Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Qupperneq 27
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
27
fþróttir ° iþróttir fþróttir íþróttir
Sjö mörk í Garðinum
— þegar Fram vann Víði, 3:4. Framarar eru enn efstir í 1. deildinni
og hafa þriggja stiga forskot á næsta lið
„Það er ekkl hœgt að vinna leik með
þvi að gefa þrjú mörk gegn þvi eina
sem vlð fengum í „forgjöf” í byrjun
leiksins,” sagðl Marteinn Geirsson,
þjálfari Viðis, sem lék i fyrsta slnn
gegn fyrrverandi félögum sinum,
Frömurum i 1. deildlnni syðra 6 laug-
ardaginn, „og mér þykir nokkuð súrt i
broti að við skyldum tapa leiknum þvi
að strákarnir spiluðu einn sinn besta
lelk undir minni lelðsögn og sýndu
marga góða hluti, og þeir brotnuðu
ekki vlð mótlætið heldur efldust og áttu
skillð jafntefli i lokin.”
hörkuskot Svans á seinustu minútu
smaug rétt utan stangar.
Framarar höfðu greinilega meira
vald yfir leik sínum en Víðismenn sem
þó spiluðu mjög vel á köflum. Framlið-
ið lék létt og leikandi og sýndi að það
verðskuldar efsta sætið í deildinni. Ef
óheppnin hættir að elta Víöismenn
ættu þeir að geta forðast fallið miðað
við þann leik sem þeir sýndu gegn
Fram.
Maðurleiksins: OmarTorfason.
Ahorfendur: 520.
Lið Víðis: Gisli Heiöarsson, GísU EyjóUs-
son, Helgi Sigurbjömsson (Guömundur Jens i
halfl.), Olafur Róbertsson, Siguróur Magnús-
son, Einar Asbjöm Ölafsson (Svanur Þorst.
75. min.), Guðjón Guðmundsson, Grétar Eln-
arsson, VUberg Þorvaldsson, Klemenz Sæ-
mundsson, VUhjálmur Einarsson.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson, Guðmund-
ur Torfason, Úmar Torfason, Asgeir EUas-
son, Viðar Þorkelsson, Ormarr örlygsson,
Pétur Ormslev, Þorsteinn Þorsteinsson,
Steinn Guðjónsson, Krlstinn Jónsson, Guð-
mundur Steinsson (öra Valdimarsson á 65.
min.).
Gult spjald: Guðjón Guðmundsson, Viði.
emm
• Ómar Torfason skoraði tvö mörk
fyrir Fram gegn Víði.
Frömurum gekk ekki allt í haginn i
byrjun. Á 3. mín. skoruðu þeir sjálfs-
mark, mjög klaufalega, en voru samt
búnir að ná forustunni í hléi, 2—1, og
héldu forustunni og þremur stigunum
þegar ágætur dómari leiksins, Ragnar
öm Pétursson, blés til loka. Þá vom
mörk Fram orðin fjögur gegn þremur
Víðis. Fram er því áfram á toppi 1.
deildar með 13 stig en Víðir situr á
botninum með 3 stig.
Víðismenn léku undan sól og golu
fyrri hálfleikinn og fengu strax mark á
silfurfati frá Fram, en launuðu þeim
kurteisina með tveimur útsölumörkum
í fyrri hálfleiknum. Víöismenn sóttu
framan af nokkuð fast og hefðu átt að
uppskera svo sem eitt mark en voru of
ragir við að skjóta. Framarar tóku sig
á og náðu að móta sinn leik og þjörm-
uðu smám saman aö heimamönnum
sem vörðust allvel eða framherjunum
brást skotfimin. A 34. mín. sækja
Framarar og senda knöttinn þvert inn
í vítateig Víðis. Gísli Hreiðarsson
markvörður virtist eiga auðvelt með
að hremma knöttinn en mistókst og
knötturinn skoppaði á maga Daníels
Einarssonar, sem í fáti greip knöttinn
báðum höndum. Ur vítaspymunni
skoraði Guðmundur Steinsson af miklu
öryggi, 1—1.
Nokkur deyfð færðist yfir Víðisliöið
viö þetta klaufalega mark en ósköpin
voru ekki úr sögunni. Sex minútum síð-
ar kemur hár knöttur svífandi inn í
vítateig Víðis. Gisli markvörður ætlar
að grípa hann en á lítt skiljanlegan
máta bregst það og hinn frái Guð-
mundur Torfason er ekki seinn að nýta
séí þvílfkt færi, nær knettinum og
rennir honum í markið en Viðismenn
fórna höndum, 1—2.
Ekki tók betra viö i seinni hálfleik. Á
52. mín., eftir að Víðispiltamir höföu
gert ítrekaðar tilraunir til að jafna
markatöluna, spyrnti Gísli frá marki
og ætlaöi Sigurði Magnússyni knöttinn
en hann var óviðbúinn svo Omar
Torfason skaust á milli. Eftirleikurinn
var auðveldur, knötturinn í netið, 3—1.
Eftir slík mistök mátti ætla að
heimamenn misstu vonina en þeir létu
engan bilbug á sér finna. Á 63. min.
braust Grétar Einarsson í gegn um
Frammúrinn og sendi þvert á víta-
teigsgeirann þar sem Vilberg Þor-
valdsson var til staöar og skaut við-
stöðulaust og knötturinn lenti neöst i
markhorninu. Loksins fallega skorað
mark í leiknum, 2—3.
Víðismenn eygðu þama jafnteflis-
möguleika og reyndu svo sannarlega
að ná þvi en á 75. mín. geystist Guð-
mundur Torfason fram með hliðarlínu,
lék inn í vítateig og á hfmandi vamar-
menn Viöis. Sendi síðan knöttinn þvert
fy rir markið til Omars Torfasonar sem
stóð á markteigshorninu og sneiddi
knöttinn í netiö — annað var varla
hægt, 2—4.
Skömmu síðar fór Guðmundur
Steinsson af leikvelli enda ekki heill.
Við þaö var eins og Framliðið
missti sóknarbroddinn og Víðispiltarn-
ir gerðust aðgangsharðari þrátt fyrir
að Einar Ásbjöm Olafsson væri farinn
út af vegna sparks sem hann fékk.
Svanur Þorsteinsson, sem kom í hans
stað, gerði sér hins vegar lítið fyrir og
bætti við þriðja marki Víðis eftir send-
ingu frá Guðmundi Jens Knútssyni
sem kom inn á í hálfleik fyrir Helga
Sigurbjömsson. Þaö gerðist á 85. min.
og nú hljóp heimamönnum mikið kapp
í kinn. Máttu Framarar hafa sig alla
við að halda markatölunni óbreyttri.
Tvívegis björguðu þeir á marklínu og
ÞAÐ EKKI HENDA ÞIG
AÐ SJÁ EKKISKÓGINN
FYRIR TRJÁM
AÐALATRIÐIÐ ER, AÐ FLUGLEIÐIR BJÓÐA SÉRSTÖK FARGJÖLD
Á VILDARKJÖRUM FYRIR FJÖLSKYLDUR, UNGA, ALDNA
OG ÖRYRKJA. ÞÚ SKALT KANNA VEL HVAÐ
FLUGLEIÐIR GETA BOÐIÐ ÞÉR.
r-
1
Fjölskyldufargjald
Forsvarsmaður greiðir fullt fargjald. Maki og börn á
aldrinum 12-20 ára greiða 50%, en 2-11 ára börn ein-
ungis 25%. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða
innanlands, í allt að 30 daga.
APEX
Veittur er40% afsláttur af fullu fargjaldi. Börn innan
12 ára aldurs greiða heimingi minna. Bóka þarf með
7 daga fyrirvara. Gildir til allra áfangastaða Flugleiða
innanlands. Gildistími 21 dagur.
Aldraðir
Aldraðir fá 50% afslátt af fullu fargjaldi þriðjudaga,
miðvikudaga og laugardaga. - Gildir til allra áfanga-
staða innanlands, í allt að 60 daga.
Öryrkjar
Þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira fá 25% afslátt
af fullu fargjaldi. Framvísa þarf öryrkjaskírteini. -
Gildir til allra áfangastaða innanlands alla daga vikunn-
ar, nema föstudaga og sunnudaga.
HOPPfl
Óbókaðir farþegar eiga kost á 50% fargjaldi á leiðinni
Reykjavík - Akureyri - Reykjavík, þegar sæti eru laus.
Taka þarf afgreiðslunúmer á flugvelli klukkustund fyrir
brottför. - Gildir til Akureyrar á þriðjudags-, fimmtu-
dags- og laugardagskvöldum. Frá Akureyri á mánu-
dags-, miðvikudags- og föstudagsmorgnum.
ÞETTA ER EKKI FRUMSKÓGUR, HELDUR YFIRLrF
UM VÍÐTÆKA WÓNUSTU FLUGLEIÐA INNANLAJNDS
Unglingar
Unglingar á aldrinum 12-18 ára fá 30% afslátt af fullu
fargjaidi. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða
1. maí til 10. júní og 20. ágúst til 30. september.
Hringflug
Hringflug er ætlað þeim sem kjósa frekar að fljúga
umhverfis iandið en aka hringveginn. Viðkomustaðir
eru Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir,
Homafjörður, Reykjavík. Verðið er ákveðið á hverju
vori. - Gildir á tfmabilinu 1. maí til 30. september, í
30 daga lengst.
Tengifargjöld
Sérstök fargjöld eru í boði fyrir farþega á leið í eða
úr millilandaflugi. Fargjöldin eru mismunandi, eftir
eðli farseðilsins í millilandaflugi, allt að því að vera
ókeypis. Einnig eru í boði sérstök fargjöid fyrir þá sem
vilja fljúga um Reykjavík milli staða innanlands. -
Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands árið
um kring. Gildistími mismunandi eftir tegund fargjalds.
Námsmenn
Námsmenn á aldrinum 12-26 ára fá 25% afslátt gegn
framvísun skólaskírteinis. Gildir á milli lögheimilis og
skóla á tímabilinu 1. september til 31. maí, ogáöllum
leiðum innanlands frá 1. júní til 31. ágúst.
FLUGLEIDIR