Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Qupperneq 7
DV. MANUDAGfjp 22. APRlL 1985.
Neytendur
Talsvert nákvæmnisverk, en sórs-
aukalaust fyrir sjúklinginn.
Spengumar eru geröar úr sama efini
og notað er í tannspangir sem rétta
tennur. Reyndar ekki ósvipaö vanda-
mál þar á feröinni og skyld aðferö
notuð til úrbóta. Táspöngin er höfð í
þrjá til fjóra mánuði, jafnvel lengur
og fylgjast þarf með henni mónaðar-
lega. Spöngin er síðan færð til eftir
vexti naglarinnar. Tekið skal fram
að þegar ígerð er við nöglina má
ekki setja spöngina fyrr en eftir að
komist hefur verið fyrir ígerðina.
Þegar spöngin sat föst á sínum
stað var næst að steypa yfir hana til
þess að koma í veg fyrir að hún
breytti um legu og einnig að gera
auðveldara að bera spöngina i þessa
mánuöi — þannig að engin þvingun
y rði í sambandi við skófatnaö.
Þá var röðin komin að líkþomun-
um sem vom spóluð niður með eins
konar tannlæknabor og sigg í kring-
um þau og annars staðar á fótunum
fjarlægt með hníf og þynnt með
slípunartæki sem virtist svipað og
tækin sem tannlæknar nota til þess
að pússa og slípa tennur. Með-
höndlun lauk svo meö almennri fót-
snyrtinu, fótanuddi og smyrslum til
frekari mýkingar.
Verðið á þessu er nokkuö misjafnt,
hver spöng kostar um 400 krónur —
fótaaðgerð og tvær spangir kosta um
1.000 krónur.ein spöng og fullkomin
fótaaðgerð 700 eða 750 krónur. Odýr-
asta fótaaðgerð kostar um 400
krónur ef sj úklingurinn þarf að koma
aftur og aftur minnkar upphæðin
talsvert. Elli- og örorkulífeyrisþegar
fá 20% afslátt.
Hanna Kristín lærði fótaaðgerðir i
Fodplejerskolen í Kaupmannahöfn
og var að opna stofu að Laugavegi
15. Hún tók það skýrt fram að fótaað-
gerðir og fótsnyrting væri alls ekki
eitt og hið sama, þannig að bagalegt
væri þegar fólki hætti til að rugla
þessu saman. Og líklega er við hæfi
að ljúka þessu meö orðum fómar-
lambsins sem sagði himinlifandi í
lokin: „Þetta varþáalvegsatt — ég
fann alls ekkert til! Eins og það
hefur verið sárt að láta gera þetta
fram að þessu. Ykkur er alveg óhætt
að mæla með því að fólk fari og not-
færi sér slíka þjónustu, því það veit
enginn fyrr. en hann reynir það
sjálfur hversu bagalegt það getur
verið að ganga með slíka fótsjúk-
dóma.”
baj.
á vsrkið mað hreinsun, nuddi og
allt á sfnum stað. Tœrnar tilheyra
er afsteypa hennar eigin táa —
Regnfatnaður 1
fyrir börn, dömur og herra
á sérstaklega góðu verði.
Barnagaliar, kr. 398,498 og 670. Regnkápur á dömur,
Regnjakkar á stelpur og stráka margir litir og snið,
í stærðum S-M-L á kr. 450. á kr. 450, 750 og 975.
B _ Á herra á kr. 975.
Laugavegi 95,2. hæð. sími 14370.
Opiðfrákl. 13-18
þegar vöxturinn er hraður*
Unglingar verða að fá uppbyggilegt fœði vegna
þess hve vöxtur þeirra er hraður á tiltölulega fáum
árum. Par gegnir mjólkumeysla mikiivœgu hlutverki
því án mjólkur, og kalksins sem í henni er, ná
unglingamir síður fullri hœð og styrk.
Komið hefur í Ijós að neysluvenjur unglinga
fullnœgja sjaldnast lágmarks kalkþórf og er þeim
því einkar hœtt við hinum alvarlegu afleiðingum
kalkskorts síðar á œvinni. Sérstaklega eru stúlkur í
hœttu því þeim er hœttara við beinþynningu og
Mjólk í hvert mál
hörgulsjúkdómum f kjðlfar bameigna. Kalksnauðir
megrunarkúrar og lélegt matarœði virðist einnig
einkenna neysluvenjur stúlkna fremur en drengja.
Fjögur mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk-
skammt fyrir unglinga og neysla undir þvf marki
býður hœttunni heim. Það er staðreynd sem
unglingar og foreldrar þeirra œttu að festa f minni
því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur
dýrmœtur.
* Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk,
eða undanrenna.
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalkifmg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum(2,5dlglös)* Lágmarks- skammtur í mjólkurglösum (2,5dlglös)**
Bðml-lOára 800 3 2
Unglingarl1-T8ára 1200 4 3
Ungt fólk og fullorðið Ófrfskar konur og 800*“ 3 2
brjóstmœður 1200”“ 4 3
* Hór er gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki koml úr mjólk.
** Að sjálfsögðu er mögulegt að fá allt kalk sem llkamlnn þarf úr öðrum matvœlum en mjólkurmat
en slíkt krefst nákvœmrar þekklngar á nœringarfrœði. Hór er miðað vlð neysluvenjur eins og
þœr tíðkast í dag hór á landi.
*** Marglr sórfrœðlngar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf só mun meiri eða 1200-1500
mg á dag.
**** Nýjustu staðlar fyrir RDS í Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp.
Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundir og auk
þess B-vItamfn, A-vítamín, kallum, magníum, zink og fleiri efni.
Um 99% af kalkinu notar llkaminn til vaxtar og vlðhalds beina og tanna.
Tœplega 1 % er uppleyst I líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum,
og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt,
hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum
efnaskiptahvötum.
Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamrn, sem hann fœr
m.a. með sólböðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla
annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en
300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Or
mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum
af mjólk.
Helstu heimildir: Bæklingurinn Kalk og beinþynning eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutrition and Physical Fitness, 11. útg.
0 ... -y*" eftir Briggs og Calloway, Holt Fteinhardt and Winston, 1984
MJÓLKURDAGSNEFND
-MJÖLKERGÓO