Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1985, Blaðsíða 36
 r-^p ELDUR í VÖLU Mikið tjón varð er eldur kviknaði i Sœlgœtisgerðinni Völu á Seltjarnar- nesi í gœrkvöldi. Kom eldurinn upp i millivegg í norðurenda verksmiðj- unnar og læsti sig fljótlega í ein- angrun i þaki. Urðu slökkviliðs- menn að rjúfa þakplötur til að ráða niðurlögum eldsins. Slökkvistarf gekk greiðlega og var lokið á um klukkutima eða um kl. 23.30. Ljóst er að miklar skemmdir hafa orðið á vólum og húsi verksmiðj- unnar þó enn eigi eftir að leggja endanlegt mat á tjónið. Eldsupptök eru ókunn. EA TALSTÖÐVARBÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 68-50-60. . : 0>B!LASro ÞRDSTIIR SÍÐUMÚLA 10 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i, sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum ' allan sólarhringinn. j FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1985. LOKI Honum hefði verið nær að fá sér bjór! Þorsteinn Pálsson og Halldór Ásgrímsson um vanda sjávarútvegsins: VANUNN ERLENDAR SKUUHR 0G SKREID Þeir Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálfstæðisflokksins, og Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráöherra gefa hvor sína meginskýringu ó vanda sjávarútvegsins. „Aukning erlendra skulda er aöalvandinn í þessu dæmi,” segir Þorsteinn. „Skreiðarbirgðir upp ó likiega 2,5 milljarða eru ástæða númer eitt,” segirHalldór. „Það verður meginverkefni stjóm- valda og ríkisstjómarflokkanna í sumar að stöðva erlenda skulda- söfnun. Sú skýrsla sem nú liggur fyrir staðfestir að misgengiö og spennan sem þessi skuldasöfnun veldur leiðir til almenns ófarnaöar,” segir Þorsteinn Páisson. En nú vill Matthías Bjarnason samgönguráðherra taka erlend lán í vegagerðina. „Atkvæði greitt með frekari erlendum lántökum er at- kvæði gegn íslenskum sjávarútvegi. Þeir sem skilja þetta ekki skilja ekki vanda sjávarútvegsins,” segir Þor- steinn. Hann vekur jafnframt at- hygli ó að framleiðsluverðmæti sjáv- arútvegsins hafi stórminnkað í doll- urum taUð á síöustu fjórum árum en á honum hvíli miklar fjárfestingar að miklu leyti á gengistryggðum lán- um. „I þeirri skýrslu sem nú liggur fyrir er mikið um almennar fullyrð- ingar og ég sé ekki aö baki standi neinar ókveðnar rannsóknir. Þjóð- hagsstofnun hefur um órabil safnað ítarlegum gögnum sem hún vinnur úr fyrir okkur. Það er ljóst að rekst- ur í sjóvarútvegi er mjög erfiður,” segir sjóvarútvegsráðherra. „Það sem við erum að gera núna er að athuga á hvem hátt við nýtum heimild í lónsfjárlögum til þess að taka 250 milljóna lán til að létta birgðahald skreiöarframleiðsiunnar. Þar eru líklega birgðir upp ó 2,5 milljarða sem ekki hafa selst. Það segir sig sjálft að slíkt hefur áhrif í allri atvinnugreininni.” Sú skýrsla sem rætt er um kemur frá nefnd er skipuð var eftir fund fiskvinnslumanna á Vestfjörðum og þingmanna þar. Niðurstaðan er að almenn rekstrarstöðvun blasi við í sjávarútvegi. HERB Slökkviliðsmenn notuðust við kraftmikla vélsög til að rjúfa gat á þak verksmiðj- unnar í gærkvöldi. Hér sést hvar verið er að flytja sögina upp á þak. DV-mynd S. Pestin heldur innretó sína hægt og sígandi: I i,, Þrír með ein- kenni ónæmis- tæringar Forstig ónæmistæringar (Pro-AIDS) hefur nú greinst í þremur Islending- um. Sýni er send hafa verið til rann- sóknar erlendis sýna svo ekki verður um villst aö viðkomandi einstaklingar hafa smitast af sjúkdómnum. Við rannsóknir hérlendra lækna hafa svo komið í ljós ýmis einkenni er einkenna sjúkdóminn á byrjunarstigi, til dæmis eitlastækkun. Að sögn lækna er DV hefur rætt við eru sjúklingar þessir að öðru leyti full- friskir og ekki innlagöir á sjúkrahús. Fylgjast læknar nú grannt með heilsu- fariþeirra. A sjúkrahúsum höfuðborgarinnar ríkir töluverður taugaæsingur vegna þess aðbúnaðar er starfsfólki sem vinnur við blóðsýni er boðið upp á. Hafa bæði Borgarspítali og Landspítali í hyggju að koma sér upp sérstökum öryggisrannsóknarstofum til þess eins aö verja starfsfólk sitt hugsanlegu smiti. -EIR. Umsátri hætt Leigubílstjórar á Hreyfli hættu umsátri sínu um bensínstöð OLIS í Fellsmúla í gær eftir að þeir fengu sett lögbann á bensínsölu OLIS. Hreyfils- menn höfðu með því að leggja bílum sínum fyrir innkeyrslu hindrað viðskiptavini í að komast að bensínstöðinni í fjóra daga. -KMU. i i i i i i i i i Fálkaþjófnaðir: Tengsl Islendinga em í ramsókn Rannsóknarlögreglan er enn að kanna hugsanleg tengsl Islendinga við fálka- og fálkaeggjaþjófnaði hérlendis. Eins og menn muna var Bílaleiga Akureyrar bendluð við að hafa haft hönd í bagga þegar Christian Krey fór af landi brott i maíbyrjun. Krey þessi var grunaöur um stuld á fálka- eggjumí Aðaldal. Aðspurður um gang þessara móla, sagöi Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri að verið væriaðskoða þau. — Hvað um aðild Bílaleigu Akur- eyrar? „Viö höfum ekki beinlínis fundið neina refsivarða gerð þar,” sagði Hallvarður, „en rannsókn er ekki lokið.” Hann sagðist ekki geta sagt til um hvenær rannsókn lyki. -KÞ FRÉTTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Kjartani svelgist á blávatninu. DV-mynd EJ. Bjór- eða vatnsreið? Þeir sem voru staddir á Víðivöllum í gærkvöldi urðu vitni að he'dur óvenju- legum atburöi. Þar sást til Kjartans Jóhannssonai alþingismanns þar sem hann þeysti allt hvað af tók inn skeiðvöllinn. Á miðjum vellinum henti þingmaðurinn sér af baki, þaut að borði sem þar stóð og tæmdi ölkrús með þeim afleiðingum sem sjá má ó myndinni. En þetta var raunar æfing á einu skemmtiatriða sem gestum á fjórð- ungsmóti hestamanna verður boðið upp á að sjá á kvöldvökunni næstkom- andi laugardagskvöld. Og það er ekkert víst aö K jartan sé svona mikiö á móti bjórnum því í könnunni var bara blávatn að þessu sinni. JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.