Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Side 7
DV. MHJVIKUDAGUR 7. ÁGUST1985. 7 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Desmund Tutu, biskup og leiðtogi blökkumanna í Suður-Afríku, segist hvergi munu hlýða ákvæðum neyðarlaga um bann við boðun pólitisks boð- skapar við jarðarfarir. Kosningasamvinna Olof Palme og Gro Brundtland Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit- ara DV í Lundi: Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Gro Harlem Brundtland, formaður norska Verkamannaflokks- ins, styðja nú hvort við bakið á öðru í kosningabaráttunni. Um helgina voru þau á kosninga- ferðalagi saman og héldu kosninga- fundi í Strömstad í Svíþjóð og Halden í Noregi. Á báðum stöðum hlýddu þúsundir kjósenda á boðskap þeirra sem var sá sami og búast mátti við. Svíþjóð er á réttri leiö undir stjórn Palme, framleiösla og atvinna aukast svo og velferö yfirleitt. I Noregi hins vegar, þar sem jafnaðarmenn eru í stjórnarandstööu, lækka framleiðslu- tölurnar og atvinnuleysið eykst. Olof Palme hefur verið talsvert gagnrýndur fyrir að blanda sér í kosningabaráttuna í Noregi. Þessari gagnrýni svaraði hann nú meö því aö beina nokkrum spurningum til leiðtoga hægri flokkanna á Norðurlöndum er nýlega voru samankomnir á fundi í Hvíta húsinu í Washington. „Hvað töl- uðuð þið um þar,” spurði Palme. Gagnrýnduð þiö kynþáttaaðskilnaðar- stefnuna í Suöur-Afríku? gagnrýnduð þið Strauss sem nýverið hefur sagt að að sjálfsögðu þýði ekki aö veita negrum í Suður-Afríku kosningarétt vegna þess að það hefði bara vandræði í för með sér? Gagnrýnduð þið víg- búnaöarkapphlaupið? eða rædduð þið misheppnaða pólitík ykkar er hefur leitt til þess að milljónir ganga atvinnulausar í Bandaríkjunum og Bretlandi og öðrum löndum þar sem hægri stjórnir eru við völd.” Meðal þess er Palme og Brundtland boðuðu var aukin samvinna Noröurlanda á iðnaðarsviöinu, þar á meöal lagning hraðbrautar frá Oslo gegnum Svíþjóð og til meginlands Evrópu með brúarsmíð yfir Eyrar- sund. Aukin samvinna á öllum sviðum var boðuð. „Þetta gerist ef flokkar okkar sitja við völd í báðum löndunum eftir kosningar,” sagði Gro Harlem Brundtland. Mannskaða- veður í Kína 177 manns fórust í fellibyl sem gekk yfir Zhejianghérað í austurhluta Kína og gerði mikinn usla í uppskeru bænda. Um 1400 manns slösuðust, eftir því sem Dagblað alþýðunnar segir í morg- un. Þetta var sjötti fellibylurinn í Kína á þessu ári og gekk yfir í síðustu viku. Eyöilagði hann um 20 þúsund hús og ýmist sökkti eða stórskemmdi um 1400 báta og skip. Stíflur brustu og hlaust af mikið flóð, sem olli tjóni á áveitukerf- um. — Eyðilögöust um 30 þúsund hekt- arar ræktaös lands en tjón varð á 160 þúsund hekturum til viðbótar. — I Zhejiang er aðallega ræktað hveiti, hrísgr jón, korn og grænmeti. Desmund Tutubiskup í Suður-Afríku: „Heldur fer ég í svartholið en lúta neyðarlögum” Desmund Tutu biskup, leiðtogi og sameiningarafl blökkumanna í Suður- Afríku, sagði í gær að hann væri reiðu- búinn að fara í fangelsi fyrir það að bera boðskap bibliunnar. Tutu virti í gær að vettugi bann stjórnvalda við því að ávarpa syrgjendur við jarðarför tveggja blökkumanna í einu úthverfa Jóhannesarborgar. Bann stjórnvalda er tilkomiö vegna neyöarlaga er sett voru 21. júlí síðast- liðinn og eiga að hamla gegn óróa á meðal blökkumanna í tilteknum héruðum í suöurhluta landsins. I banni stjórnarinnar felst einnig að ekki er löglegt að nota útfarir blökku- manna sem vettvang fyrir pólitískan boðskap af neinu tagi og áróður gegn kynþáttastefnu stjórnarinnar. Tutu hefur hvatt stjórnina í Pretóríu til að aflétta neyðarlögunum og segir þau aðeins kynda undir auknu ofbeldi og meiri hörku blökkumanna í garð stjórnvalda. Hömlur stjórnarinnar á því hvernig blökkumenn mega jarðsetja látna félaga, er falliö hafa í átökum við yfir- völd, hafa sætt mikilli gagnrýni. Desmund Tutu biskup segist í engu munu fara eftir neyðarlögum stjórnar- innar. „Auðvitað vil ég ekki fara í fangelsi en ef það verður hlutskipti mitt að fara í fangelsi fyrir það eitt að boða guðsorð þá verður svo aö vera,” sagði biskupinn. Eftir því sem harkan eykst í baráttu suður-afrískra blökkumanna fyrir auknum réttindum og fangelsanir á leiðtogum blökkumanna færast í vöxt eykst hlutverk og mikilvægi Tutu Fyrsti leiðtogafundur araba, sem haldinn hefur verið í þrjú ár, hófst í morgun í Casablanca. En rúmlega helmingur leiötoga aðildarríkja Arababandalagsins (21) sniðgengur þó fundinn. í stað leiðtoganna senda sum lægra setta fulltrúa, en Sýrland, Alsír, Suður-Jemen, Libanon og Líbýa senda engan til að vera við- staddan. Níu af 21 aðildarríki bandalagsins senda leiðtoga sina og sex senda full- biskups sem málamiðlara og sameiningarafls á meðal blakkra. Svo virðist sem stjórnin sé hrædd við að koma fram af hörku gegn biskupnum er hlotið hefur alþjóðlega viðurkenningu og er ekki síður þekktur utan heimalandsins en innan. trúa. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínuaraba, sækir fundinn sem er boðaöur af Hassan, konungi Marokkó. Eftir því er tekið að Fahd, konörig- ur Saudi-Arabíu, emírinn frá Kuwait, og Saddam Hussein, forseti Sýrlands, mæta ekki. Á dagskrá fundarins eru vandamál Palestínuaraba og að bæta sambúð aðildarríkjanna innbyrðis. Illa sóttur /e/ð- togafundur Araba- bandalagsins HJA OKKUR GANGA VIÐSKIPTIN GLATT # VIÐ ERUM í hjarta borgarinnar viö Brautarholt. # VIÐ HÖFUM rúmgóöan sýningarsal og útisölusvæöi. # VID BJÓÐUM mikiö úrval notaöra bíla af öllum geröum. # VIÐ VEITUM góða og örugga þjónustu V«a höfum opiO mánud. - föstuU. fcf. 9 og iaugard. fcf. f O - f 9 - f 9 BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.