Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Side 11
DV. MÍÐVIKUDAGUR 8. MAl 1985.
11
„Bréfið kemur mér á óvart”
— segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASI
„Ég skil ekki í hverju ágreiningur
okkar á milli er fólginn. Þess vegna
kemur bréf þeirra mér á óvart og ég
átta mig ekki á á hvaða forsendum
þaö er byggt,” segir Ásmundur
Stefánsson, forseti ASI, um bréfiö
sem húsnæðishópurinn hefur sent til
miðstjómar Alþýðusambandsins.
Bréfs þessa var getið í DV í gær.
Asmundur hefur áður bent á að
frumvarpið um greiðslujöfnun hafi
ýmsa ágalla. Kaupmáttarviðmiðun-
in í frumvarpinu er ekki eins og ASI
hafði kosið. Miða hefði átt við kaup-
taxta en ekki sambland af töxtum og
atvinnutekjum. Þá er einnig ósvarað
hvernig aðrar lánastofnanir muni
bregðast við frumvarpinu og hvort
þær eigi eftir að taka upp greiðslu-
jöfnun. Einnig telur ASI það vera
galla að sá hópur sem á eftir að njóta
góðs af greiðslujöfnun lána er ekki
nægilega vel skilgreindur í frum-
varpinu.
Asmundur segir að ASI leggi einn-
ig áherslu á það að f jármagn til Hús-
næðisstofnunar verði aukið. Það sé
grundvöllurinn fyrir því aö þessi
lausn eigi eftir að ganga og aðrar úr-
bætur kunna að verða gerðar.
„I þessu bréfi húsnæðishópsins er
ekkert sem við höfum ekki verið með
í okkar viðræðum,” segir Asmundur
og ítrekar að hann líti ekki svo á að
viðræöum ASI og stjórnvalda sé lok-
ið. Hann segir að ekki hafi verið vilji
af hálfu stjórnvalda til að fara
skattalækkunarleiðina í ár. Þeim
umræðum hef ur þó ekki verið lokið.
I bréfinu kemur m.a. fram að rík-
isstjómin hafi tekið vel í það að
greiða til baka það misgengi sem
skapast hefur miUi kaupgetu og láns-
kjara. „Það eru töluvert önnur við-
horf en komið hafa fram í viðræðum
við okkur,” segir Asmundur. „En
efnislega sýnist mér hópurinn vera
að taka á sömu atriðum og við höfum
veriðað nefna.
Mér þykir því undarlegt að þeir
skuli senda þetta bréf til okkar en
ekki stjórnvalda. Því það eru stjórn-
völd sem hafa staðið gegn því að
meira kæmi fram og málsins vegna
brýnt að halda áfram að þrýsta á
stjómvöld. Því fer fjarri að viðræð-
um okkar viöstjómvöld sé lokið.”
Asmundur segir einnig að enn sé
ekki búið að semja um lækkun vaxta,
sem ASI hefur lagt mikla áherslu á í
viðræðum við stjórnvöld. Breyting á
vöxtum getur að hans mati haft
mikla þýðingu fyrir skuldum vafna
húsbyggjendur.
APH
Eski-
fjarðartog-
ararnir með
1.844 tonn
Aflabrögð Eskifjarðartogaranna
Hólmatinds SU 220 og Hólmaness SU 1
frá áramótum til aprílloka hefur verið
samtals 1.844 tonn.
Hólmanes hefur veitt 869,6 tonn á 93
úthaldsdögum. Brúttó aflaverömæti er
13,2 milljónir og er hásetahlutur með
orlofi 204.611 kr.
Hólmatindur hefur veitt 974,4 tonn á
100 úthaldsdögum. Brúttóverðmæti er
kr. 15.464.802 og hásetahlutur með or-
lofikr. 231.500.
Regína, Eskifirði.
Blómaskreytingar
við öll tækifæri
JNOWCAP
kœliskápur
semer
rúmgóbur
ogódýr
mtekurlítib
pláss
ÁDUR KR. 9.750,-
Vega kæliskáparnir fásl i þremur slæröum:
Vega 150 I., Vega 160 I.
JNOWCAP og Vega 280 I.
<>.» Ur« Mil
Vega 150 ; 150 IH. 85. Br. 58. ). 60 ! já
Vega 100 IGO,M 121. Hr. 56. ). 60 |á
Vega 280 280’H. 143, Br. 57. 3. 60 J |á
Skipholt 7 Símar
Rvik. 91-26800
91-20080
HAGKAUP GEHGUR í LIÐ MEÐ Í5LEH5HUM IÐHAÐI
Það er góð stemmning
á Í5LEN5KUM DCKjUM í MAGÞAUP:
VÖmKYNMIKjAR - TÍ5KU5Ýhlh(jm - 5KEMMTIAmiÐI
NÚ
Efí
BOLT/NN
HJÁ
ÞÉfí