Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Side 19
DV. LAUGARDAGUR 30. MARS1985.
19
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Bílasala í Bandarikjunum 1984:
Heildarsala á bilum (USA) Þaraf bandariskir Innfluttir bilar Söluhœstu aðilar á Bandarikjamarkaði: 10.500.000 7.959.000 2.541.000
GM 4.600.000 43,7%
Ford 1.986.000 18,8%
Chrysler 1.080.000 10,3%
Honda 642.000 6,1%
Toyota 556.000 5,3%
Nissan 483.000 4,6%
AMC 199.000 1,9%
VW (USA) 178.000 1,7%
Mazda 168.000 1,6%
Subaru 157.000 1,5%
Allar aðrar tegundir seldar i USA voru samt.
472.500 eða 4,5% (tekið saman af BÖB).
r
i
New York
Frá Baldvin ö. Berndsen í New York:
Nú fyrir nokkru var haldin í New
York hin árlega bílasýning og var hún
haldin í N.Y. Coloseum.
Þessi sýning hefur verið haldin í 86
ár og ár eftir ár kemur fólk til að skoða
og dást aö bílunum sem prýða allar
f jórar hæðirnar á sýningunni.
Þaö er alltaf viss spenna sem ríkir
þegar svona sýning er haldin því á
sýningu sem þessari gefur aö líta allt
það nýjasta sem bílaframleiðendur
hafa upp á að bjóða á komandi ári. Það
ér alltaf eitthvað nýtt sem þeir bjóða
upp á, til dæmis tölvustýrt digital
mælaborð, ný bremsukerfi, nýjar
vélar og fleira.
Núna eru flestir bílaframleiðendur
að koma með minni vélar í bíla sína, en
bílakaupendur krefjast samt sem áður
sömu aksturseiginleika. Þeir vilja
ennþá hafa þá kraftmikla en um leið
sparneytna.
Þetta hefur leitt til þess aö miklar og
örar endurbætur hafa oröiö á þessum
nýju vélum. Einna fremstir með litla
en kraftmikla bíla eru Oldsmobile, þeir
hafa komið með nýja fjögurra strokka
vél sem gefur 260—300 hestöfl. Þeir eru
samt ekki einir um hituna, því flestir
hinna stóru aöila eru með svipaðar
vélar í smíðum.
Á þessari sýningu sýndu yfir 50
aðilar bíla. Einnig voru um 20 aðilar
sem sýndu varahluti og tæki tengd
þessum iðnaði.
Þeir bílar sem á sýningunni voru
eiga það eitt sameiginlegt að vera bún-
ir betri eiginleikum en fyrirrennarar
þeirra.
Á sýningunni voru bílar frá öllum
heimshornum. Flestir bílanna voru
bandarískir sem er ekki skrýtið þegar
tekið er tillit til þess að bandarískir
bílar eru meö yfir 70% af bíla-
markaðinum í Bandarik junum.
En þarna voru allir stóru aðilarnir
bæöi frá Evrópu og Japan með sína
bíla og skipuöu veglegan sess á sýning-
unni.
Hér á síöunni gefur að líta svipmynd-
ir frá sýningunni, ljósm. BÖB.
BÖB/JR.
Sn«kB»