Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Síða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur
Betra kaff i með
réttrí hreinsun?
Kaffi er misgott ó bragöið — um þaö
verður varla deilt — en hins vegar eru
menn yfirleitt ekki á eitt sáttir um or-
sök þess að kaffið bragðast ekki sem
skyldi. Er ekki notuð hin eina rétta
kaffitegund, skyldi vera betra að hella
upp á meö gamla laginu, er ekki rétt
magnhlutfall af vatni og kaffi eða hef-
ur allt mallaö á hita og komið með hálf-
seyddankeim?
Allar þessar ástæöur þykja góöar og
gildar en Kaffibrennsla Akureyrar
bendir á eina að auki — ónóg eða röng
hreinsun ó áhöldum til kaffigerðar. Til
þess að bæta úr ástandinu hafa þeir á
Akureyri flutt inn þvottaefni til hreins-
unar á kaffivélum, tvær gerðir eru fó-
anlegar. önnur fyrir heimilisvélar og
hin fyrir stórar vélar í veitingahúsum
og mötuneytum. Þaö siðarnefnda má
ekki nota í heimiliskönnurnar.
Obrennt kaffi inniheldur 10—15% fitu
og vax. Mest af því eyðist við brennslu
en þó verður alltaf eitthvað eftir og
myndar með tímanum fituskán á þeim
flötum sem kaffið kemst í snertingu
við. Fita dregur til sín bragö og lykt —
þessi líka! Því er það að ef kaffivélam-
ar eru ekki hreinsaðar reglulega hefur
það með tímanum óhrif á bragð og ilm
kaffisins. Svo er það annað, hvort
menn sækjast eftir þessu bragði af
gömlu kaffi. Hér áður urðu til dæmis
taupokar aö verða nokkuö legnir til
þess að kaffið þætti drekkandi og harð-
bannað var að þrífa kaffikönnur
hressilega að innan.
Við hreinsun ó kaffivélum er alltaf
mikilvægt að forðast þvottaefni sem
innihalda sápu eða klór, því þau skilja
eftir bragð og lykt í vélunum. Hreinsi-
efnið frá Kaffibrennslu Akureyrar
inniheldur ekki slík hreinsiefni en
mönnum er þó ráðlagt að fara ná-
kvæmlega eftir leiðbeiningunum á
pakkningunum. Þetta hreinsiefni leys-
ir upp kaffiskán en á ekki að skilja eftir
bragð eða lykt. Þvottaefnið til heimilis-
nota fer í verslanir en það sem ætlað er
stærri stöðum verður selt í Kaffi-
brennslunni sjálfri á Akureyri, Sjöfn í
Garðabænum og matvörudeild Sam-
bandsins í Holtagörðum.
baj.
Lítil eða engin hreinsun kaffivél-
anna getur haft i för með sér beiskt
og biturt kaffi. Hreinsiefnið frá
Kaffibrennslu Akureyrar œtti að
gera mönnum fært að halda rétta
bragðinu.
Raddir neytenda Raddir neytenda Raddir neytenda
heildarOtgjöldin
NÆRRI100 ÞÚSUND
,,Eg á ekki til orð, en þetta er stað-
reynd,” segir m.a. í bréfi frá Hóffí sem
hún sendi með upplýsingaseðlinum
sínum fyrir maimánuð. Hún á við upp-
hæðina á seðlinum sem hljóðar upp á
samtais hvorki meira né minna en
98.175 kr.!
Þar af er matur og hreinlætisvörur
upp á 14.450 kr. (aðeins 2.408 kr. á
mann, því fjölsk. er sex manna). Lið-
urinn „annað” er upp á 83.725 kr.
„Þama er meðtalin bílasprautun á
30.000, fasteignagjöld á 10.464, (þá er
ein greiösla eftir), dekk og bensin
5.000 o.fLo.fl.
Þetta er alveg agalegt. A morgun
ætlum við að selja bilinn og kaupa okk-
urannan.
Baróttukveðjur, HóffL”
Verðá
gæsluvöllum
Lesandi hringdi:
„Mig langar að koma á framfæri
leiðréttingu við skrif um verð á gæslu-
völlum á höfuðborgarsvæðinu. I
Reykjavík er búið að hækka gjaldið úr
10 krónum og upp í 15 krónur. Það þarf
að borga þá upphæö inn á alla vellina
sem eru með einhverri gæslu. Verðið á
gæsluvöllum á Seltjamarnesinu finnst
mér of hátt þrátt fyrir kannski aðeins
meiri þjónustu. Það hlýtur að vera
talsverður peningur þegar saman
kemur fyrir fólk sem þarf ekki á öðru
að halda en leyfa baminu að vera úti í
einhverntíma.”
flftl/?glTVU?f^>
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
# ViD ERUM í hjarta borgarinnar við Brautarholt.
# VID HÖFUM rúmgóðan sýningarsai og útisölusvæði.
# VID BJÓÐUM mikið úrvai notaðra bíla af öllum gerðum.
# VIÐ VEITUM góða og örugga þjónustu
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725 / ;
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
13010
Tímapantanir
DEN ORIGINALE!
Teg. 1504 Free. Stœrðir: nr. 40—46.
Litir: grátt eða svart ledur. Verd kr. 1.675,-
Skóverslun pöstsendum
Þórðar Péturssonar
T.nunniipni QR. aimi 1 K'iw*h>itioTirn>Ti R o»mi 1At9lÍ
Hversdagshetjan
Þú færö mikið fyrir peningana meö
HUSQVARNA OPTIMA. Alla sauma sem
koma að góðum notum dags daglega.
Og auðveld að stilla.
Hnappagöt, rennilása og teygjanlega
sauma saumar OPTIMA auðveldlega.
Þess vegna mælum við með OPTIMA
sem fyrsta flokks HUSQVARNA gæði á
viðráðanlegu verði
Husqvarna
Mest selda saumavélin á íslandi.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200