Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 8. MAl 1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Norðmenn ríkir Samkvæmt tölum Alheimsbank- ans eru Norðurlöndin, nema Is- land, meðal 14 ríkustu þjóða heims. Noregur er í sjötta sæti en Svíþjóð í því sjöunda. Danmörk er í 11. sæti en Finnland í því 14. Sameinuðu arabafurstadæmin eru í fyrsta sæti, með 21.340 dollara þjóðartekjur á mann. Qatar og Kuwait eru í öðru og þriðja sæti. Þjóðartekjumar á mann í Noregi eru 13.820 dollarar og í Svíþjóö 12.400 doliarar, samkvæmt tölum frá 1983. Fyrir Island eigum við bara tölur frá 1979, og þá voru þjóðartekjurnar á mann 9.000 dollarar, eða um 360.000 krónur. Fréttamenn kvarta Fréttamenn og aðrir fræðimenn kvarta æ meir yfir ritskoöun og frjálslegri notkun leynistimpilsins hjá Bandaríkjastjórn. Núverandi stjóm Reagans hefur barist mjög gegn upplýsingalekum. Frétta- mönnum hefur oft þótt stjórnin beita óþarflega hörkulegum aðferðum við þá baráttu, og viljað halda fullmiklu leyndu. Stjómin segir að nauösynlegt sé að halda vel á leyndarmálum til að vemda þjóðaröryggi. Talið er að stjórnin íhugi jafnvel að koma á lögum umríkisleyndarmál, svipuð- um þeim sem gilda í Bretlandi. Þarlendir fréttamenn kvarta einnig mikið yfir notkun leyni- stimpilsins hjá íhaldsstjórninni þar. Tölvurískólann Tölvukennsla á að verða skyldu- fag í norskum skólum síöar á þess- um áratug. Þar er þó ekki verið að tala um kennslu á tölvur sem slíkar, heldur á að nota tölvumar til að kenna hefðbundiö námsefni. Meðal þess sem á að kenna með hjálp tölva eru saga, náttúrufræði og norska. Tölvumar geta geymt þvilíkt magn upplýsinga að kennsl- an á aö verða mun auöveldari með hjálp þeirra. Þegar hafa kennarar tekið eftir því að tölvukennsla getur hjálpað til viö kennslu allt niður í átta ára gamalla barna. 13 ára gamlir krakkar sem áttu erfitt með að tjá sig skriflega áttu miklu auðveldara með að vinna með tölvur. Fómuöu sölumanni Indverskir ættbálkamenn drápu 20 ára gamlan farandsölumann í fórnarathöfn nýlega. Indian Ex- press dagblaðiö segir frá þessu. Sölumaðurinn ætlaði að selja þorpsbúum hnifapör og annað slíkt, en var í staðinn fómað í trúarathöfn. Þegar sölumaðurínn kom ekki til baka fóru 20 starfs- bræður hans á vettvang til aö leita hans. Þegar þeir komu í þorp ætt- bálkamannanna komust þeir að hinu sanna. Þorpsbúar tóku nokkra sölumannanna höndum, en aörir komust til bæjar og sögðu lögreglu frá fórninni. Strayhefuráhyggjur Utanrikisráðherra Noregs, Sven Stray, benti nýverið á að með inn- göngu Portúgals og Spánar í Efna- hagsbandalag Evrópu verða Noregur, Island og Tyrkland einu NATO-löndin sem ekki em í banda- laginu. Hann sagði að nú væri farið enn frekar að tala um Evrópu- bandalagslöndin sem Vestur- Evrópu. Fríverslunarbandalagið EFTA, sem Noregur og Island eru í, væri nú enn frekar samband þróaðra smárikja í Evrópu. I ræðu sinni í norska Stórþinginu sagði Stray að þetta gæti skapað utanríkispólitísk vandkvæði fyrir Noreg. ROCKALL ER HLUTIAF LANDGRUNNIFÆREYJA — segja Danir, sem birta nú efnisatriði tilkalb síns ti!300þús. ferkm svæðis alþjóðalaga skal finna lausn á landa- oglandannaíkringmeösamningimilli mærum landgrannsins milli Færeyja Danmerkuroglandannaíkring.” SAKHAROV EKKIÚR LANDI þeir efnisatriði tilkalls síns. Þetta hafa Bretar og Irar einnig gert, en ekki Islendingar. „Svo snemma sem á miðjum áttunda áratug lýstu Bretland og Irland yfir tilkalli þeirra til hluta af því svæði sem samkvæmt dönsku áliti er hluti af landgranni Færeyja,” sagði í yfirlýsingu Danastjórnar. .ySamkvæmt almennum reglum Frá Jóni Einarl Guðjónssyni, fréttarit- ara DV í Osló: Ekkert virðist hæft í fréttum um að Sovétmenn ætli að leyfa Sakharov- hjónunum að flytja úr landi. Norska útvarpið kom meö þessa frétt í gær eftir ónefndum heimildarmönnum. Fréttaritari norska útvarpsins í Moskvu hafði síðan eftir öðram heimildarmönnum í Moskvu að ekkert væri hæft í fréttinni. Fréttaritarinn sagði heimildir sínar áreiðanlegar. Stjórnvöld höfðu þó gert öryggis- ráðstafanir á Fornebu flugvelli til að taka á móti hjónunum. En samkvæmt fyrri fréttinni áttu Sakharov-hjónin að koma til Noregs. Þeim átti að hafa verið gefið brottfararleyfi í tilefni af 40 ára afmæli sigursins yfir nasistum. Verkfallið í Svíþjóð: Stjórnin aðhefst ekkert Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit- ara DV í Lundi: Olof Palme, forsætisráöherra Svía, ítrekaði í gær að ríkisstjórnin hygðist ekki stööva verkfall opinberra starfs- manna með lagasetningu. „Kröfur verkfallsmanna eru út af fyrir sig réttmætar, en stundin til að setja þær fram er ranglega valin,” sagði Palme í gær. Hann sagði að deilan yröi að leysast við samningaboröiö og hét á samnings- aðila aö leggja sig fram við að finna lausn á deilunni. Sá hluti opinberra starfsmanna sem hóf verkfall 2. maí síðastliöinn heldur því fram að þeir hafi á síðastliðnu ári dregist aftur úr í launum miðað við aðra starfsmenn þess opinbera og krefjast leiðréttingar á því. Ríkis- stjórnin hefur lofað þeim leiðréttingu á næsta ári en segir að verði gengið að kröfum þeirra nú sé 3% verðbólgu- markið fokið út í veöur og vind. Verkfallið er fariö aö hafa umtals- verð áhrif. Allt innanlandsflug liggur niðri, útflutningur hefur nær algjör- lega stöðvast, fjölmörg pósthús era lokuð svo og margir barnaskólar og dagheimili. Danir lýstu yfir tilkalli sínu til 300.000 kílómetra svæðis á Færeyja- Rockall hásléttunni í gær. Tilkallið byggist á nálægð Færeyja og Rockall, sem er klettur í Atlantshafinu á milli Islands og Bretlandseyja. Aður hafa Bretar, Irar og Islendingar lýst yfir eignartilkalli sínu til klettsins. I skjalinu sem Danir birtu útlistuðu Þjóðhatjumar tvœr, Hanna og Elisabath, koma til Noregs eftir sigurinn mikla i Gautaborg. Nsast fara þor til Bretland* f söngfarflalag, sagir fréttaritari DV sam þakkir Hönnu val. Allir vilja söngvakeppni Frá Jðnl Einar Guðjónssyni, fréttarit- ara DVI Osló: Sigur Bobbysocks stelpnanna í Evrópusöngvakeppninni og sú kvöö að keppnin skuli næst fara fram í Noregi hefur hleypt nýju lífi í áframhaldandi ríg milli bæja í Noregi. Nú vilja þeir allir fá að halda keppnina að ári. Sem dæmi um þennan ríg má nefna að þegar ákveðið var að bæta við rás- rás 2- á útvarpinu hlupu þegar upp miklar illdeilur milli þeirra bæja sem vildu hýsa rásina. Þessar illdeilur stóðu í fimm ár þangað til ákveðið var að höfuðstöðvar rásarinnar væri best að hafa í Þrándheimi. Þá haföi rifrildið gengið í svo langan tíma að ekki var einu sinni hægt aö byrjaaðsenda út. Nú hafði rifrildið gengið í svo langan tíma að ekki var einu sinni hægt að byrja aö senda út. Nú hafa þeir undanfariö rifist yfir hvar rás 2 á sjónvarpinu skuli vera staðsett. Það rifrildi byrjar jafnvel áður en búið er aö ákveða hvort bæta skuli annarri rás við. Og svo strax sömu nótt og stúlkumar tvær unnu Evrópusöngvakeppnina byrjuðu hinir ýmsu bæir að lýsa yfir því að sjálfsagt væri að keppnin yrði haldin hjá þeim. Þeir bæir sem aðallega berjast um hituna era Þrándheimur, Tromsö, Lillehammer, Björgvin, Stavanger, Osló og Drammen. Aðalvandamálið er að finna nú nógu stórt hús undir keppnina og nógu mörg hótel fyrir öll þau hundruð manna sem koma til að vinna í kringum keppnina. John Teigan, sem hfur náð þeim ein- staka árangri að taka þátt í keppninni og fá ekki eitt einasta stig, hefur komið með tillögu um lausn vandans. Hann vill, að hætti Salomons, að keppninni verði skipt á milli bæjanna. Helmingur keppenda syngi í Björgvin, hinn helmingurinn í Kristjanssund, kynnir- inn verði í Björgvin, hljómsveitin veröi í Osló, kórinn verði í Þrándheimi, og blaðamönnunum verði dreift um Nor- eg svo þeir fái að kynnast landinu. Félagar í tannlæknafélaginu dragi I riðlana. Það eru auðvitað dagblöðin sem magna deilumar og egna bæjarbúa til að gefa út stóryrtar yfirlýsingar um ágæti sinna bæja, enda slíkar illdeilur ágætis söluvara. Blöðin munu líklega geta lifað gúrkutíma sumarsins á þessu máli, því ákvörðun um hvar keppnin mun fara fram kemur ekki fyrr en 20. október. Englr skógar íVíetnam? Ef svo fer sem horfir verða engir skógar í Víetnam árið 2.000. Þetta land, sem einu sinni var þekkt fyrir þykka frumskóga sem ógnuðu bandarískum hermönnum, á við mikla skógeyðingu að stríða. Bandaríkjamenn eyddu geysilega miklu magni skóga með úðun gróður- eyðingarefna þegar þeir vora að reyna að svæla skæraliða Víetkong úrfylgsnumsínum. Ekki hefur nú tekið betra við. Vegna mikillar fólksfjölgunar hefur orðiö að ryðja mikið magn trjá- gróðurs. Einnig er mikill gróður notaðuríeldivið. Minna en 23 prósent landsins eru skógi vaxin í dag. Arið 1943 voru þaö 44 prósent.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.