Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Side 48
FRETTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-56. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ1985.
Reyni Pétri Ingvarssyni, göngu-
garpi frá Sólheimum, var tekið með
kostum og kynjum þegar hann kom
til Akureyrar á föstudaginn. M.a.
flutti Sigríður Stefánsdóttir bsejar-
fulltrúi ávarp og bauð hann velkom-
inn til bœjarins. Reynir Pétur hefur
hlotið hlýjar móttökur þar sem
hann hefur komið við á göngu sinni
í kringum landið.
DV-mynd/JBH
Örtröð við
maðkatínslu
ínótt
Þeir voru orðnir margir þurrk-
dagarnir og hún var því kærkomin
rigningin sem kom í gærdag og nótt.
Maðkalausir veiðimenn og maðkasalar
með vasaíjós fjölmenntu í garða
bæjarins til að tína maðk. A tímabili í
nótt voru þetía eins og maurar um alla
garða, sumir góöir maökagaröar voru
margtíndir. „Ég er búinn að tína í tvo
klukkutíma og ætli ég sé ekki búinn aö
fá 250—300 maðka. Maður hefur ekki
séð maðk í margar vikur og þessi rign-
ing kom sér vel því ég er að fara í tvo
veiðitúra í vikunni,” sagði einn sem
var að tína í Hljómskálagarðinum í
nótt.
Maðkasalar áttu fyrir helgi litiö
sem ekkert af maöki og heyrðist verð
eins og 12 krónur fyrir maðkinn. En
þessi bleytutíð þýðir að maðkurinn
kostar núna 6 krónur og menn geta
a.m.k. keypt maðk hafi þeir ekki tínt
hann i nótt.
G.Bender.
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
^OlBlLASro^
^ r* v" '-'ö
ÞRÖSTUR
SIÐUMULA 10
LOKI
Það má þá búast við
nokkrum hjörlum í dag!
Sjómannafélagíð boðar til samúðarvinnustöðvunar:
URINN STODVAST
„Þetta þýöir einfaldlega stöðvun
á öilum fiskútflutningi, það er að
segja á ferskum fiski í gámum,
frosnum fiski og saltfiski,” sagði
Guömundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur, i sam-
tali viö DV i morgun.
Sjómannafélag Reykjavíkur
ákvað á fundi sínum um helgina aö
boða til sa múðarvinn ustöðvunar á
olíuflutningaskipum og skipum er
Qytja ferskan fisk, frosinn og
kældan.
„Vinnustöðvunin á að taka gildi
eför viku, þann 25. júní, og mun
standa svo lengi sem verkfailið
stendur,” sagöi Guðmundur. „Þessi
ákvörðun okkar var tekin í kjölfar
verkbannsboðunar VSl sem taka
mun gildi þennan sama dag.”
— Hversu mörg skip munu stöðv-
astþama?
„Olíuflutningaskipin eru þrjú en
það er erfitt að segja hversu mörg
fískflutningaskipin eru þar sem þau
eru oft notuð í annað líka,” sagði
Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum DV
hefur enginn sáttafundur verið
boöaður í sjómannadeilunni.
-KÞ
Alltfastí
olíustríðinu
Enn stendur allt fast í olíustriði
Hreyfilsmanna i Fellsmúlanum í
Reykjavík.
Eftir aö upp úr slitnaði i samningum
milli Hreyfils og Olís um áframhald-
andi rekstur bensinstöðvar þessara
aöila í Fellsmúla gerði Hreyfill samn-
ing við Essó um bensinsölu. Þegar
Essó hóf framkvæmdir þar fóru Olís-
menn fram á lögbann á fram-
kvæmdum og afgreiðslu bensíns. Er
það mál hjá borgardómara og biður
úriausnar.
En ekki er sagan öll. Hreyfill og
Essó eru nú tilbúnir til að reka bensín-
stöð á þessum stað, en tilskiiin leyfi
hafa ekki fengist enn til þess þar sem
vantar byggingarleyfi frá byggingar-
fulltrúa. Var vonast til að leyfi fengist
fyrir helgi, en það brást. -KÞ
Hraðbáturinn dreginn til hafnar i Reykjavík síðdegis í gær.
DV-mynd S
ÞANNIG FOR UMSJOFERD ÞA.
mm
Bátur Slysavarnafélagsins kom til
hafnar i gær með iítinn plastbát sem
saknað hafði verið frá því um morg-
uninn. Hafði eigandinn farið á hon-
um ásamt félaga sínum til Akraness
til aö sækja dansleik á hótelinu á
sunnudagskvöld. Um nóttina komust
þeir skipverjar í kast við lögregluna
á Akranesi og var eigandinn færður í
gæslu á meðan félaginn hljóp út í bát.
Eftir að hafa látið frá bryggju sagð-
ist hann ekki koma í land nema eig-
andanum væri sleppt úr haldi. Lög-
reglan, sem stóð á bryggjunni, ans-
aði þessu engu, en þá ræsti vinurinn
vél bátsins, setti allt í botn, tók stefn-
una á haf út og stímdi út úr höfninni.
Leið nú og beið. Er líða tók á
morguninn og báturinn hafði enn
ekki látið sjá sig, var ákveðið að
senda flugvél til að svipast um eftir
honum og fann hún bátinn umhádeg-
isbiliö á reki um 6 til 8 sjómílur suð-
vestur af Akranesi, bensínlausan og
rafmagnslausan. Bátur Slysavarna-
félagsins fór þá á eftir honum og dró
til Reykjavíkur, eins og fyrr segir, og
sést á meðfylg jandi mynd.
EA
Ölvaðir
ökumenn
íKópavogi
ÞINGL0K10VISSU
—eftir upplýsingar forsætisráðherra um kostnað
við álmálið í ráðherrab'ð Hjörleifs Guttormssonar
Mikil óvissa ríkir nú um hver
framvinda þingmála verður á næst-
unni og útlit er fyrir að þinglok verði
ekki i þessari viku. A föstudaginn lá
fyrir samkomulag um að stefna að
þinglokum í lok þessarar viku.
En skjótt skipast veður í lofti. 1
kjölfar þeirra upplýsinga, sem for-
sætisráöherra hefur afhent fjöl-
miðlum, um kostnað við álmálið í
ráðherratíð Hjörleifs Guttorms-
sonar, virðist samkranulag um þing-
slit vera fokið út í veður og vind.
Þingmenn Alþýðubandalagsins hafa
brugðist illa við þessari aðferð for-
sætísróðherra við að koma upplýs-
ingum á framfæri og tala um aö
halda uppi málþófi á þingi.
Það hefur vakið athygli að þær
reglur, sem núverandi iðnaðarráð-
herra styðst við í sambandi við
launagreiðslur starfskrafta, tengda
álviöræðunum, eru samdar af fyrir-
rennara hans, Hjörleifi Guttorms-
syni. Þ6 verður það enn athyglis-
verðara að Hjörleifur virðist endan-
lega hafa samið þessar reglur rétt
fyrir stjómarskiptin 1983. Bréf þess
efnis sendir hann 17. maí 1983 þegar
kosningum er lokið og ný stjómar-
myndun stendur yfir.
APH
Ovenjumargir ölvaðir ökumenn
vom teknir í Kópavogi um helgina. Að
sögn lögreglunnar í Kópavogi vora 13
teknir ölvaðir undir stýri á laugardag
og sunnudag þrátt f yrir að umf erð væri
mjög lítil.
Að sögn lögreglunnar fóra 17. júní
hátíöahöldin vel fram þar í bæ.
„Veðrið setti strik í reikninginn,”
sagði lögreglan um ástæðuna fyrir svo
rólegumsautjánda. -EH.
Þeirsemlétust
íbflslysunum
Maðurinn, sem lést í bilslysi í
Svínahrauni aðfaranótt sunnudags, hét
Einar Aron Pálsson, fæddur 10. janúar
1968, tíl heimilis að Bergstaðastræti
24B.
Maðurinn, sem lést i bílslysi i Svína-
dal í Dalasýslu, hét Hallgrímur
Sæmundsson, fæddur 12. júli 1968, frá
Tungu i Hörðudalshreppi, Dalasýslu.
Fjórir slösuðust í bílnum og voru
fluttir frá Búðardal á sjúkrahús i
Reykjavík og vora tveir þeirra mikið
slasaðir.
Nánar er greint frá slysunum inni í
blaðinu. -EH.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
\t
f
Í