Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Qupperneq 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGUST 1985.
MÉR LÍST EKKIILLA
Á TILBOD BIRKIS
— segir Albert Gudmundsson f jármálaráðherra
,,Eg er búinn aö sjá tilboöiö. Mér
list ekki illa á þaö. En ég þarf aö
skoöa þaö betur,” sagöi Albert
Guömundsson fjármálaráðherra um
tilboö Birkis Baldvinssonar í hluta-
bréf ríkissjóös í Flugleiðum.
„Ég heföi nú kosiö að starfs-
mönnum félagsins heföi verið gefinn
kostur á aö kaupa bréfin frekar en að
þaö sé verið aö fara meö þau úr
landi,” sagöi Siguröur Helgason, for-
stjóri Flugleiöa, er DV spuröi
hvernig honum litist á aö fá Birki
Baldvinsson sem stærsta hluthafa
Albert vildi ekkert segja um
hvernig tilboö Birkis hljóöaöi. „Það
geri ég ekki fyrr en ég er búinn aö
skoðaþaðvel.”
Birkir Baldvinsson vildi í gær
heidur ekkert segja upp á hvaö tilboð
félagsins ásamt Eimskipafélaginu.
Hlutur ríkisins, sem Birkir vill
kaupa, er 20 prósent. Eimskipafélag
Islands á jafnstóran hlut í Flug-
leiðum.
„Við höfum ekki haft mikil við-
skipti við Birki þannig aö ég veit ekki
alveg í hvaöa viöskiptum liann er.
hans væri:
„Eg held aö þaö sé ekki rétt aö
gera það núna. Þaö gæti aðeins
skaöaö mig ef ske kynni aö ein-
hverjum öörum dytti í hug aö bjóöa í
þetta.”
Hann leigir þotur og viö höfum
fengið tilboö frá honum annaö slagið.
Þegar við erum aö leita aö vélum
leitum við til flestra sem eru meö
þotur. Birkir er einn af þeim aðilum
sem viö höfum haft samband viö
undanfarin ár,” sagöi Siguröur
Helgason. -KMU.
— Hvaö viltu bíöa lengi meö aö
gera tilboö þitt opinbert?
„Þaö er ómögulegt aö spá í þaö.
Þaö fer eftir því hvernig mál fara.
Eg er ekki búinn aö fá neitt svar enn-
þá. Ég bíð náttúrlega eftir svari og
hvaöa skilyröi veröa sett þar eöa
hvort þaö verður breytt tilboð eða
hvernig svo sem þaö verður. En eins
og er hef ég ekkert svar fengiö."
— Þaö hefur veriö haft eftir þér að
í tilboðinu værir þú ekki aö prútta um
verðið.
„Eg hef ekki breytt þeirri upphæö
sembeöiö var um.”
— Þú hefur sem sagt boöið þá upp-
hæð sem óskaö var eftir?
„Já.”
— Snýst þetta þá fyrst og fremst
um greiðsluskilmála?
„Já. Þaðer máliö.”
— Er hugsanlegt aö þú viljir setja
þotur upp í veröiö?
„Nei. Þaö hefur ekki komiö til
tals. En þaö er, eins og ég sagöi, ekki
rétt aö ræða þetta mál núna. Maður
gæti orðið fyrir skaöa af aö tala of
mikiö um þetta aö svo komnu
máli,”sagði Birkir.
Þaö verð sem Albert Guömunds-
son fjármálaráðherra setti upp fyrir
hlutabréfin er nífalt nafnvirði bréf-
anna eða um 63 milljónir króna.
Hlutur ríkissjóös nemur fimmtungi
af hlutaféFlugleiöa.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða.
Húfan hekluð af Margréti Péturs-
dóttur úr hári hennar sjálfrar.
Húfan er geymd á Byggðasafni
Húnvetninga og Strandamanna á
Reykjum í Hrútafirði.
Missti
hárið
og heklaði sérhúfu
úrþví
Þegar blaöamenn DV höföu
viðdvöl á byggöasafninu á Reykjum í
Hrútafirði var þeim bent á merki-
lega húfu frá því snemma á öldinni,
sem þar er varöveitt. Húfuna heklaöi
Margrét Pétursdóttir frá Stóru-Borg
úr eigin hári eftir aö hafa misst þaö í
veikindum. Einnig útbjó hún
úrkeöju úr hluta af hárinu og gaf
eiginmanni sínum. Er keðjan einnig
varðveitt aö Reykjum.
Sonur Margrétar sagðist ekki
muna eftir aö móðir sín heföi notaö
húfuna en kvaðst sjálfur hafa sett
hana oft upp þegar hann var strákur.
Margrét hafði mikið, ljóst hár og óx
þaö aftur eftir veikindin. -JKH
Skáruf
sundurhjóna-
rúmsdýnuna
Vitað er um þrjú innbrot í íbúöir í
Reykjavík um verslunarmanna-
helgina. Ekkert þeirra er upplýst. Tvö
innbrot voru framin í austurbænum
eins og DV greindi frá í gær. Þá bættist
eitt viö í Fossvoginum.
Aö sögn rannsóknarlögreglunnar
var aökoman slæm: allt á tjá og tundri
þegar húsráöendur komu úr ferðalagi í
fyrrinótt. Haföi dýnan í hjónarúminu
meira aö segja verið skorin í sundur.
Spennti þjófurinn upp glugga en
íbúðin er á jaröhæð. Ur íbúðinni var
m.a. stoliö Sanyo sambyggöu hljóm-
flutningstæki og Akai myndsegul-
bandstæki. -EH.
Birkir Baldvinsson á flugvellinum í Lúxemborg. Fyrir aftan hann er fyrsta DC-8 þotan sem hann keypti.
Það var vorið 1983. DV-mynd: Valgeir. -KMU.
Hvað finnst forstjóra Flugleiða um að fá Birki Baldvinsson
sem stærsta hluthafa?
Frekar kosið starfsmenn
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Pagfari
I dag mælir Dagfari
Hafnarfjarðarbrandari í alvöru
Þær góöu fréttir hafa borist frá
Hafnarfiröi að fangaklefum þar
verði lokaö eftir hálfan mánuö. Aö
gefnu tilefni skal tekiö fram aö þetta
er ekki Hafnarfjaröarbrandari, eu
sannar auðvitaö enn einu sinni aö
engu er logiö upp á þá Hafnfiröing-
ana. Þaðan koma aiitaf bestu sög-
urnar.
Ástæöurnar fyrir lokuninni cru ein-
faldlega þær aö aðbúnaður er ófull-
nægjandi, bæði fyrir lögreglu og næt-
urgesti. Fréttin verður reyndar ekki
skilin öðruvísi en svo aö lögreglu-,
mennirnir og næturgcstirnir hýrist í
sömu klefunum, því báðir aöilar eru
sammála um aö aðbúnaöurinn sé
ekki bjóðandi. Nú getur það stafað af
því aö lögreglan uni þvi iila aö þurfa
að leggja sig á vaktinni innan um
fangana, en hitt er iika alveg eins lík-
legt aö fangarnir uni því illa aö hafa
lögregluliðið inn á sér á nóttinni. Ef
fangarnir fá ekki svefnfriö fyrir
löggunni, skilur maöur vel aö tukt-
húslimir kvarti undan slæmum aö-
búnaði. Það nær auövitað ekki nokk-
urri átt aö fangar og fastagestir á
lögreglustöðinni fái ekki single her-
bergi þegar þeir þurfa aö gista ann-
ars staöar en heima hjá sér.
Fangarnir hafa því ákveöið að loka
fangageymslunum í uæsta mánuöi,
veröi ekki ráöin bót á þessu ófremd-
arástandi. I.ögreglan er þeim sam-
mála, svo og heilbrigöiseftirlitiö í
Firöinum.Til aö mynda mun loftræst-
ingin vera i ir.egnasta ólestri, matur
er þar einhæfur, morgunmaturinn
kemur bæöi seint og illa og þar er
ekkert baðker, aöeins sturtur fyrir
einn í einu. Þaö er vitaskuld ótækt
meö öllu aö fangar þurfi aö bíöa hálf-
strípaðir eftir því aö lögreglumenn
baöi sig.
Sagt er aö bæði Lögreglufélagið og
fangarnir hafi barist fyrir því í mörg
ár aö fá aðbúnaðinn lagfæröan.
Hafnfirskir fangar hljóta því aö
vera búnir að stofna með sér samtök,
sem reyndar ætti aö vera búið aö
gera í öörum bæjarfélögum. En
Hafnfiröingar eru ætíö í fararbroddi
og hafnfirskir tukthúslimir hafa
greinilega meiri félagsþroska en
koiiegar þeirra i öðrum kjördæmum.
Og það er til marks um gott samstarf
viö lögregiuliðið á staðnum aö báðir
aðilar hafa sameinast í þessu bar-
áttumáli. Stefnir reyndar ailt í þaö
aö fangasamtökin veröi sameinuö
Lögreglufélaginu, enda er fleira sem
sameinar þau en sundrar. Lokun
fangaklefanna er fyrst á dagskrá. Ef
árangur næst í þvi máli vinnst
tvennt. Lögreglumenu þurfa þá ckki
lengur aö eltast viö afbrotameun út
um borg og bí til aö ná í einhvern til
að sofa hjá sér í klefunum, og af-
brotamennirnir þurfa ekki lengur aö
óttast aö þeim verði stungiö inn þótt
glæpirnir veröi upplýstir.
I raun og veru cr þetta fyrirmynd-
ariausn á fangelsismálum íslend-
inga. Sífellt er veriö að eyöa pening-
um í byggingu fangageymsla, sem
aftur leiöir til þess aö lögregian þarf
að vera á höttunum eftir blásaklaus-
um giæpamönnum til aö nýta
geymslurnar. Lögregian hefur
meira að segja lent í málaferlum
vegna afskipta sinna af fólki sem
ekki hefur viljaö gista hjá henni.
Með því að sameinast föngunum í
þeirri mannréttindakröfu, að fanga-
geymslum skuli lokaö, er í eitt skipti
fyrir öll komið í veg fyrir slíka
árekstra. Auðvitaö hljóta það aö
vera sjálfsögð mannréttindi að fá aö
stela í friöi, nauðga eða drepa náung-
ann, án þess aö eiga það yfir höföi
sér að vera settur i fangaklefa meö
hafnfirskum lögrcglumönnum þar
sem aðbúnaður er ófullnægjandi.
Hafnarfjaröarbrandarar hafa
löngum veriö frægir. Hér er hinsveg-
ar alvörumál á feröinni, enda getur
það varla talist fyndiö þegar fang-
arnir fá lögguua til að halda blaöa-
mannafund, svo þeir losni úr dýfliss-
unni.
Dagfari.