Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1985, Page 23
DV.LAUGARDAGUR30. MARS1985. 23 menningu, sínu tungumáli og sjálfs- ákvörðunarrétti sínum. Þá styöjum við.” íslendingar meðal vina „En hvað Island varðar þá höfum viö líka sterka möguleika á menning- arsviðinu, og svo efnahagslega og við- skiptalega. Og við komumst ekki hjá því að ræða miklu meira um það í framtíðinni. Islendingar eru meðal vina okkar. Það hef ég alltaf sagt. Þetta er góður vinur sem við höfum hér. Hvað sem Danmörku líður finnst mér að við verðum að byggja upp sam- starfið. Það getur orðið báðum aðilum til mikils góös. Þetta gerist þegar við erum komnir alveg út úr Evrópubandalaginu og eft- ir að Grænland hefur yfirtekið meira af umsvifum ríkisins á Grænlandi.” Skiljum hvor annan „Við getum líka talað um hvalveið- ar! Eg varíveislumeðKristjániLofts- syni í gærkvöldi. Þar borðuðum við hval. Eg er alveg sammála því sem hann sagöi, að þó ég væri sósíaliskur forsætisráðherra á Grænlandi og hann góöur kapítalisti á Islandi, þá skipti „Óvinurinn er hins vegar Greenpeace og sjálfskipaðir trú- boðar umhverfis- verndarsinna." þaö engu máli. Við skildum hvor ann- an. Viö getum vel unniö saman í hval- veiðimálum. Þetta var virkilega gott kvöld. Viö stöndum saman í þessu máli, Grænlendingar, Færeyingar og Islendingar. Ovinurinn er hins vegar Greenpeace og sjálfskipaðir trúboöar umhverf isvemdarsinna. Við getum hlustað á Alþjóða hval- veiöiráðið og sérfræðinga, en ekki á trúboöa Greenpeace-samtakanna.” Kannski vantrúaður prestur Nú hefur hinn nýi fáni Grænlend- inga verið harðlega gagnrýndur. Margir sakna krossins. „Já, það ætti líka kannski að vera krossfáni. Kannski getum við fundið tákn fyrir Norðurlönd, sem þarf ekki endilega að vera kross. Danski fáninn, sem er jú sá eisti — frá 1219 — átti að hafa komið niöur af himnum og í fram- haldi af því hafa allir Norðurlandafán- amir verið með krossi. Á þetta trúi ég ekki. Eg er prestur. En ég er kannski vantrúaður prestur þegar málið snýst um þjóðfána. Eg var formaður fána- nefndar í fimm ár. Ég hef litið á fleiri en500tillögur. Ein tillagan var mjög góð. Það var kona frá Danmörku sem sendi fallega „Ég er prestur. En ég er kannski vantrúað- ur prestur þegar mál- ið snýst um þjóð- fána." mynd af fána með krossi. Hún sagðist hafa séð í draumi að fáninn heföi birst yfir Grænlandi og maður að nafni Motzfeldt heföi tekið á móti honum! Þetta trúi ég heldur ekki á. Mér finnst þessi fáni fallegur. Við notum fánaliti Danmerkur tii aö minna á sambandið við Danmörku. Og þetta tákn sólarinnar á fyllsta rétt á sér, því sólin er jú hinn lífgefandi kraftur sem við þökkum guði fyrir að hafa gefið okkur svo við getum lifað hér á norður- slóðum. Viö erum að þakka skapara okkar fyrir að hafa gefið okkur sólina. Eg gleymi því heldur aldrei að þegar ég var í háskóla þá sagði prófessor einn að krossinn væri ekki sigurtákn, heldur tákn dómsins. Dómsins yfir okkur öllum. Þess vegna ættum við að vara okkur á að lyfta ekki krossinum yfir öðru fólki, heldur hafa hann innra meðokkursjálfum. En grænlenski fáninn, hann er fáni gleðinnar.” Gagnkvæm tilfinningatengsl Hefur þér fundist að Islendingar líti Grænlendinga sem eins konar litla bróður? i „Nei, ég held að það sé þveröfugt. Eg held að þaö séu gagnkvæmTilfinn- ingatengsl á milli. Ég hef þekkt marga íslenska stjómmálamenn og hef ekki fengið þessa tilf inningu. Ég þekkti Gunnar Thoroddsen, Olaf Jóhannesson, Hjálmar Olafsson. Slíka menn þekkti ég og hef haft mikið sam- band við. Svo hef ég staðið í vinnu við ýmis verkefni með Islendingum. Sem prestur hef ég einnig kynnst Islending- um. Mjög góður vinur minn er biskup- inn fyrrverandi, Sigurbjöm Einars- son, sem hefur heimsótt mig og konu mina í Grænlandi. Og við höfum heim- sótt hann og f jölskyldu hans hér.” Er ekki líka nauðsynlegt að gera mönnum auöveldara fyrir að ferðast á milli Islands og Grænlands? „Það munum við gera. Og nú ætla ég að fá ættingja minn, Jósef Motzfeldt, sem er samgönguráðherra okkar, til aö koma til Islands til aö tala um þá möguleika. Hann kemur sennilega í kringum 20. apríl. Hann kemur meö sendinefnd frá Gröniandsflyv, sem er flugfélagið okkará Grænlandi.” Prestur innst inni Þú ert bæði prestur og stjórnmála- maður. Hvort embættið er þér mikil- vægara? „Innst inni hef ég alltaf verið prest- ur. Eg er eini presturinn á landsþing- inu. Stjórnmálamenn verða að semja og fara milliveginn. Við getum ekki verið með alhæf ingar. Það er margt sem maður vildi gera en það er ekki hægt að gera allt. Við getum ekki ráðið varnarmálum okkar. Eg held að Grænland sé í annarri stöðu en Island. Við erum nær Ameríku En þó eru bæði löndin á milli Evrópu og Ameríku og við verðum að læra þrjú Maður finnur bæði heimska Dani og heimska Grænlend- inga. Einnig heimska ísiendinga." tungumál: okkar eigið, ensku og dönsku.” Heimska Nú heyrir maður fólk stundum segja aö best hefði verið að Danir heföu látið Grænlendinga alveg í friði. Þá væru þeir enn ánægöir selveiði- menn, í stað þess að þurfa að ganga i gegnum öll vandamál hins vestræna heims, svo sem áfengisbölið og glæpa- vandamál. , ,Maður finnur bæði heimska Dani og heimska Grænlendinga. Einnig heimska Islendinga. Þetta eru auðvit- aö vitlausar skoðanir. Ég held ekki að áfengisvandamálið sé meira vanda- mál á Grænlandi en í öðrum norrænum löndum. Mér finnst heldur ekki að stjórnin eigi að vera bamapía fólksins í iandinu. Einstaklingurinn verður aö takmarka sig sjálfur. Þróunarvanda- málið er vandamál sem við þurfum að ráða fram úr. Við erum þróunarland. Þróunin hófst ekki fyrr en um 1973. Við höfum hafið okkar þróun svipað og Islendingar hófu sina. Faðir minn var selveiðimaður. Við átum þann sel sem hann veiddi. Því fylg jumst við ein- mitt mjög náið með Islandi. -ÞóG „Fadir minn var sel- veiðimaður. Við át- um þann sel sem hann veiddi."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.