Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Page 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 28. JUNI1985.
WAVÍ ?
fauugP foommi*
HOPrenoAisiiAR
SÖS' 25055 y
r JMMjjjP 1 I
. 1 i
Kjartan Lárusson, framkvæmdastjóri Ólafs Ketilssonar hf., mefl bilstjóra fyrirtækisins á sitt hvora hönd,
vifl einn af fjórum bilum fyrírtækisins. „Við munum sækja um sérleyfið þegar þafl verflur auglýst á ný."
DV-mynd KAE.
Ólafur Ketilsson hf. helduráfram Laugarvatnsferðum:
HÓPFERDIR í STAÐ
AÆTUUNARFERDANNA
„Viö erum aö leggja upp til Laugar-
vatns núna. Þaö er ekkert ólöglegt viö
þaö. Einn farþeginn pantaöi hópferö til
Laugarvatns. Viö getum orðiö viö
þeirri ósk þar sem viö fengum hóp-
feröaleyfi í gær,” sagði Kjartan Lárusr
son, framkvæmdastjóri Olafs Ketils-
sonarhf.
I vikunni gekk hæstaréttardómur
þess efnis aö sérleyfiö var tekiö af
Olafi Ketilssyni hf. en fyrirtækið haföi
einkaleyfi á feröum milli Reykjavíkur
og Laugarvatns, Gullfoss og Geysis.
Forsaga þess máls er aö 1978 var Olaf-
ur Ketilsson sviptur leyfi þessu og þaö
veitt Sérleyfisbílum Selfoss þess í stað.
Næsta ár gerðu þeir síöarnefndu samn-
ing viö Olaf, sem þá haföi stofnaö fyrir-
tækið Olafur Ketilsson hf., um aö hann
héldi upp fyrmefndum feröum f ram til
ársins 1982. Þegar samningurinn rann
út var fyrirtæki Olafs veitt sérleyfiö að
nýju. Fóru þá Sérleyfisbílar Selfoss í
mál sem lauk nú í vikunni fyrir Hæsta-
rétti eins og áður sagði. I dómnum seg-
ir aö Sérleyfisbílar Selfoss hafi ótví-
rætt átt aö sitja fyrir um leyfiö, þar
sem hinn aöilinn „hafi ekki áöur feng-
ist viö rekstur sérleyfisbíla á þessari
leiö, þó hinn nýi aðili bæri sama nafn
og einstaklingur sem áöur haföi verið
sérleyfishafi og þjónað viðskiptamönn-
um á sömu leiö um langan aldur.”
„Þegar svo var komið sóttum viö um
hópferðaleyfi sem viö fengum síðdegis
á þriöjudag og gildir það til árs. Síðan
höfum viö þaö þannig að einn farþeg-
anna pantar sér bíl á þessa rútu og
þannig getum við haldiö uppi ferðum
milli þessara staða,” sagði Kjartan.
„Eg reikna meö að við höldum uppi
daglegum feröum þarna um á meðan
þetta óvissuástand ríkir,” sagöi Kjart-
an.
Munurinn á sérleyfi og hópferðaleyfi
er sá aö meö hiö fyrrnefnda í höndun-
um hefur viökomandi einkarétt á ferö-
um á ákveöna staði. Enginn annar
getur selt feröir þangað. Inni í því leyfi
er og hópieröaleyf i en þaö f elur í sér að
viðkomandi getur flutt farþega vítt og
breitt um landiö eftir pöntun.
„Þetta er fullkomlega löglegt af okk-
ar hálfu,” sagöi Kjartan. „Hins vegar
er þetta illa gert viö farþegana aö gera
þetta svona f yrirvaralaust. ’ ’
— En hvernig fer nú. Veröur sér-
leyfið ekki auglýst?
„Jú, það hlýtur að verða alveg næstu
daga.”
— Ætliö þiö að sækja um þaö?
„Já, ég reikna fastlega meö því. Viö
höfum reyndar ekki fundaö um það
sérstaklega en ég get ekki ímyndað
mér annaö en viö sækjum,” sagöi
Kjartan Lárusson. -KÞ.
, JIL VANSA ÞEIM
ER AÐ STÓÐU”
—segir framkvæmdastjóri BSÍ um
sérleyf issviptingu Ólaf s Ketilssonar hf.
„Þetta eru alger mistök og til vansa
þeim er aö stóöu,” sagöi Gunnar
Sveinsson, framkvæmdastjóri BSI, um
þá ákvörðun aö taka sérleyfið af Olafi
Ketilssyni hf.
„Þaö er ekkert hugsað um farþeg-
ana í þessu máli. Þeir gleymast alveg.
Þaö er ekki hægt að fella úr gildi leyfi
eins og þetta fyrirvaralaust. Á þriðju-
dagsmorgun þurftum við aö fella niöur
ferö til Laugarvatns vegna þessa og
senda um 25 manns heim. Þaö er ekki
hægt aö koma svona fram viö farþeg-
ana.
Þaö er eins og mennimir hafi ekki
athugaö að með því að taka sérleyfið af
Olafi Ketilssyni hf. er ekkert sérleyfi á
þessari leið. Ráðuneytiö og umferðar-
máladeild hafa staöiö illa aö öllu þessu
máli.
Þá má ekki gleyma því í þessu sam-
bandi aö í öllum bæklingum, innlend-
um sem erlendum, yfir ferðir um Is-
land er sagt frá sérleyfi Olafs Ketils-
sonar til Laugarvatns, Gullfoss og
Geysis. Það má því segja, að viö séum
að svíkja þá feröamenn. sem hug hafa
á þeim ferðum,” sagði Gunnar Sveins-
son. -KÞ
Gunnar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri BSÍ, heldur 6 nokkrum þeim
bæklingum þar sem getifl er sór-
leyfa Ólafs Ketilssonar hf. um ferflir
til Laugarvatns, Gullfoss og Geysis.
Nú er erfitt afl standa vifl þær
ferðir. DV-mynd KAE.
„Stend ekki í
stríði við við-
skiptavinina”
- segir Guðmundur Lárusson tannlæknir
og notast við gamla taxtann ef tir að
borgarstjóri sýndi tennurnar
„Mér finnst það ekki ná nokkurri átt
aö standa í stríöi viö stærstu viðskipta-
vini sína. Tryggingastofnun og
Reykjavíkurborg greiöa stærstan hlut-
ann af reikningunum mínum og ef
þessir aöilar hafa eitthvað aö athuga
viö taxta okkar þá veröum viö aö bíða
eftir niöurstöðu,” sagöi Guðmundur
Lárusson tannlæknir er DV ræddi við
hann á tannlæknastofu hans í gær.
Guömundur hefur fest upp spjald á
stofu sinni þar sem hann tilkynnir við-
skiptavinum sínum aö hjá sér séu
gömlu tannlæknataxtamir í gildi.
„Ef borgarráð og Tryggingastofnun-
in hafa eitthvaö aö athuga við þá út-
reikninga sem liggja til grundvallar
töxtumokkar þá tel ég rétt að bíða þar
til niöurstaöa fæst í málið. Eg hef
aldrei okraö héma á stofunni minni og
hef ekki hugsaö mér aö gera þaö,”
sagöi Guömundur. „Frekar bíð ég
átekta á gamla taxtanum.”
Allt útlit er fyrir aö almennir tann-
læknataxtar lækki verulega eftir deilu
Davíðs Oddssonar borgarstjóra og
Tannlæknafélags Islands.
A fundi aðilanna í fyrradag varö aö
samkomulagi aö taxti Tannlæknafé-
lagsins yröi sendur í endurskoðun á
Hagstofuna og var þaö mat borgar-
stjóra að viö það myndi launahækkun
tannlækna veröa á bilinu 7—12 prósent.
Tannlæknamir höföu aftur á móti
hækkað eigin launaliö um 43 prósent og
byggðu þar á útreikningi starfsmanns
Hagvangs.
Deilan snerist eingöngu um þaö f é er
Reykjavíkurborg greiöir skólatann-
læknum en sveitarfélög, Trygginga-
stofnun ríkisins og einstaklingar er
notfæra sér þjónustu tannlækna höföu
ekki gert neina athugasemd við gjald-
skrárbreytingu þeirra. -EIR.
GuAmundur Lárusson tannlæknir og skiltið þar sem gamla verflið er
auglýst: — Hef aldrei okrafl hórna á stofunni minni og hef ekki hugsað mór
afl gera það. DV-mynd KAE.
Norðurlandsleikamér hef jast í kvöld:
Um ellefu hundr-
uð á leikunum
Að frumkvæði Fjórðungssambands
Norðlendinga veröa haldnir Norður-
landsleikar æskunnar á Sauðárkróki
dagana 28. til 30. júní. Eru leikarnir
haldnir í tilefni af ári æskunnar.
Þaö em Sauðárkróksbær, Ung-
mennafélagiö Tindastóll og Ung-
mennasamband Skagafjaröar sem sjá
um framkvæmd leikanna en skráöir
þátttakendur em um 1100 á aldrinum 9
til 14 ára. Keppa þeir í ýmsum grein-
umíþrótta.
Mótssetning veröur klukkan 21 í
kvöld, föstudag og stendur keppnin
linnulaust frá kl. 9 til 22 laugardag og
frá kl. 9 til 17 á sunnudag, en þá er
stefnt aö því að leikunum ljúki. A
laugardagskvöld verður þátttakendun-
um boðið upp á diskótek á tveimur
stööum á Sauðárkróki. Samhliöa
leikunum fer fram hlaup æskunnar á
þremur stöðum á landinu, það er
Reykjavík, Sauðárkróki og Egils-
stöðum.