Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Qupperneq 17
DV. MÁNUDAGUR 22. APRIL1985.
17
Lesendur Lesendur
Lesendur
TÓNLISTARKENNARAR
Fóstureyðingarvegur vegna
framkvæmda
Tónlistarskólinn á Kirkjubæjarklaustri óskar að
ráða kennara næsta skólaár.
Upplýsingar gefnar í símum 99-7625 og 99-7756.
Hjörlelfur Úlafsson hjá VegaeftlrUtlnu
hringdl:
Mig langaði að gera athugasemdir
vegna lesendabréfs sem birtist í DV18.
apríl. Þar er talað um fóstureyðingar-
vegi í Grímsnesi og Biskupstungum.
Þannig er mál meö vexti að það er ver-
ið að byggja upp nýjan veg þarna og á
hann að vera með bundnu slitlagi. All-
ur vegurinn upp að Borg er því á fram-
kvæmdastigi. Fólk getur valið hvort
það vill fara þennan veg svona slæman
eða lengri leið. Vildum við gefa því
kost á þessu vali frekar en að loka veg-
inum vegna framkvæmdanna.
Oánægði vegfarandinn getur litið
björtum augum til framtíðarinnar en
ég vona að vegfarendur verði flestir
þolinmóðari en hann þegar verið er aö
Fóstureyðingarvegir í
Grímsnesi og Biskupstungum
leggja'nýja vegi. Það má að lokum
geta þess að sami verktaki sér um
framkvæmdir í Grímsnesi og er hrósað
tttMX.fl )>»tx>»Ix»ffi Wt. Vjií-tat
á þessari sömu lesendasíðu fyrir
snyrtilega umgengni við framkvæmdir
við hesthús í Garðabæ.
ÓVÖNDUÐ
VINNUBRÖGÐ
Kristinn Snæland skrifar:
Jens Guðmundsson skrifar mér í
DV þann 15. apríi sl. bréf um málefni
Sendibíla hf. á Steindórsplani. Jens
þrætir fyrir að hafa teiknað merki
Sendibíla hf. og segir það ævagamalt
merki. Nú er rétt að benda Jens á að ef
hann hringir í síma Sendibíla hf. og
spyr hver hafi teiknað merkið, þá er
svarað Jens Guðmundsson. Nú vill svo
itil að ég hefi undir höndum merki
Sendibíla hf. eins og það var þann 10.
desember sl. og fylgir hér mynd af því,
sem sýnir að núverandi merki Sendi-
bíla er allt annaö merki. Einhver hefir
breytt gamla merkinu. Þá er spurning-
in þessi: Ef símastúlkan hjá Sendibíl-
um hf. segir þig, Jens Guðmundsson,
hafa teiknað merkið, er hið rétta þá
ekki einfaldlega það, að þú breyttir
gamla merkinu í þá mynd sem nú er og
annaðist jafnframt aðrar útfærslur
merkisins, sem allar beinast í sömu
átt, eða villa þannig um fyrir
neytendum, að þegar þeir sjá merki
Sendibíla hf., þá telja þeir þar á ferð
bíl frá Bifreiöastöð Steindórs? Hvort
sem þú eða einhver annar auglýsinga-
teiknari hefur unnið þessi villandi
merki Sendibíla hf. þá ætti siðanefnd
Sambands íslenskra auglýsingastofa
vissulega að láta málið til sín taka.
Vegna villandi merkinga og moldviðris
„frétta’ og áróðurs halda æði margir
að Bifreiðastöð Steindórs sé með leigu-
bíla og margar gerðir sendibíla. Sann-
leikurinn er sá að á Bifreiðastöð Stein-
dórs er nú aðeins einn bíll og sá bíll
ekki í akstri vegna viðgerðar, þegar
þetta er skrifað. Bifreiðastöð Steindórs
er þannig raunverulega lokuð um þess-
ar mundir. Þess vegna er einnig allt tal
og þakkir til Bifreiðastöðvar Steindórs
fyrir fjölbreytta þjónustu klára bull og
vitleysa.
Sendibílar hf., sem meö bréfi til
borgarráðs dags. 10. des. sl. óskuðu
leyfis til reksturs smásendibíla og hétu
jafnframt að starfrækja alla stærri
sendibíla frá stað, eða stöðum utan i
Steindórsplans, gera nú út allar [
stærðir sendibíla frá Steindórspianinu.
Þessir smásendibílar hafa undanfarið
staöið í farþegaflutningum sem taldir
eru ólöglegir og margítrekað hafa ver-
ið kærðir. Ailur samanburður á þeim
bílum sem nú aka frá Steindórsplani
og leigubifreiðum frá leigubifreiða-
stöövum borgarinnar er þannig út i
hött, þeir fyrrnefndu eru sendibílar til
vöruflutninga en hinir síðrnefndu
leigubílar til mannflutninga. Aö því
leyti sem Jens vitnar til orða minna,
fer hann rangt með og skrumskælir orð
mín. Þau vinnubrögð eru honum til
skammar en sýna einnig hæfileika til
að skrumskæla auglýsingar að vild.
wc, baðkörum og vöskum.
Takmarkaðar birgðir.
m
KJARTAN JÓNSSON,______
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
TRYGGVAGÖTU 6. SlM113184.
Skrifstofu-
húsnæði
Opinber stofnun óskar að taka á leigu skrifstofuhúsnæði á höfuðborg-
arsvæðinu, nálægt 900 m2.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild DV — merkt: Húsnæði 2001.
WRAIMGLER
JEPPADEKK ,
OOODýYCAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiöunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins 3.550.- krónur!
(Innifalið i verði: Málmstandur, 2000 mál, tíu höldur og 1000
teskeiðar.)
STANDBERG HF.
- kaffistofa í hverjum krók!
Sogavegi 108
símar 35240 og 35242