Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Side 8
8
DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Beittu valslongvum
gegn lögreglunni
Baráttagegn
hrækingum
Kínverskt stjómvöld hafa hafið
enn eina herferðina gegn því að
fólk hræki á gólf og götur. Gerð
hafa veriö veggspjöld sem sýna
hversu sóöalegt er að skilja svona
eftir munnvatn sitt hingað og
þangað. Einnig verða sektir við að
hrækja á aimannafæri og þeir sem
það gera verða látnir hreinsa
hrákann upp samkvæmt nýjum
reglum.
Fyrirtæki munu í framtíöinni út-
nefna starfshópa til að ber jast gegn
hrækjurum. Hinar nýju reglur um
þetta taka gildi 20. maí. Bann viö
hrækingum hefur verið síðan 1982
en lítill árangur orðið af því.
Nasistatengsl
hrella
Uppljóstranir um að fólk sem
tengist bresku konungsfjölskyld-
unni hafi veriö meðlimir SS sveita
nasista vörpuðu skugga á 59 ára af-
mæli Elisabetar Englandsdrottn-
ingarígær.
Þegar varð ljóst fyrir helgi aö
faðir Michael, prinsessu af Kent,
var háttsettur herforingi innan SS
og nasistaflokksins. En i gær
skýrðu bresk blöð frá því að mágur
Filippusar, eiginmanns drottn-
ingar, var hershöföingi í SS
sveitunum og samstarfsmaður
Heinrichs Himmler, yfirmanns
Gestapo-lögreglunnar. Mágurinn,
Prins Christoph, lést í flugslysi
1943. Hann var giftur systur Filipp-
usar. Christoph átti plantekru í
Mósambik og var alræmdur fyrir
slæma meðferð á afrískum vinnu-
mönnum.
Farafyrirl.júní
ísraelsstjórn ákvað í gær að
draga alla hermenn israels til baka
frá Líbanon fyrir 1. júní.
Ákvörðunin var tekin eftir átta
tíma fund stjórnarinnar.Ráöherrar
greiddu tillögu um þetta atkvæði og
var tillagan samþykkt, 17 — 3.
Einnig var samþykkt að setja
upp vamarbelti gegn skæruliðum
innan Líbanons eftir brottflutning-
inn. Ekki var sagt hve stórt þetta
vamarbelti ætti að vera eða hve
margir ísraelskir hermenn ættu að
vakta það.
Gorbatsjov
frjálslyndur
Tékkóslavneskur vinur
Gorbatsjovs frá því í háskóla segir
að hinn nýi Sovétleiðtogi hafi verið
mikill gagnrýnandi Staiíns og hann
gerir ráð fyrir miklum breytingum
í Sovétríkjunum undir stjórn hans.
Sdenek Mlynar, sem var hátt-
settur í tékkóslavneska kommún-
istaflokknum en býr nú í Vín, segir
að það hafi veriö óvenjulegt að
Sovétmaður segöi þannig út-
lendingi frá stjórnmálaskoöunum
sínum. En Gorbatsjov hefði gagn-
rýnt bæði harðstjóm Stalíns og
óráðsíu Krústjoffs. Hann helði
viljað gefa bandalagsríkjiim
Sovétríkjanna meira svigrúm og
aukið sjálfstæði frá Moskvu.
Sökktu varðskipi
Nicaraguastjórn segir að her-
flugvélar frá Honduras hafi sökkt
varðskipi frá Nicaragua innan sjó-
helgi Nicaragua. Stjómin sagði að
flugvélarnar hefðu skotiö að tveim-
ur varðskipum sem voru að elta
skip sem voru viö ólöglegar veiðar
innan landhelgi Nicaragua.
Stjórn Hondúras segir rétt að
skotið hafi verið á varöskipin en
þau hafi verið að elta bátinn innan
landhelgi Honduras.
í mótmælaorðsendingu sagði
stjóm Nicaragua að einn maður
hefði verið drepinn í árásinni, fjór-
ir særst og eins manns væri sakn-
að.
Tíu námumenn létu lífið í ættbálka-
erjum, sem brutust út við eina af gull-
námum Suður-Afriku um helgina, á
meðan blökkumenn lentu víða í úti-
stöðum við lögregluna.
Við Steyn forseta-námuna skammt
frá Welkom (250 km suður af
Jóhannesarborg) starfa um 16 þúsund
blökkumenn en það sló í heiftarbrýnu
Einn af klerkaleiðtogum Irans viður-
kenndi um helgina að enn væri bardög-
um haldið áfram gegn skæruliðum
Kúrda sem krefjast sjálfstjórnar fyrir
Kúrdistan í norðvesturhluta Irans.
Raul Alfonsín, forseti Argentínu,
sagði í gærkvöldi að reynt heföi verið
að efna til byltingar gegn lýðræðislega
kjörinni stjórn landsins. Onafngreindir
menn hefðu talað við foringja í her
landsins og reynt að fá þá til aö bylta
stjórn sinni. I dag hefjast réttarhöld
yfir níu fyrrverandi yfirmönnum hers-
ins.
110 mínútna sjónvarpsræðu sagði Al-
fonsín að réttarhöldin myndu „binda
enda á 50 ára lýðræðislega óþreyju og
þjóðlega niðurlægingu”.
Alfonsín sagði að herforingjarnir,
sem talað hefði verið viö um hugsan-
lega byltingu, hefðu reynst hollir
stjórnarskránni. En hann skoraði á
fólk að taka þátt í fjöldagöngu fyrir
milli 4000 þeirra í gær. Sauð þar upp úr
óvild milli Xhosa-talandi blökku-
manna og aðfluttra blökkumanna frá
Leso tho eftir að einn Leso thomanna
hafði verið stunginn til bana á laugar-
dagskvöld.
Víða í blökkumannahverfum borga
S-Afríku urðu róstur í gær þegar ung-
menni grýttu lögregluvarðflokka. Lög-
Þingforsetinn sagði herfiokkum,
sem voru að legg ja upp frá Teheran til
Kúrdistan, að þeir mundu þar mæta
auglitis við auglitis „versta fjanda
islams”.
framan stjómarráðsbyggingar á
föstudag til að sýna „lögum virðingu,
frelsi og lýðræði” stuðning sinn.
Þeir sem fara fyrir rétt í dag eru
fyrrverandi forsetamir Jorge Videla,
Roberto Viola og Leopoldo Galtieri auk
sex annarra meðlima byltingarráða.
Þeir eru sakaðir um hvarf, pyntingar
og morð á þúsundum á tímum her-
stjórna á árunum 1976 til 1983.
Átta mannréttindahópar ætla að
fara í göngur fyrir framan þinghúsiö í
Buenos Aires til að krefjast þess að
engin sakaruppgjöf verði veitt.
Hægrisinnaður hópur, sem tengist
þeim sem geröu byltingu hersins 1955,
sagði að réttarhöldin myndu leiða til
almennrar upplausnar.
reglan greip til táragass og skotvopna.
Einn blökkumaður var handtekinn eft-
ir árás óeirðaseggja á varðflokk í
Tshakane-hverfi austur af Jóhannes-
arborg.
I Duduza-hverfi í Jóhannesarborg
var herflokkur grýttur þegar hann var
á leið til hjálpar lögreglunni sem átti í
vök að verjast. Og í Tembisa, skammt
Yfirvöld í Teheran héldu því f ram í
fyrra að þau hefðu brotið á bak aftur
andstöðu Kúrda en Khomeini æösti-
klerkur hafði fýrir fimm árum fyrir-
skipað að Kúrdar skyldu malaðir
Tancredo Neves, kjörinn forseti
Brasilíu, er látinn. Jose Samey, fyrr-
Neves var koslnn forseti Brasiliu 15.
mars en lagðist banaleguna áður en
hann var settur i embætti.
frá, grýttu blökkumenn ökutæki og
stórskemmdu tvo langferðabQa.
I Joza í austurhluta Höfðahverfis
beittu blökkumenn valslöngvum gegn
lögreglunni en þar hefur verið róstu-
samt á þessu ári og flestir falliö þar
þeirra hundrað blökkumanna sem týnt
hafa lífi í óeirðum i S-Afríku á þessu
ári.
enn
mélinu smærra. Fyrr í þessum mánuði
hafði aðalvegurinn milii Sanandaj og
Kamyran verið opnaður almennri um-
ferð en skæruliðar hafa verði athafna-
samir við hann og hann þykir ekki
öruggur.
um varaforseti, hefur tekið við forseta-
embættinu.
Neves dó eftir fimm vikna sjúkra-
legu og sjö uppskurði klukkan 1.23 í
nótt.
Neves varð veikur aöeins nokkrum
klukkutímum áður en hann átti aö taka
við embætti, 15. mars. Hann var skor-
inn upp við iðrabólgu. En ígerð hljóp í
sáriö og varð að skera hann upp sex
sinnum í viöbót. Ljóst var orðið fyrir
nokkrum dögum að hann myndi ekki
geta tekið við forsetaembættinu. Hon-
um var haldiö á lífi með vélum.
Mannfjöldi safnaðist saman fyrir
utan sjúkrahúsið um leið og fregnir
bárust af dauða hins kjöma forseta í
morgun. Einn maður, sem hætti í
vinnu fyrir 10 dögum til að fylgjast
með Neves fyrir utan sjúkrahúsið, var
borinn örvilnaður í burtu af lögreglu.
Aka á með lík Nevesar í bíl um götur
Sao Paulo, út á flugvöll, og þaðan á að
fljúga með það til Brasilíu,. höfuðborg-
arinnar. Þar mun hann liggja á við-
hafnarbörum í tvo daga. Hann verður
grafinn í heimabæ sínum, Sao Joao del
Rey, í Minas Gerais fylki.
Byltingartil-
raun í Argen-
tími kafnaði
í fæðingu
LÆKNAR FENGU
EKKIBJARGAÐ
NEVES FORSETA