Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 7
.. DV. MIÐVIKUDAGUR 8. MAl 1985. 7 Macintösh Sf, Skipholti 19. Reykfavik, S: 29800 Tveir tímar nægja flestum til að læra á Macintosh, - þar með hefur þú þá tölvuþekkingu sem þú þarft Til hvers þarft þú að gerast sérfræðingur um tölvur, þótt þú viljir nýta þér kosti þeirra? Þú þarft þess ekki. M getur öðlast alla þá tölvuþekkingu sem þú þarfnast hjá Macintosh á mjög skömmum tíma. Án þykkra tölvuhandbóka og þreytandi nám- skeiða. Macintosh er annað og meira en venjuleg einkatölva. Það byggist fyrst og fremst á nýrri aðferð í samskiptum manns og tölvu. Við hönnun tölvunnar var aðaláherslan lögð á það, að notandinn þyrfti ekki að hafa neina reynslu af tölvum til þess að geta hagnýtt sér margvíslega eiginleika Macintosh. Kynning á Macintosh í Radíóbúðinni vikuna 6.-11. maí. Komdu við hjá okkur - það verður tekið vel á móti þér. M þarft ekki að kunna skil á flóknum skipunum til þess að stjórna Macintosh. M þarft ekki annað en benda á myndræn tákn á skjánum, og samtímis framkvæmir Macintosh skipun þína. Notaðu tíma þinn til þess að koma ein- hverju í verk. Eyddu honum ekki í vanga- veltur um það hvernig stjórna eigi tölvu. Það hafa hönnuðir Macintosh gert fyrir þig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.