Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 28
28
DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985.
Tilheyrir hinni brosmildu þjóð og.
BÝR í PARADÍS
— Isfahani Sameen, alþ jóðlegur varaforseti JC, í rabbi
„Þetta er alveg eins og í paradís.”
Öll höfum viö einhvem tímann sagt
þessi orö án þess að hafa leitt hugann
aö því hvar paradís er. Isfahani
Sameen er hins vegar ekki í vafa um
paradís, hún er eyjan Sri Lanka.
Isfahani var nýlega á ferö hérlendis
á vegum JC, hann er alþjóðlegur vara-
forseti JC-hreyfingarinnar. Bros-
mildur maður, Isfahani. Viö röbbuöum
örstutta stund viö hann á fundi sem JC-
Kópavogur hélt í Kópavoginum.
Á meöan ég man. Þetta meö brosið,
Isfhani er sannarlega ekki sá eini á Sri
Lanka sem brosir. „Nation of
smiling”, hin brosmilda þjóð, segir
hann aö íbúar Sri Lanka séu nefndir af
feröamönnum sem koma til eyjarinn-
ar.
Ferðamannastraumur er mikill til
Sri Lanka og þjónustan við ferðamenn
oröin öflug atvinnugrein.
Græn eyja meö
gljáandi stendur
„Sri Lanka er oft nefnd græna eyjan
af ferðamönnum og ég neita því ekki
aö eyjan ber þetta nafn meö rentu. Þaö
sem dregur þó ekki síður að eru hinar
fallegustrendur.”
Og bætir við: „Viö fáum einmitt
mikiö af feröamönnum frá Norður-
löndum, þeir koma mest á tímabilinu
október-mars.”
Þrátt fyrir þaö aö Sri Lanka-búar
séu svipaöir í útliti og Indverjar þá
segir Isfahani að þjóöirnar séu ólíkar.
„Þaö er ýmislegt sem skilur aö, viö
höfum okkar eigin tungu, sinhalese, og
menning okkar er ööruvísi.”
Og hvaö skyldi hann eiga viö meö
öðruvísi menningu?
„Við erum búddistar á Sri Lanka,
það eru Indverjar ekki. ”
16 milljónir búa
á Sri Lanka
Á Sri Lanka er ekki aðeins töluð
sinhalese, meginþorri ibúanna talar
ensku. Já, meginþorri 16 milljóna íbúa
eyjunnar.
Isfahani sagöi aö Sri Lanka væri
dæmigert þróunarland. Nokkur mis-
skipting væri á launum, sumir væru
mjög ríkir en síðan væru aörir mjög
fátækir. Og fátækt væri meira áber-
andi en ríkidæmi.
„En rikisstjórnin hefur gert mjög
góöa hluti aö minu áliti. Og efnahagur-
inn hefur batnaö.”
Te, gúmmí, kókóshnetur
og gimsteinar
Fyrst efnahagsmál bar á góma
spurðum við hverjar væru helstu út-
flutningsvörur eyjunnar. „Viö flytjum
mest út af tei, gúmmíi og kókoshnetum
og einnig gimsteinum ýmiss konar,
landiö er auöugt af slikum steinum.”
Reyndar tengjast gimsteinar starfi
Isfahani, 18 ára aö aldri stofnaði hann
sitt eigiö fyrirtæki sem verslar meö
slflra steina. Og fýrirtækiö hefur dafn-
aö, þar vinna nú 30 starfsmenn.
— En hvaö um manninn sjálfan?
„Eg er 34 ára, giftur, og á tvo drengi,
tveggja og fjögurra ára,” sagði hann,
að hætti Sri Lanka-búa, brosandi. ,,0g
er ekki rétt að við látum þaö fylgja
með aökonan mín er aöeins 21 árs.”
Hingað kom Isfahani frá Noröur-
löndunum. Haföi heimsótt þau öll,
Island var siöast í röðinni. Veðriö hér
eins og títt hefur veriö í vetur, mikil
hlýindL
„Þaö er miklu hlýrra hér en í Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku. Því varö ég
mjög undrandi þegar ég kom til Is-
lands, enginn snjór eins og annars
staðar á Norðurlöndunum.”
Sá aftur
græntland
„Eg get sagt að ég hafi séö aftur
græntland.”
Um JC-hreyfinguna sagði Isíahani að
hún væri mjög sterk hérlendis. „Eg hef
farið víöa og sé að JC-starfið er öflugt
hér en þaö er alltaf hægt að gera
betur.”
— Hvað er það sem þú hefur fengið
mest út úr JC? „Þjálfun í aö koma
fram og tjá mig. I þeim efnum er JC
ómetanlegur skóli.”
-JGH
Hijómmvaitin Zkjðlwandi leikur fyrir dansi á skammtun JC ð Húsavík.
DV-mynd Ingibjörg
ÁRÆSKUNNAR
Á HUSAVÍK
I tilefni af ári æskunnar gengust JC
Húsavik, tómstundaráö og bama- og
gagnfræðaskólinn fyrir dagskrá í
félagsheimilinuyfirhelgi nýlega.
Á laugardag skemmtu nemendur
tónlistarskólans og unglingahljóm-
sveitimar Eden og Zkjálwandi.
A sunnudag komu fram nemendur
úr tónlistarskólanum og nemendur úr
gagnfræðaskólanum sýndu leikþátt og
voru með tískusýningu.
Starfskynning var á þann hátt aö
fulltrúar frá fýrirtækjum í bænum
komu og svöruöu spurningum
nemenda um atvinnuhorfur og
menntunarkröfur.
Að lokum voru pallborösumræður.
Æskulýösfulltrúi ríkisins, Níels A.
Lund, fulltrúar frá tómstundaráði,
nemendum, kennurum og foreldrum
fluttu framsöguerindi um æskulýðs-
mál og svömöu spurningum hver ann-
ars og úr salnum,
Opiö hús var á neöstu hæð félags-
heimilisins þar sem yngsta fólkið undi
sér viö ýmis spil og leiktæki. Báða dag-
ana vom sýndar myndir eftir
nemendur. Dagskrá þessi var fjölsótt
og mæltist vel fyrir.
IM, Húsavík.
Isfahani Sameen býr ð grœnni eyju með gljðandi ströndum; kölluö paradis af þeim sem heimsækja hana,
Getiö nú. Til íslands kom hann úr kuldanum ð Norðurlöndum og „sð aftur grænt land".
DV-mynd:S
Hinir frnknu fðlagar f knattspyrnufélaginu Leiftri frð Ólafsfiröi sem lögðu
487 kílómetra að baki.
DV-mynd Óskar Gíslason.
Samtök um jafnrétti
miili landshluta:
Ný skrifstofa
og landsf und-
ur í sumar
Samtök um jafnrétti milli lands-
hluta blása nú í herlúðrana og hafa
opnaö skrifstofu á Akureyri aö Aöal-
stræti 16. Unniö er aö stofnun deilda
víöa um land og í sumar verður hald-
inn landsfundur í Mývatnssveit.
Magnús Kristinsson kennari hefur
verið ráðinn starfsmaður Samtakanna
og er hann til viðtals á skrifstofunni
daglega frá hálffimm til hálfsjö. Hann
sagði í samtali viö DV að deildir sam-
takanna væru nú komnar á annan tug-
inn og fram að landsfundinum yröi
reynt að stofna sem flestar. Það væri
stefnt að því aö fá þúsundir fólks til
starfa. Þeir sem heföu gengið til liðs
viö Samtökin hingaö til væru alls
staöar að, þó fæstir frá Reykjavík.
Ahugasamast væri gjarnan fólk sem
heföi búið í Reyk javík.
Þessi samtök voru stofnuð vorið
1983. Þau eru óháö flokkum og mark-
miðið er aö jafna aöstöðu fólksins í
landinu og draga úr efnahagslegri og
pólitískri miðstýringu. Samtökin hafa
sett fram hugmyndir um breytingu á
stjómarskránni þannig aö landinu
veröi skipt í fýlki sem hafa víötæka
sjálfsstjóm, yfirráðarétt yfir auðlind-
um sínum og ráðstöfunarrétt á tekjum
sínum- JBH/Akureyri
FERÐASKRIFSTOFA RÍK-
ISINS HLUTAFÉLAG?
„Já, ég hef mikinn áhuga á að
breyta feröaskrifstofunni í hlutafélag
og jafnframt að núverandi starfsmenn
eignist hluta í henni. Eg tel það eðlilegt
og þeir hafa sýnt því áhuga,” segir
Matthías Bjarnason samgönguráö-
herra.
Matthías mun innan skamms leggja
fram á Alþingi viöamikiö frumvarp
um feröamál. 1 því er gert ráö fyrir aö
Ferðaskrifstofu rflcisins verði breytt í
hlutafélag.
Að sögn Matthíasar er hann ekki að
tala um aö selja fyrirtækiö eins og þaö
leggur sig heldur breyta því í hluta-
félag sem ríkiö eigi stóran hluta í.
„Eg sé enga sérstaka ástæðu til
þess aö ríkið eigi ferðaskrifstofuna,”
sagöi Matthias.
En verður fyrirtækinu breytt í
hlutafélag?
„Þaö er Alþingis aö ákveða það.”
— Nú hefur reksturinn gengið mjög
vel, er þá nokkur ástæða til aö selja
fyrirtækiö? — Er ekki lag núna fyrir
ríkiðaöeigaþaö?
„Reksturinn hefur gengiö mjög vel,
þaö er rétt. En þaö er fyrst og fremst
vegna góös starfsfólks. Þeir sem rekið
hafa fyrirtækiö eiga allan heiöurinn.
Og hvers vegna þá ekki aö leyfa þeim
aönjótahans?”
-JGH
Matthias Bjamason samgönguréðherra hafur hug é þvi að gera Ferðaskrif-
stofu rikislns að hlutafélagi.
Hlupu um
víðan völl
Félagar í knattspymufélaginu
Leiftri á Olafsfirði lögöu aö baki vega-
lengd sem nemur 467 kílómetrum. Ný-
lega hlupu þeir þessa vegalengd, sem
er jafnlöng þeirri frá Reykjavík til
Olafsfjarðar. Söfinuðu knattspymu-
kappamir áheitum og tókst þeim aö
safna 60 þúsund krónum sem veröa
notaðar til að greiða feröakostnað liðs-
insaöhluta. .....
Hljóp hver og einn eftir endilangri
flugbrautinni fram og aftur. Sá fyrsti
lagði af staö klukkan hálfsex á föstu-
degi og sá síðasti lauk hlaupinu
klukkan hálftólf á sunnudegi.
ÁE
Bankaráðsmenn
segiafsér
Aðalfundur Verkalýösfélagsins
Þórs, haldinn 12. apríl 1985, fordæmir
þaö fyrirkomulag sem viðgengist
hefur um laun bankastjóra að þeir
skuli hafa vísitölutryggðan kaupauka,
sem nemur þreföldum launum verka-
manns, ofan á laun sem samsvara sex-
földum launum sama verkamanns — ,
meðan stranglega er bannaö með lög-
um að tryggja verkamanninum kaup-
mátt launa sinna. Fundurinn skorar á
þá menn,sem ábyrgö bera á þessu
reginhneyksli, aö segja þegar af sér
þar sem þeir viröast ekki færir um aö
gegna ábyrgðarstörfum.