Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Page 40
FR ETTASKOTIÐ (68) *(58) Sími ritstjórnar: 68 66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, simi 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ1985. Ætti frysti- hússtjóminað sitjaíhaldi? Guömundur Einarsson, Bandalagi jafnaöarmanna, var ómyrkur í máli í þingsölum í gær er hann ræddi um brunavarnir og orsakir stórbruna hér á landi. Sagöi hann aö margan brun- ann mætti rekja til vanrækslu eöa íkveikju. Enginn væri ábyrgur en tug- milljóna tjón væru greidd þrátt fyrir þessar orsakir. Nefndi hann brunatjón bæði á Hellissandi og Suðumesjum. Um frystihúsiö á Hellissandi lá fyrir skýrsla eftirlitsmanna þar sem greint var frá einum 17 atriöum sem var ábótavant þar fyrir brunann sem þar var. „1 venjulegum lýöræðisríkjum væri búið að setja stjóm frystihússins á Hellissandi í fangelsi,” sagði þing- maðurinn. Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra, sem þingmaöurinn beindi fyrirspurnum til varöandi úrbætur, sagði aö um 96 milljónir króna heföu verið greiddar áriö 1983 vegna bruna- tjóna á atvinnuhúsnæði. Orbóta væri aö vænta í þessum málum til viöbótar viðþaösemþóhefurveriögert. -ÞG. Jaröarpartur á60milljónir Sextíu milljónir á að borga fyrir 1.635 hektara úr jöröinni ölfusvatni í Grafningi. Kaupveröiö skiptist á sex ár. Kaupandi er Reykjavíkurborg. Borgaryfirvöld vilja tryggja sér hugsanlegan jaröhita. Jöröin er næst viö Nesjavelli, þar sem Hitaveita Reykjavíkur mun væntaniega virkja háhita í stórum stíl. Sú jörö er borgar- eign. Samningsdrög vegna kaupa á ölf usvatni liggja nú fyrir aöilum. HERB. Tveggjaára samningar? Framkvæmdastjórn VSI ákvaö í gær aö bjóöa verkalýðshreyfingunni tU viðræöna nú þegar, meö tveggja ára samninga fyrir augum. Höfuð- markmiðiö á aö vera aö auka kaup- mátt með því að tryggja efnahags- legan stööugleika. Verkalýöshreyfingin hefur ekki tekið afstööu til þessa tUboös at- vinnurekenda. APH. glansskol frá Meira magn, betri ending. ^^Haildéölubirgðir^ ^rctic '7t<u&k4 LOKI Friður sé með yður — eða þannig! Innbrotsþjóf ur staðinn að verki í heimahúsi: „Lá á hnjánum viö náttboröiö mitt” „sjálfsagt fyrir f ólk að vera á verði,” segir rannsóknarlögreglan „Hann lá á hnjánum við náttboröið ' mitt og var að gramsa í skúffunni. Hinum megin viö rúmiö var hann búinn aö tæma veski húsbóndans sem þar lá,” sagði kona í Heimahverfinu sem varö fyrir þeirri miöur ■ skemmtilegu reynslu að vakna upp um miðja nótt við þaö að svartklæddur innbrotsþjófur var staddur í svefn- herbergi hennar. Þau hjónin höföu sofið vært og ekki orðið vör viö neitt óvenjulegt fyrr en innbrotsmaðurinn var við rúmstokkinn. „Eg stökk fram úr rúminu og sagði manninum að hypja sig út. Aður en hann fór sagði hann ofur kumpánlega, „afsakaðu frú” og síðan var hann horfinn út í náttmyrkrið.” Hann tók með sér plastpoka með tveimur óáteknum vínflöskum en þeim var haganlega komið fyrir í poka sem hann hafði látið viö útidyrnar á jarö- hæðinni.” Þrátt fyrir greinargóða lýsingu konunnar hefur lögreglunni ekki tekist að hafa hendur í hári innbrots- mannsins. Fyrr í vetur hefur veriö brotist inn í fleiri íbúðir í Heimahverf- inu, m.a. í næsta húsi viö þau hjón. Lögreglunni tókst í vetur að hafa uppi á öðrum manni sem játaði fjölmörg innbrot í Hlíða- og Fossvogshverfi og síöan hefur veriö kyrrt þar um slóðir. Fleiri borgarbúar hafa fengið slíkar heimsóknir á undanfömum vikum. Innbrotsþjófar viröast eiga auðvelt um vik vegna þess að íbúar ganga ekki tryggilega frá gluggum og huröum áöur en þeir ganga til náða eða fara að heiman. „Þaö er ekki hægt aö tala um innbrotafaraldur en það er sjálfsagt fyrir fólk aö vera alltaf vel á verði,” sagöi Ivar Hannesson hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins þegar DV ræddi við hann um innbrotin. -EH. Konan sýnlr blaðamanni hvamig innbrotsmaðurinn athafnaði sig við nátt- borðið. DV-mynd GVA. Geir á móti banni Alþjóðlega fréttastofan Reuter vitnaöi í morgun í Geir Hallgrímsson utanrikisráðherra, þarsemhannfor- dæmir viðskiptabann Bandaríkjanna áNicaragua. „Eg harma þá ákvörðun aö setja viðskiptabann á Nicaragua og ég trúi þvi ekki að það geti haft nein góö áhrif,” hefur fréttastofan eftir Geir. Hann lét þessi ummæli falla á fundi sameinaðs Alþingis í gærkvöldi. Þar var verið aö ræöa um árlega skýrslu utanríkisráöherra. Fjöldi annarra Evrópuríkja hefur einnig fordæmt viðskiptabanniö sem var tilkynnt í siðustu viku. Á leiðtogafundinum í Bonn fyrir helg- ina neituðu leiötogar sjö vestrænna iönrikja að styöja viöskiptabannið. -ÞóG. PRESTURINN RAUK Á DYR A síðasta aðalfundi Fríkirkju- safnaðarins rauk presturínn, Gunnar Björnsson, á dyr. Astæðan fyrir þessari gjörð prestsins var niðurstaða kosningar í stjóm safnaðarins. Þegar ljóst var að hann hafði ekki fengið sinn mann kjörinn í stjóm rauk hann burtu í fússi. „Þetta var líflegur fundur með átökum,” segir Gunnar Bjömsson, prestur Fríkirkjusafnaðarins. Samkvæmt upplýsingum DV hafa verið einhverjir samstarfsörðug- leikar milli prestsins og safnaöarins. Þeir byggjast meöal annars á meintu skilningsleysi safnaðar- stjómarinnar á starfsaöstööu prests- ins. Formaður safnaðarstjómar, Ragnar Bemburg, vill lítiö segja um þetta mál. Hann segir aö á næstunni verði reynt að komast til botns í málinuogleitaeftirsáttum. APH. Hótel ísaf jörður. Stór hluti skulda þess felldur niöur Þingmenn Vestfjarðakjördæmis hafa í sameiningu reynt aö bjarga fjárhagsstööu Hótel Isafjarðar sem er vægast sagt slæm. Þingmennirnir komu grein inn í fjárlög þessa árs sem miðar aö því aö fella niður stóran hluta skulda hótelsins. I fjárlögum þessa árs er heimild fyrir því aö ríkiö greiöi allt aö 5 milljónum króna til Ferðamálasjóðs vegna skulda hótelsins þar. Reyndar er þaö með því skilyrði að aörir lánardrottnar fallist á að fella niður tilsvarandi upphæð af kröfum sínum á hendur hótelinu. Gestur Halldórsson, stjórnarfor- maður Hótel Isaf jarðar, vill ekkert segja um þetta mál. Hins vegar verður aöalfundur haldinn á næstunni þar sem fjármál hótelsins veröa gerð kunn. Bjarni Ámason, formaður Ferða- málasjóös, vill ekkert segja umþetta mál. Hann segir aö öll mál og erindi sjóðsins séu trúnaöarmál. Matthías Bjamason samgöngu- ráðherra segist kannast vel við þetta mál. „Eg veit ekki betur en að heimildin hafi veriönotuð,” segirhann. Samkvæmt heimildum DV em þaö tugir fyrirtækja sem hóteliö skuldar. Þessi niöurfeliing gæti numiö alit aö 15 miiljónum. Núer kunnara en frá þurfiað segja að f járhagsstaða margra hótela úti á landsbyggðinni er slæm. Margir telja að með þessu verði gefið f ordæmi og aðrir komi í kjölfariö. „Eg býst ekki viö því. Hér var um þaö aö ræða aö leggja hóteliö niöur eða ekki,” segir Matthías. Samt virðist ekki vera ljóst hvort búið er aö nota þessa heimild. Fjár- málaráðherra hefur þetta að segja: „Eg hef ekki hugsað mér aö nota þessa heimild og ég veit ekki til þess aö aörir lánardrottnar, sem nefndir eru, hafi fallið frá kröfum sínum,” segir Albert. -APH. 5 5 4 \ i 4 4 4 4 4 4 é

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.