Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1985, Page 12
12
útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stiórnarformaflurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvaemdastjóriog útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON. :
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjðrar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12—14. SlMI 684011. Auglýsingar: SlDUMULA 33. SlMI 27022. (
Afgreiðsla,áskríftir,smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SlMI 27022.
Sími ritstjórnar: 68ÓÓ11.
Setning, unjbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SlÐUMÚLA 12.
Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 1».
Áskriftarverð á mánuöi 330 kr. Verð í lausasölu 30 kr.
Helgarblað35kr. _________________
Þörfnumst ratsjárstöövanna
Alþýöubandalagsmenn kölluðu yfir sig samþykkt
Alþingis á byggingu ratsjárstöðva.
Þeir grófu sína gröf.
Að frumkvæði alþýðubandalagsmanna báru Stein-
grímur J. Sigfússon, Alþýðubandalagi, og Kolbrún Jóns-
dóttir, Bandalagi jafnaöarmanna, fram tillögu gegn rat-
sjárstöðvunum. Þar sagði: „Alþingi ályktar að fallið
skuli frá öllum hugmyndum um að heimila að reisa nýjar
hemaðarratsjárstöðvar á íslandi og felur ríkisstjóminni
aö synja öllum óskum, sem kunna að berast um leyfi til
að reisa slík mannvirki á íslenskri grund.”
Haraldur ölafsson, Framsóknarflokki, bar fram tillögu
um, aö þessari tillögu skyldi vísað til ríkisstjómarinnar.
Tillaga Haralds var felld með 43 atkvæðum gegn 13, en 4
voru fjarstaddir.
Með því að fella tillögu Haralds lýsti Alþingi vilja
sínum til þess, að tillaga Steingríms og Kolbrúnar mætti
koma til atkvæða, svo að þingheimur gæti lýst áliti sínu,
fellt þá tillögu einnig.
Tillaga Steingríms og Kolbrúnar var síðan felld með 42
atkvæðum gegn aðeins 15, tveir voru f jarstaddir og einn
greiddi ekki atkvæði. Með tillögunni voru einungis
alþýðubandalagsmenn og kvennalistakonur auk
framsóknarmannanna Ingvars Gíslasonar, Guðmundar
Bjamasonar og Páls Péturssonar.
Þingmenn Bandalags jafnaðarmanna greiddu atkvæði
gegn tillögunni utan flutningsmaöurinn, Kolbrún. ;
Að sjálfsögðu þýðir þetta, að Alþingi hefur lagt blessun
sína yfir byggingu ratsjárstöövanna. Aumlegt er yfirklór
alþýðubandalagsmanna um, að það felist ekki í niður-
stöðunni. Skýlaust er, að Alþingi felldi tillögu um aö falla
frá hugmyndum um byggingu ratsjárstöðvanna.
Flutningsmenn tillögunnar geröu því skóna í greinar-
gerö, að bygging ratsjárstöðvanna væri „hlekkur í keðju,
sem leitt getur til vaxandi spennu og ófriðlegs ástands
umhverfis landið og á nálægum svæðum”. Alþingi hefur
hafnað þessu.
Flutningsmenn sögðu: „. . . að ný hernaðarmannvirki
og aukin umsvif annars stórveldisins hér geti kallað á
mótleiki af hálfu hins og þannig koll af kolli”. Alþingi
hefur hafnað þessari kenningu. Mikill meirihluti þing-
manna telur, að „aukin hemaðarumsvif” felist ekki í því
að reistar séu fyrirhugaðar ratsjárstöðvar.
Alþýðubandalagsmenn höföu gert sér vonir um að
spilla stjómarsamstarfinu meö þessari tillögusmíð. Vitað
var, aö einhverjir framsóknarmenn eru andvígir rat-
sjárstöðvunum. Jafnvel höfðu fjölmiölar fullyrt, þótt
rangt reyndist, að meirihluti framsóknarmanna væri
andvígur ratsjárstöðvunum.
Skoðanakönnun DV sýndi, að mjótt var á munum
fylgismanna og andstæðinga ratsjárstöðvanna meðal
landsmanna. Þaö stafar vafalaust af því, að rat-
sjárstöðvamar hafa ekki verið nægilega kynntar.
Þingheimur hefur tekið af skarið. Hann hefur í fyrsta
lagi hafnað tillögu, sem það fólst í, að þingið þyrfti ekki
aö taka afstöðu til meginmálsins. Þingheimur hefur í
öðm lagi beinlínis og skýrt fellt tillögu um að hverfa frá
áformum um þessar ratsjárstöðvar. Sú túlkun er því rétt,
að Alþingi hefur samþykkt ratsjárstöðvamar.
Þeir Islendingar, sem skoða málið grannt, munu sjá, að
loka þurfti „ratsjárgati” í flugi yfir Island. Sovétmenn
hafa getað komizt framhjá- eftirliti ratsjánna nú. Slíkt
skapar einkum hættu, af því að Rússar fljúga án þess að
tilkynna sig, utan við lög og reglur, og geta því valdið
stórslysum í fluginu. Haukur Helgason.
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. MAl 1985.
mb. '■
4 í * ■ Mý * 1 mWnr -r-Jkr V
„Þann 27. april maattuat harir Sovétrikjanna og Bandarikjanna vlð Elbu I Þýskalandl, og aðfaranótt 8.
mai undlrrituðu ÞJóðvarJar akllyrðisiausa uppgjðf sina. Margra ára martrðð var létt af Evrópu."
Á tímamótum
Þann 27. apríl 1945 mættust herir
Sovétrikjanna og Bandarikjanna við
Elbu i Þýskalandi, og aðfaranótt 8.
maí undirrituðu Þjóöverjar skil-
yrðislausa uppgjöf sína. Margra ára
martröð var létt af Evrípu. I móti
hermannanna viö Elbu þóttust
margir sjá tákn um sáttagerð
austurs og vesturs og eygöu end-
anlegan frið i álfunni eöa jafnvel
heími öllum. Allir vonuöust til að
þessar þjóöir, sem höföu háð baráttu
gegn hinni verstu villimennsku sem
heimurinn kunni þá frá að greina,
gætu komið sér saman um að skapa
þjóðum heims friðvænlega veröld og
samvinna þeirra á stríðstímunum
yrði grundvöllur að samvinnu á
friðartimum.
Reyndin varð þó önnur. Svo sem
kunnugt er hafði sú ósk blundað í
brjóstum margra kapítalista og iðju-
hölda í hinum vestræna heimi allt
frá upphafi styrjaldarinnar, að hægt
yrði aö beina herjum Hitlers austur á
bóginn og láta Þýskaland nasismans
og Sovétríkin eyðileggja hvort
annað, eöa láta „rakkann Nasa og
rakkann Bol rífa hvor annan á hol”,
eins og Douglas Reed hafði eftir
breskum stjómmálamanni í bók
sinni, Hrunadans heimsveldanna,
sem hann skrifaði eftir dvöl sina i
Þýskalandi rétt fyrir síöari heims-
styrjöldina.
Ekki voru vígvélar styrjald-
arinnar fyrr þagnaðar en upphófst
æðisgenginn áróður gegn Sovét-
rfkjunum, sú hervæðing hugarfars-
ins, sem áður hafði ríkt gegn
Þjóðverjum og öllu sem þýskt var
beindist nú gegn Sovétríkjunum. I
hernumdu löndunum hafði á
stríðsárunum starfaö andspymu-
hreyfing, misjafnlega öflug en all-
staöar virk að einhverju marki. I
forustu þessara hreyfinga voru alltaf
kommúnistar, og í stríðslokin
bjuggust margir við að eftir
styr jöldina yrði E vrópa að meira eða
minna leyti rauö. Svo sem kunnugt er
tók alþýðan völdin í austurhluta
álfunnar, og hét það á máli vest-
rænna ríkja „útþenslustefna
Rússa”. Minna var talaö um hitt, aö i
Grikklandi var þróunin á sama veg,
þar leit einnig út fyrir að alþýðan
my ndi taka völdin, en þar var f relsis-
hreyfingu hennar drekkt í blóði.
Breskur her var sendur inn í landið
til að „skakka leikinn” eins og þá var
sagt, og frelsissveitimar voru yfir-
bugaðar og forusta þeirra ýmist
drepin eða sett í fangabúðir. Margir
róttækir ásökuöu Sovétríkin fyrir að
koma ekki alþýðu Grikklands til
hjálpar, en þá hefði sjálfsagt verið
komið þaö ástand sem afturhalds-
postularnir á Vesturlöndum óskuöu
sér, það er að segja „ástæða” til að
fara með her á hendur Sovétrfkjun-
um, eða varpa á þau kjamorku-
sprengju.
En hvað varð af stríðsglæpamönn-
unum? Svo sem kunnugt er voru
stríðsglæpamenn Þjóðverja leiddir
fyrir dómstólinn í Numberg. En ekki
kom nema lítill hluti þeirra til skila,
það var eins og jörðin hefði gleypt
Kjallarinn
MARÍA
ÞORSTEINSDÓTTIR
STARFSMAÐUR SOVÉSKU
FRÉTTASTOFUNNAR APN
A fSLAN.DI.
þá. Orðrómur var á kreiki um að
Bandaríkin hefðu tekið við þeim og
veitt þeim skjól. ýmist í Banda-
ríkjunum sjálfum eða í ýmsum
einræöisrfkjum Suöur- og Mið-
Ameríku. Að vísu var vitað að Roose-
velt og Truman höfðu lagt blátt
bann við innflutningi slíkra manna
þangað, svo ekki þótti þetta trúlegt,
og sá sem hefði látiö sér slíkt um
munn fara á síðari árum hefði
áreiðanlega verið talinn „útsendari
Moskvu”.
En 13. júní 1982 birtist loksins i
íslenskum fjölmiðli, Tímanum,
fróðleg grein eftir Illuga Jökulsson.
Hann segir frá ungum lögfræðingi
frá Boston, John Loftus að nafni,
sem komiö hafði fram í bandaríska
sjónvarpinu og skýrt frá þessum
innflutningi á glæpamönnum eftir
síðari heimsstyrjöldina en lög-
fræðingurinn var forseti nefndar,
sem Carter, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, hafði stofnað á
vegum dómsmálaráðuneytisins til
að kanna hvað hæft væri í þessum
orðrómi.
Svo sem kunnugt er sto&iaði leyni-
þjónusta Bandaríkjanna útvarps-
stöðvamar Free Europe og Liberty
eftir stríðiö. Hlutverk þeirra var
tvíþætt, annarsvegar að útmála dýrð
vestursins fyrir þeim sem fyrir aust-
an bjuggu, hinsvegar aö hervæða
hugarfar Vesturlanda gegn Sovét-
rikjunum og öðrum sósíalískum
ríkjum. Til þessara starfa voru
stríösglæpamennirnir kjömir.
Skýrslur þær er Illugi vitnar i fjalla
þó ekki um þýska glæpamenn,
heldur hvítrússneska, sem unniö
höfðu með Þjóðverjum og ekki verið
neinir eftirbátar þeirra í útrýming-
arstarfseminni. Illugi segir orðrétt
eftir Loftusi: „Okkar menn náðu i
alla nasistastjómina í Hvíta Rúss-
landi: forsetann, varaforsetann,
ráðherrana, fylkisstjórana, borgar-
stjórana og lögreglustjórana. Þeir
eru nú allir búsettir í Bandarfkjun-
um”. Einn þessara manna, Vilis
Hazner hafði verið leiddur fyrir rétt
um þetta leyti, og yfirmenn hans í
CIA þurft að segja honum upp
störfum um stundarsakir, til mála-
mynda, en endurréðu hann strax
aftur.
Þetta vom mennirnir sem notaðir
voru til að hervæða hugarfar
Vesturlanda gegn Sovétríkjunum og
kommúnistum yfirleitt. Þetta vom
mennimir sem reyndu af fremsta
megni aö fá þegna hinna sósíalísku
ríkja til að „hoppa af” og kjósa hið
vestræna „frelsi”. Það þarf því ekki
að koma neinum á óvart þó Banda-
ríkjaforseti Ieggi leið sína til Bitburg
til að leggja blómsveig á leiði nas-
istaforingjanna, það getur vart talist
annað en eðlileg þróun.
I þessu sambandi er og vert að
minnast þess, að fyrir nokkm birtist
bandarisk skýrsla um hvemig
bregðast ætti við eftir stríðið ef
„kommúnistar” hér á Islandi
sigruðu í kosningum, það átti að
stöðva þá þróun með hervaldi.
Nú, þegar við minnumst þess að 40
ár era liðin frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar er efalaust mörgum
sú spurning ofarlega í huga, hvert
framhaldiö verðL Mun Reagan
Bandarikjaforseta og bandarískum
hergagnaframleiðendum takast að
leiða helför kjarnoikunnar og
„stjömustríðsins” yfir heiminn, eöa
tekst friðar- og sáttaöflum heimsins
að bera sigur úr býtum? Það er
áreiðanlega ósk allra heiðvirðra
manna hvar í heimi sem þeir búa.
Þaö er ósk okkar allra á þessum
tímamótum en þá veröum viö líka aö
þekkja okkar vitunartíma og leggja
öll hönd á plóginn til að svo megi
verða.
Maria Þorsteinsdóttlr.
A „Svo sem kunnugt er hafði sú ósk
blundað í brjóstum margra
kapítalista og iðjuhölda í hinum vest-
ræna heimi allt frá upphafi
styrjaldarinnar, að hægt yrði að beina
herjum Hitlers austur á bóginn og láta
Þýskaland nasismans og Sovétríkin
eyðileggja hvort annað.”