Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Síða 1
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
103. TBL. - 75. og 11. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ1985.
rJ,*6'K*l ■ll«#llll|j|tll IKII ICSIIUgl UIIIIIIIUb
Samningar við Banda-
Orkustofnun hefur verið heimilað
að gera samning við Bandaríkja-
menn um þyngdarmælingar á
islensku landgrunni. Er hér um að
ræða verkefni upp á 1,4 milljónir ís-
lenskra króna. Var ákvörðun um
þetta tekin á rikisstjórnarfundi í
gær.
Eins og sagt var frá i DV í gær
óskaði landmælingadeild bandaríska
hersins eftir því fyrir tveimur
mánuðum aö fá að gera þessar
Þjóðverjarnir
farnir utan
Þjóðverjunum, sem synjað var um
landvistarleyfi í gær vegna gruns um
að þeir hefðu í hyggju að ræna fálka-
hreiður hér á landi, héldu utan til
Lúxemborgar á áttunda tímanum í
morgun.
„Þetta eru bestu „fangar” sem
hingaö hafa komið. Það heyröist ekki í
þeim í nótt. Þeir sváfu eins og börn og
virtust hafa góða samvisku,” sagði
lögregluþjónn á lögreglustöðinni á
Keflavíkurflugvelli þar sem
Þjóðverjamir gistu í nótt sinn í
hvorum fangaklefanum.
Mennimir eru frá Vestur-Þýska-
landi og heita Wolfgang Weller, 29 ára,
og Michel Leonhard Sutera, 24 ára.
Þeir mótmæltu kröftuglega synjuninni
um landvistarleyfi en voru þó mjög
kurteisir að sögn lögreglumannanna.
Þeir sogðust hafa komiö hingað til
lands sem ferðamenn og skildu hvorki
upp né niður í þessum móttökum. Þeir
báðu um að fá að hafa samband við
sendiráð V-Þýskalands, sem þeir og
gerðu, en þaðan komu engin viðbrögð.
Einnig báðu þeir um aö hafa samband
við ættingja sína í Þýskalandi, en slíkt
er ekki leyft undir þessum kringum-
stæðum.
Það var um klukkan 17 í gær sem
þeir komu til landsins og þá strax
færðir á lögreglustöðina á Keflavíkur-
flugvelli og settir sinn í hvom fanga-
klefann. Þar var þeim borinn matur,
sem þeir borðuðu með góðri lyst.
-KÞ/-JGH
Hatton-Rockallsvæðið:
Tilkall ís-
lendinga
væntanlegt
Danir gáfu yfirlýsingu í gær um til-
kall til hluta af Hatton-Rockall-svæð-
inu. Auk Dana, sem setja fram þessar
kröfur fyrir hönd Færeyinga, gera Irar
og Bretar kröfur til yfirráða á svæðinu.
Að sögn Geirs Hallgrímssonar utan-
ríkisráðherra er gott samstarf á milli
Dana og Islendinga í málinu, þessi
krafa beinist ekki gegn hagsmunum
okkar.
Á næstu dögum mun ráðherra gefa
út yfirlýsingu með kröfum Islendinga
um tilkall til yfirráða á hluta af
Hatton-Rockall-svæðinu. -ÞG
mæiingar á landgrunninu nú i
sumar. Er hér um að ræða mælingar
á þyngdarsviði jarðar í sambandi við
gervitungl og annað þaö sem er á
ferð um himingeiminn. Munu Banda-
rikjamenn ætla aö borga brúsann, en
Orkustofnun mun sjé um verkið i
heild.
„Þetta er afar forvitnilegt að
okkar mati,” sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra í samtali
við DV. „Mælingar þessar þykja
okkur mjög merkilegar vegna
jarðhitarannsókna hér á landi.”
.JF’yrir okkur hefur þetta mikla
þýöingu. Það hefur orðið samdráttur
hér hjá okkur en með þessu skapast
mikil vinna fyrir okkar fólk,” sagöi
Gunnlaugur Jónsson hjá Orku-
sto&iun. „Við munum eignast öll
gögn sem munu safnast vegna þess-
ara rannsókna sem hafa mikla
þýðingu fyrir rannsóknir í jarðfræði,
jarðeðlisfræði og jarðhita. Þá munu
Bandaríkjamenn setja upp mjög
fullkominn hugbúnað hér á stofnun-
inni, sem við munum eignast. Einnig
gæti þetta leitt til frekari samvtnnu
viö Bandarikjamenn í framtíðinni.”
Hann sagði að samningurinn væri
langt á veg kominn en eftir ætti að
semja viö fyrirtækið International
Technology um leigu á tækjum en Is-
lendingurinn Sighvatur Pétursson er
þar aðstoðarforstjóri, svo og við ís-
lenskaaðilaumleiguáþyrlum. .rþ.
Tveir menn é etolnum bfl fóru út af skammt fró baanum Stardal f morgun. Bfllinn er ónýtur og
þurfti aö lyfta honum upp é krana. Mennlrnir voru béöir fluttir é alysadeild Borgarspftalans
þar sem gert var að sérum þelrra. Bflnum stélu félagamlr f Reykjavfk en eigandinn hafði skiliö
eftir lyklana f honum. DV-mynd S
Látvisvarviö
árekstri flug-
vélaenengin
skýrslagerð
-sjábls.4
Grafarvogur
ekki lánshæfur
samkvæmt
nýjumhús-
næðisreglum
— sjá bls. 2
Danirtelja
Rockall
tilFæreyja
— sjá bls. 6
FramReykja■
víkurmeistari
— sjá íþróttir
bls. 20-21
Lokstríðsins
i'Evrópufýrir
40árum
-sjábls. 18-19
KEA grunað um
aðseljainn-
fluttarkartöflur
— sjá bls. 21
sjá nánarábls.6
ff
SVARH KASSINN
KOMINN í ÞINGIÐ
„Gæti gjörbreytt umferðarmálum landsmanna á stuttum tíma,” segir
framkvæmdastjóri Umf erðarráðs
ff
Umferöarráð lagði til við Alþingi í
síðustu viku að í nýjum umferðarlög-
um verði ákvæði sem heimili dóms-
málaráðherra að setja reglur um
„svartan kassa" í vélknúnum öku-
tækjum.
„Eg held að þetta væri kannski það
aláhrifaríkasta sem hægt væri að
gera til að draga úr umferöarslys-
um,” sagði Oli H. Þóröarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs.
„Páll Theodórsson kynnti þessa
hugmynd á fundi hjá okkur fyrir ári.
Þetta vakti mikla athygli. Ég er
mjög hlynntur þessu,” sagöi Oli.
I greinargerð Umferðarráðs til
allsherjarnefndar efri deildar Al-
þingis, sem hefur frumvarp til nýrra
umferðarlaga til skoðunar, er
„svarti kassinn” nefndur „ökuriti,
sem skráir hraðaferil”.
Umferöarráð ákvað á fundi 26.
mars síðastliðinn að gera tillögu um
ökuritann. Fyrir fundinum lá grein-
argerð Ola H. Þórðarsonar. Þar
sagði meðal annars:
„Að mati tæknimenntaðra manna
er ekkert því til fyrirstööu aö fram-
leiða ökurita (samanber svarta kass-
ann i flugvélum) er skrái nákvæm-
lega á hvaða hraða ökutækinu hafði
veriö ekið áður en til dæmis lögregla
stöðvar ökumann þess eða viðkom-
andi hefur lent í árekstri.
ökuriti sem hér um ræöir gæti
skipt sköpum sem sönnunargagn fy r-
ir lögreglu til dæmis við framan-
greindaraðstæður.
Hér er um ódýr tæki að ræða en
gagnsemi slík að almenn notkun
þeirra gæti gjörbreytt umferðarmál-
um landsmanna á stuttum tíma.”
-KMU.