aö fara með skmm.” Steingrímur Hermannsson með og á móti kennurum: Með: „Kennarar. Þeir eru ómissandi. Þaö er ekki furöa aö ég væri í þrjár vikur að koma þeim í skólana.” „Auövitaö eiga kennarar að fá laun eins og þeir eiga skilið og miklu meira.” „Við eigum aö verða við þeirra kröfum hverjar sem þær em. Þá er ég ekki bara aö tala um dagvinnuna. Nei. Það á að borga þeim tvöfalda dag- vinnu. Eg kunni ekki við aö ganga lengra en segja aö þeir ættu aö fá fulla dagvinnu greidda eins og verka- maöurinn.” Móti: „Þiö voruö heppin aö losna viö kennarana. Ég get sagt ykkur eins og er aö ég var dauöhræddur að koma hingað niður í menntaskóla. Eg átti fullt eins von á því aö ég yröi skotinn eöa hengdur. Aö vera aö drasla þessum kennarablókum aftur í skólann. Eg verð aö biöja ykkur af- sökunar. Þið veröiö að taka það eins og þaö er. Þegar maður er aö reyna aö stjórna landinu veröur maöur aö gera meira en gott er. Auðvitað heföi þaö eina rétta verið að senda þá alla til Sví- þjóðar. Eöa þá bara í einhverja nektarnýlenduna. Þeir heföu aldrei komiöaftur. Hugsiði ykkur hvaö þetta heföi veriö gaman. Þið hefðuö getaö veriö niöri hjá Skalla daginn út og daginn inn. Allan veturinn.” Ekki sem verst. „Eg lofa ykkur því aö næst þegar kennarablækumar fara í verkfall þá skrifa ég ekki svona bréf. ” Stefán talar um sund og má ekki nota sögnina að synda: „Eina leiöin til aö komast hjá því aö segja. . . er aö tala um landafræði. Sund er þaö kallaö þegar bil skapast milli tveggja landsvæða sem ekki eru landföst.” „Þaö getur verið í mörgum tilvikum aö þessi sund veröi aö þurru landi i fjörum eins og vill verða hér á nokkrum stöðum í kringum Kolla- f jöröinn. Er þá hægt að ganga á milli landa þurrum fótum. En menn geta átt þaö á hættu að verða innlyksa ef menn dvelja of lengi úti og flæðir að á stuttum tíma. Þaö hefur oft komiö fyrir menn þegar þeir hafa hætt á slíkt annaðhvort fótgangandi eöa ríðandi. Þá hafa þeir oröiö að grípa til þess að gera það sem ekki má tala um. Það er aö segja ná sér í bát og róa í land. En því má ekkifala um þaö aö það er yfirleitt þá veriö aö taka eitthvað traustataki sem annar maður á.” Ómar Ragnarsson talar um stærðfræði og má ekki nota sögnina að reikna: „Mér er þaö mikil ánægja aö fá að tala um stæröfræði hér á þessum stað. Því stæröfræöi er þaö próf sem verður mér minnisstæðast úr þessum skóla. Einkunninn varö nú reyndar eftir því. Hún var þess eðlis að próf- dómararnir voru ekki lengi aö------ finna hana út. Eg varð fyrir því óláni eins og sumir aö fara í vitlausa deild og fór í stærð- fræðideild. Því þaö kom í ljós hjá Guöna og fleirum aö þá dugöi best aö kjafta sig út úr. . .”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.