Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Page 40
40
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
Andlát
Janus Guölaugsson vélstjóri lést 9. júni
sl. Hann fæddist að Hæðarenda þann 6.
janúar 1896. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Arnason og Sveinsína Jóns-
dóttir. Janus lauk vélstjóraprófi og
vann hann við vélstjórn hjá Isfélagi
Keflavíkur samfleytt í 33 ár. Þá tók
hann við húsvarðarstöðu í Æskulýðs-
heimihnu að Austurgötu 13 í Keflavík.
Eftirlifandi eiginkona hans er Friðrika
Sigurveig Friðriksdóttir. Þau hjónin
eignuðust eina dóttur. Utför Janusar
verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firðiídagkl. 15.
Sesselja Anita Kristjánsdóttir lést 4.
júní. Jarðarförin fer fram þriöjudag-
inn 18. júní frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík kl. 13.30.
Ölína Jónsdóttir andaðist á heimili
sínu, Cleveland, Ohio, 14. júni.
Jónas Guðmundsson rithöfundur verö-
ur jarösunginn frá Dómkirkjunni miö-
vikudaginn 19. júní kl. 13.30.
Sveinbjörn Egilsson, Otrateigi 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 19. júni kl. 13.30.
Tilkynningar
Tímaritið Ný menntamál,
2. tbl. 1985, er komið út
1 nýútkomnu hefti tímaritsins Ný menntamál,
sem Bandalag kennarafélaga gef ur út, er sér-
staklega f jailað um málefni framhaldsskóla.
Guðrún Halldórsdóttir, Kristján Bersi
Ölafsson, Þórður Gunnar Valdimarsson og
Wolfgang Edelstein rekja að nokkru þróun
framhaldsskólanna. Ragnheiður Jónsdóttir
skrifar um skóiabókasöfn, Hannes Olafsson
fjallar um nemendur sem ekki ná framhalds-
einkunn i grunnskóla og Gerður Oskarsdóttir
skrifar um hvernig sparnaður í skólakerfinu
hefur bitnað á nemendum sem búa á lands-
byggðinni. Auk þess eru föstu dálkar tímarits-
ins á sínum stað.
Tímaritið er 48 síður og kemur út fjórum
sinnum á ári. Ritstjóri er Hannes Olafsson.
Þýsk stúlka óskar eftir
pennavini
Heimilisfang hennar er: Katja Lips,
Stettiner Str. 18, D-3400, Göttingen,
Deutschland. Hún er 14 ára gömul og
skrifar bæöi á þýsku og ensku. Ahuga-
mál hennar eru bóklestur, tónlist og
frímerkjasöfnun.
Vegna jarðarfarar
Jónasar Guðmundssonar
rithöfundar verður verslun okkar lokuð frá kl. 13—15 á
morgun, miðvikudag.
Kjötborg hf.
Ásvallagötu 19
Um helgina
Um helgina
„Þá mun kvikna
Ijós í myrkri!”
Það var ekki margt æsispennandi
sem boðið var upp á í ríkisfjölmiðlun-
um um hina „löngu helgi” sem er
yfirstaðin enda þvældust þessir f jöl-
miðlar ekki fyrir manni eins og svo
oft áöur. Eg sá ekki ástæðu til að
hlusta mikið á útvarp — aftur á móti
horfði ég á síðustu dagskrárliöi sjón-
varpsins öll kvöld helgarinnar.
Föstudagsbíómyndin Aces High
var nokkuð vel leikin og það mátti oft
brosa að laugardagsmyndinni Many
Rivers to Cross.
Sunnudagskvöldiö skildi ekkert
eftir sig og er vægast sagt furðulegt
að það sé boðið upp á rúmlega
tveggja stunda þátt um 25 ára af-
mælishátið Gullrósarinnar í Montre-
ux í Sviss. Þar voru saman komnir
margir þungir og leiðinlegir
skemmtikraftar. Þessi þáttur hafði
ekkert til Islands að gera.
Omar Ragnarsson sveik að sjálf-
sögðu ekki í hinum frábæra þætti
sínum, Stiklum, í gærkvöldi, en aftur
á móti sveik sjónvarp og útvarp
notendur sína. Sjónvarpið bauð upp á
engan léttleika fyrir böm og ungl-
inga. Að vísu var sjónvarpað beint
frá Laugardalshöllinni en það var
klippt á skemmtiatriði þegar hæst
stóð, eða kl. 23, hinn heföbundna
háttatima sjónvarpsins.
Þeir sem fóru ekki í háttinn gátu
opnað fyrir útvarpið — samtengingu
rásar eitt og tvö. Eg hef þó lúmskan
grun um að fólk hafi slökkt fljót-
lega á tækjum sínum því að þáttur-
inn Af álfum var þar nóg var af-
spymuleiðinlegur og þungur — bæði
val á lögum og kynnir sá sem lét
móðinn mása. Eg slökkti á útvarpinu
rétt eftir að þulurinn sagöi: „Oft
kviknar ljós í myrkri.” Já, ég hef trú
á að það 1 jós kvikni um næstu áramót
þegar frjálsar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar verða opnaðar, stöövar
sem starfa ekki af skyldurækni held-
ur vinna markvisst að því að veita
fólkiafþreyingu.
Sigmundur Ó. Steinarsson.
ÚTIVIST
1 0 Á R A
Útivistarferðir
Afmællshátfð um Jónsmessuna í tilefni 10 ára
afmælis Otivistar. Verð 1250 kr. föstud. 21. og
1000 kr. laugard. 22. júní. Fjölbreytt dagskrá:
gönguferðir, afmæliskaffi, Jónsmessubál,
dans og söngur. Fritt f. böm yngri en 10 ára
m. foreldrum.
Þórsmörk—Laugar 26. júní, 5 dagar. Bak-
pokaferð. Munið sumardvöl í Básum. Fyrsta
miðvikudagsferðin 26. júní.
Kvenfélag Bústaðasóknar
Konur, Kvenfélagi Bústaðasóknar. Mætum á
útifundinn 19. júní. Nánari upplýsingar í
simum 33439, 33675, 32117 og 35575 tU þriðju-
dagskvölds.
Orlof húsmæðra í Hafnar-
firði
Verður haldið að Laugarvatni í sumar, eins
og undanfarin sumur, vikuna 1.-7. júli. Þær
konur, sem vUja notfæra sér þetta orlof, eru
beðnar að koma tU viðtals við orlofsnefndina
þriðjudaginn 18. júni kl. 18-20 i Góðtemplara-
húsinu.
Laugarvatn hefur verið orlofsstaður um
nokkur ár fyrir húsmæður frá Hafnarfirði,
Kópavogi, Akranesi og fleiri héruðum á
Vesturlandi, en glæsUegri dvalarstað er vart
hægt að finna hér á landi.
Orlofsnefnd Hafnarfjarðar er kosin af
Bandalagi kvenna í Hafnarfirði tU að sjá um
orlof húsmæðra. Nefndin er nú þannig skipuð:
Sesselja Erlendsdóttir, formaður
Guðrún Guðmundsdóttir, gjaldkeri
Elinborg Magnúsdóttir, ritari
Meðstjómendur em:
Kristbjörg Guðmundsdóttir
Lára Guðmundsdóttir og
Helga Guðmundsdóttir.
Frá Árnesingafélaginu í
Reykjavík
Farið verður í hina árlegu gróðursetningar-
ferð félagsins að ÁshUdarmýri á Skeiðum
þriðjudaginn 18. júní. Lagt verður af stað frá
Búnaðarbankahúsinu við Hlemm kl. 18.00.
Undirskriftasöfnun
undir friðarávarp
Friðarhreyfing íslenskra kvenna, í samvinnu
við '85 nefndina, gengst fyrir geysivíðtækri
undirskriftasöfnun i júní undir friðarávarp
íslenskra kvenna. SjálfboðaUðar eru hvattir
Ul að hafa samband við miðstöð Friðarhreyf-
ingarinnar sem hefur aðsetur á HaUveigar-
stöðum, Túngötu 14 (gengið inn frá
öldugötu), Reykjavík. Síminn er 91-24800.
KRFÍ boðar til fundar 19.
júní
Kvenréttíndafélag Islands heldur
hádegisfund 19. júní nk. að Litlu-
Brekku, Bankastrætí, í tílefni þess aö
þá verða liðin 70 ár frá því að íslenskar
konur fengu kosningarétt og kjörgengi
til alþingis. Á fundinum verður Auður
Auöuns, fyrrverandi borgarstjóri
Reyk ja víkur og ráðherra, gerð að heið-
ursfélagaKRFl.
Til að minnast dagsins mun Kristín
Astgeiredóttir sagnfræðingur flytja
stutt erindi um 19. júní 1915. Vinsam-
legast tilkynnið þátttöku í síma 18156.
Lifandi leiðsögn og fleira á
Þingvöllum
Göngur með leiðsögn um Þingvelli
verða í sumar meö eftírfarandi hætti:
Föstudaga og laugardaga kl. 13.
Skógarholtsganga. Lagt á stað frá
Þjónustumiðstöðinni á Leirum.
Föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga kl. 16.30. Gengið um Þingvalla-
helgi. Lagt á stað frá Peningagjá.
Þá verða kvöldvökur í ÞingvaUa-
kirkj u á laugardögum kL 20.
Guösþjónusta verður á sunnudögum
kl. 14.
Það mun nú liggja nokkuð ljóst
fyrir að Janus Guðlaugsson sem leUt-
ið hefur meö v-þýska liðinu Fortuna
Köln undanfarin ár muni ganga i
raðir FH.
Janus tUkynnti félagaskipti yfir í
FH frá KölnarUðinu í síðustu viku og
mun því verða löglegur með Hafn-
firðingum innam mánaðar. Ekki er
að efa að Janus mun verða FH-Hðinu
mikUl styrkur en félaginu hefur ekki
gengið sem best það sem af er sum-
ars. 1 -fros
Fyrstu skemmtiferöaskipin á þessu vori komu til Akureyrar ó dögunum. Það voru Kazakstan og Maxim
Gorki, sam liggur úti á Poilinum. Var það mál manna að skipin hafðu komið með sunnanáttina og góða
vaðrið með sár. Þau eru nú bœði farin frá Akureyri en blíðuna skildu þau eftir.
Þriðja skipið, Europa, kom svo i fyrradag til Akureyrar.
JBH/Akureyri