Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Síða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. 13 Menning Menning Menning Litlar hjólbörur með einu pari af höndum Myriam Bat-Yosef, eöa María Jósefsdóttir, er ein af þeim mörgu tengdadætrum landsins sem auögaö hafa listalíf okkar á þessari öld. Á tæplega þrjátíu ára timabili hefur hún komiö til Islands, reglulega eins og far- fuglamir, til að sýna verk sín og endur- nýja kynnin við land og þjóð. Þótt verk hennar virðist ekki hafa breyst ýkja mikið á þessum tíma, hafa þau borið með sér ævintýralegan and- blæ sem verið hefur á skjön við obbann af íslenskri myndlist og þannig aukið á fjölbreytnina. Sýningu sína að Kjarvalsstöðum nefnir María „yfirlit þess starfs sem liggur eftir mig”. Gefur auga leið að slíkri yfirlitssýningu er þröngur stakkur skorinn á vesturgangi Kjar- valsstaða. Enda verða þrengslin til þess að áhorfandinn nýtur ekki sýning- arínnar sem skyldi, má varla snúa sér við án þess að rekast utan í einhvem hlut. Kvenleg f ormgerð Ut af fyrir sig er ég ekki fær um að dæma, hvort þetta úrtak verka Maríu gefur sanna mynd af ferli hennar — en hún á nú að baki yfir 70 einkasýningar — því ég hef ekki fylgst náið með henni á undanfömum árum. Mestu máli skiptir að hún hefur sjálf valið þessi verktilsýningar. Alltént skortir ekki fjölbreytnina. Hér eru málaðir skúlptúrar, teikning- ar, málveric, klippimyndir og ljós- myndir af gjörningum, 86 ítem alls. Verst er að í sýningarskrá er hvergi getið um aldur þeirra. Tvennt er það sem virðist fara saman í verkum Maríu. Annars vegar Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson er nokkurs konar kvenleg formgerð, eins og hún hefur verið skilgreind af kvenlistamönnum allt frá Georgíu O’Keefe til Judy Chicago. Gengur hún út á notkun opinna, lifrænna forma hinnar kvenlegu anatómíu, með megináherslu á brjósta- og skapalik- ingar. Ummyndun Hins vegar er um að ræða eins konar austurlenskt afbrigði súrrealisma, skrautlegt og smáfellt. En gangverk myndverka Maríu er fýrst og fremst hin súrrealíska hugmyndafræði í sinni einföldustu mynd: ummyndun (meta- morfósis) veruleikans í undraveröld. Enda segir María berum orðum í uppsláttarbók sem ég hef undir höndum: „Eg hefi gert markmið súrrealismans að mínum, og trúi því staðfastlega að listin eigi bæði að vera ófresk og fjölkunnug, fyrir listamenn sem listunnendur. ” Því er það að María tekur sér fyrir hendur að mála allt það sem hún kemst yfir, hluti til hvunndagsbrúks eins og stóla, borð, potta og pönnur, sérstaklega hannaða eða fundna hluti, veggi og loft í híbýlum, jafnvel manneskjuna sjálfa. I áðumefndri bók segir María ennfremur: „Eg læt mér ekki detta í hug að breyta græna litnum á grasinu, eöa litum blóma, trjáa og fugla, því allt er þetta undur fallegt. En ég er að reyna að blása töfraanda í dauða hluti, með þvi aö þekja þá litum og breyta lögun þeirra meðlínum.” Uppákomur Sjálfum finnst mér María hafa mest erindi sem erfiði er hún breytir þekktum fyrirbærum í óþekkt, og þá helst er hún fæst við þrívíða hiuti: borð, hjólbörur, blævæng, öxi, vigt o.s.frv. Form og eðli þessara hluta veita henni þar nauðsynlegt aðhald, beina skreytni hennar í réttan farveg. En þegar kemur að tvívíðum verkum Maríu, málverkum, klippi- myndum, teikningum, þá er oft eins og þau fari úr böndunum, þjáist af ofhlæði og iburði sem bæði auga og hugur eiga erfitt með að fylgja eftir. Á sýningu Maríu eru einnig nokkrar myndir af gjömingum sem hún hefur staðið að víða um heim, en þar sýnist mér hinn opni, lífræni tjáningarmáti Myriam Bat-Yosef — Borö með hönd (nr. 33). hennar njóta sín ágætlega. Það hefði tónlist og kveðskap. Hvar eru þeir nú, gert sýningunni gott að fá slíka uppá- lagsmenn Medúsu? komu í tengslum við hana, e.t.v. með -AI. Steinhúsin njóta eilífs sumars eftir að hafa verið máluð að utan með utanhússmálningu frá Málningu hf. V/ATMSV/ARI (Mónösílan) Vatnsfráhrlndandl efni sem lækhar rakastlg 5teyptra mannvlrkja m^r STEIMAKRYL Wmákmg^ Terpentínu- þynnanleg, akrýlbundln málnlng með sléttri áferð AiUtíí KOPAL DYROTEX Vatnsþynnanleg akrýlbundin máinlng HRAUM f 5terk, vatnsþynnanleg akrýlbundln plast- - málning með sendinni áferð 'málning'f Fæst i byggingavöruverslunum um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.