Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Frá Krlstjánl Ara Arasyni, fréttarit-
ara DV í Kaupmannahöfn:
Staðsetning sænska kjarnorkuvers-
ins BarsebSck við Eyrarsund, örfáa
kílómetra frá Kaupmannahöfn, hefur
til langs tíma verið mikið deilumál
milliDana og Svía.
Hafa Danir margoft mótmælt stað-
setningu kjarnorkuversins þvi litið
þarf út af að bera í rekstri þess til þess
að stórslys verði.
Hingað til hafa Svíar vísað allri þess-
ari gagnrýni Dana á bug. Síðastliöinn
laugardag urðu þeir kröftugustu jarð-
skjálftar sem átt hafa sér stað í sunn-
anverðri Skandinaviu á þessari öld,
skammt frá kjarnorkuverinu Barse-
back og mældist kröftugasti skjálftinn
um 4,5 stig á Richter kvarða. Þótt jarð-
skjálfti þessi hafi ekki valdiö neinum
skemmdum á kjamorkuverinu telja
margir gagnrýnendur kjamorkuvers-
ins að örlítið kröftugri jarðskjálfti
hefði getaö valdið stórslysi og því beri
að stöðva nú þegar rekstur kjarnorku-
versins.
I kjölfar þessara jarðskjálfta hefur
umhverfismáiaráðherra Dana, Chr.
Kjamorkuver
á reiðiskjálfi
Christensen, látið hafa eftir sér að
gera verði ítarlega rannsókn á hugsan-
legum afleiðingum stórra jarðskjálfta
í námunda við kjarnorkuverið.
Leggur hann til að skipuö verði
nefnd sem bæði Danir og Sviar eigi
fulltrúa í. Aður hefur svona nefnd f jall-
að um hugsanlega hættu af kjarnorku-
verinu og skilaöi hún áliti í mars
siðastliönum. I þvi nefndaráliti var
nær ekkert fjallaö um þá hættu er fylgt
getur jarðskjálftum. Að sögn yfir-
manna Barseback kjarnorkuversins
urðu starfsmenn þess á engan hátt
varir við jarðskjálftana.
, Reyndar viðurkenndu þeir að þó svo
að þeir hefðu orðið skjálftanna varir
þá væru engin fyrirmæli til um hvemig
bregðast ætti við svona náttúruham-
förum.
Æsispennandi kosningabarátta
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
araDVíSvíþjóð:
Utlit er fyrir að kosningabaráttan í
Sviþjóð verði æsispennandi í ár. Sam-
kvæmt nýjustu skoðanakönnuninni,
sem birt var fyrir helgi, eru fylking-
amar tvær með svo svipað fylgismagn
að munurinn, sem er á þeim í könnun-
inni, telst ekki marktækur.
Sósíölsku flokkarnir tveir hafa sam-
tals 48,7 prósent fylgi en borgaralegu
flokkarnirhafa 49,5prósent.
Bandalag Miðflokks og Kristilega
flokksins hefur 15,4 prósent, Þjóöar-
flokkurinn 6,5 prósent, Hægri flokkur-
inn 27,6 prósent. Jafnaðarmenn hafa
43,7 prósent og Vinstri flokkur-
inn/kommúnistarnir hafa 5,0 prósent.
Aðalbreytingin frá síðustu skoðana-
könnunum er sú að Miðflokkurinn hef-
ur bætt við sig fylgi á kostnaö hægri
flokksins. „Skoðanakönnunin sýnir að
hin sterka staöa Hægri flokksins er
goðsögn ein,” sagði Olof Palme forsæt-
isráðherra. Hann bætti því við aö nú
virtist sem fylgið ætlaði óvenju-
snemma að hrynja af hægri mönnum.
Walker-njósnamálið:
Ekki meiri áhrif
við ísland en
annars staðar
— segir MacDonald við DV
Oskar Magnússon, DV, Washington:
„Island gegnir vissulega lykilhlut-
verki í varnarkeðjunni en ég get ekki
séð að þær upplýsingar, sem Sovét-
menn hafa hugsanlega fengið frá
Walker-njósnahringnum, hafi alvar-
legri áhrif á svæðinu viö Island en
annars staðar í heiminum,” sagði
Wesley L. MacDonald, yfirmaður
Norður-Atlantshafsflota Banda-
rikjanna og NATO, í samtali við blaða-
mann DV. MacDonald sagði að nú
væru viðbrögð Bandarikjanna miöuð
við það að Sovétmenn hefðu haft mun
meiri vitneskju um kafbátaferðir en
hingaö til hefði verið gert ráð fy rir.
Ottinn við upplýsingaleka hefur nú
breiöst út fyrir sjóherinn. Yfirstjóm
landherjanna hefur hafið sérstaka
rannsókn á því hvort upplýsingar, sem
lúta að þeim, hafi einnig komist í hend-
ur Sovétmanna. Nú er talið að með
upplýsingum frá Walker hafi Sovét-
mönnum tekist að ráða dulmál sem
sérstaklega var notaö til aö rugla
skilaboð sem send vom milli skipa
bandariska flotans. Talið er að John
Walker, höfuöpaur njósnahringsins,
hafi stundað njósnir í þágu Sovét-
manna í 18 ár. Talsmenn sjóhersins
telja að mestur skaðinn hafi orðið á
tímabilinu frá 1962 til 1969. A þeim
tíma var Walker í aðstöðu til að með-
höndla ströngustu trúnaðarmál.
Sjóherinn telur sig nú hafa nokkuð
góða vitneskju um hvers konar upplýs-
ingar hafi lekið á þeim tíma. Veriö er
að koma fyrir nýjum tækjum í stað
þeirra sem fyrir voru og sem talið er
að Sovétmenn hafi fengið nákvæma
vitneskjuum.
Annars er mjög um þaö deUt hér í
Bandaríkjunum hversu víðtæk áhrif
þessa njósnamáls muni verða. Starfs-
menn leyniþjónustunnar greinir tU
dæmis mjög á um hvort upplýsingar
hafi lekið frá öðrum en sjóhemum.
Sumir telja að lekinn hafi náð mun víð-
ar og inn í fjölmargar mikilvægar
stjómsýslustofnanir. SUkt hafi verið
leikur einn með nægUegri þekkingu á
þeim búnaði sem um ræðir.
Saumaðu ekki að
pyngjunm
SINGER
Enn einu sinni spori framar
Hvers vegna að sauma að pyngjunni þegar þú
getur verið að sauma á Singer Magic sem er létt
og þægileg, ótrúlega einföld í notkun og mun
ódýrari en sambærilegar vélar.
Singer hefur alltaf verið spori framar og jafnhliða
tækninýjungum hafa þeir þróað saumavélar sem
auðvelt er að læra á og eru einfaldari í notkun en
flestar vélar.
E Tæknilegar upplýsingar
• Frjáls armur • Zikk-zakk • Overlock
• Raleinda fótstiq • Blindfaldur • Vótflusaumur
• Lárétt spóla • Stungu-zikk-zakk • Tvöfalt overlock
• Sjálfvirk hnappagötun • Styrktarsaumur • Fjöldi nytja og
• Beinn saumur •Teygiusaumur skrautsauma
Singer Magic og þú þarft ekki að
hafa áhyggjur af saumaskapnum
útborgun og greiðsluskilmála
— og komumst örugglega að samkomulagi.
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-81266