Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Side 28
DV. MEÐVIKUDAGUR 7. ÁGUST1985.
*
28
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Hluti af hópnum sem tók þátt í ferðinni stillti sór upp til myndatöku við Írafossvirkjun á meðan beðið var eftir að komast niður.
Skemmtiferö aldraðra í Langholtssókn:
MARGIR HAFA EKKI
SLEPPT ÚR FERD
— Bæjarleiðir sáu um aksturinn að vanda
Þorkell Þorkelsson, forstjóri
Bæjarleiða og séra Sigurður
Haukur með pípurnar sínar fyrir
utan Valhöll á Þingvöllum.
DV-myndir Bj. Bj.
Bílstjórar á Bæjarleiöum buðu
öldruöum í Langholtssókn í hina
árvissu skemmtiferö á þriöjudaginn í
síöustu viku. Ferðir sem þessar hafa
veriö farnar árlega í rúmlega 25 ár.
Að þessu sinni voru 32 bílar í ferð-
inni en flestir hafa bílarnir veriö 40.
Ekið var aö Þingvöllum en aðeins haft
þar stutt stopp. Þaðan var ekiö aö íra-
fossvirkjun og þeir sem vildu skoöuöu
virkjunina. Ekki voru allir hrifnir af
því aö fara niöur eins og talaö var um.
Sagöi ein úr hópnum aö hún ætlaði ekki
•?-mður fyrr en aö henni kæmi, svo hún
beiö bara á meðan hinir fóru og
skoðuðu sig um í neöra. Frá Irafossi
var ekiö aö Borg í Grímsnesi en þar
beið kaffihlaöborð sem konur úr Kven-
félagi Grímsneshrepps og Kvenfélagi
Langholtssóknar sáu um í sam-
einingu. Eftir aö feröafólkið haföi
fengið sér kaffi og meö því var gengið
til kirkju þar sem séra Siguröur
Haukur flutti stutt erindi. Frá Borg
var ekiö í bæinn og sáu bílstjórarnir
um aö koma hverjum og einum til síns
heima.
Þaö eru bílstjórar á Bæjarleiöum,
Bræörafélagiö í Langholtssókn og
kvenfélagið í sókninni sem sjá um aö
skipuleggja skemmtiferöirnar. Leiö-
sögumaður aö þessu sinni var Eiríkur
Jónsson kennari.
SJ
Bilalestin á Mosfellsheiði, þeir keyrðu nú ekki alveg svona þétt heiaur
röðuðu þeir sér upp sérstaklega fyrir Ijósmyndarann okkar.
Konurnar eru í föndri
en piltarnir taka í spil
„Já, ég fer nú í þessar feröir á
hverju ári og líkar þær alveg ljómandi
jk vel,” sagði Eyjólfur Bjarnason þegar
viö spurðum hann hvort hann heföi
fariö oft með Bæjarleiðum í skemmti-
ferðirnar.
Eyjólfur er 79 ára að aldri en vinnur
ennþá smáræöi hjá ÁTVR, er þar með
eina næturvakt á viku. Hann sagðist
hafa unnið þar í fjölda ára og síðustu
árin viö flöskuþvott. Eyjólfur er
# ættaöur úr Aðaldal í Þingeyjarsýslu en
hefur búiö viö Reykjavík í 40 ár. Viö
spurðum hann hvort hann tæki þátt í
einhverju fleiru á vegum Safnaöar-
félagsins en skemmtiferðunum. „Jú,
ég mæti á hverjum miðvikudegi yfir
vetrartímann,” sagöi hann. Hvaö
gerið þiö ykkur til dundurs þá?
„Konumar eru nú aðallega í föndri en
piltarnir taka í spil. Þaö er annars
merkilegt að mínu mati hvaö konurnar
eru listrænar í því sem þær búa til
miðaö viö aö þær eru allar ólæröar í
greininni ef svo má segja,” sagði
Eyjólfur. SJ
Sigríður Gisladóttir, Ragnheiður Þórólfsdóttir og Ingibjörg Guðmunds-
dóttir fengu sér ís é Þingvöllum. Þær sögðust varla hafa sleppt úr ferð enda
likaði þeim Ijómandi við að fara í svona ferðir með þessum lika indælis-
bilstjórum að því er þær sögðu.
Eyjólfur Bjarnason, en honum
finnst föndur kvennanna ákaflega
listrænt.
DV-mynd Bj. Bj.
Margrét Lárusdóttir, en hún er
87 ára gömul og hefur tarið i
næstum allar ferðirnar sem
Bæjarleiðir hafa boðið
öldruðum i Langholtssókn i.
DV-mynd Bj. Bj.
Al Pacino
íNoregi
— fer með aðalhlut-
verkið í nýrri kvik-
mynd sem Norðmenn
standa að
Bylting 1776 nefnist kvikmynd sem
norska fyrirtækið Viking film er að
framleiða um þessar mundir í sam-
vinnu viö bandarískt fyrirtæki sem
nefnist Goldcrest. Síöustu tökur fyrir
myndina standa nú yfir í Noregi og
kemur ekki óþekktari leikari til Nor-
egs en A1 Pacino en hann fer meö eitt
aðalhlutverkiö í myndinni. Tökurnar
fara fram í Geirangursfirði og Lofoten
og koma um eitt þúsund statistar fram
í þessum tökum. Fleiri stór nöfn eru
meðal leikenda eins og t.d. Natassja
Kinski og Donald Sutherland. Þau
koma samt ekki til Noregs því tökur
þar sem þau koma fram í var lokið fyr-
ir nokkru.
Frumsýning myndarinnar er áætluð
1. desember nk. en kostnaöur við fram-
leiðslu hennar hefur farið töluvert
fram úr áætlun. Norsku kvikmynda-
gerðarmennirnir munu hafa áhyggjur
af því aö myndin muni ekki standa
undir sér en þeir bandarísku telja aö
stórmynd sem þessi komi til meö aö
draga aö áhorfendur.
Efni myndarinnar er ekki nýtt af
nálinni því hún fjallar um frelsisstríö
Bandaríkjanna en þetta er vissulega
sígilt efni svo það er aldrei aö vita
nema myndin standi undir sér, ekki síst
þegar stórstjörnur á borö við A1 Pacino
og Donald Sutherland eru í aðalhlut-
verkunum.
Al Pacino i hlutverki sinu i mynd
inni Bylting 1776.
Gaman að
ferðast
— sagði Margrét
Lárusdóttir
Margrét Lárusdóttir, sem er 87 ára
gömul og meðal þeirra elstu í hópnum
sem fóru í skemmtiferðina, sagðist
hafa fariö í nær allar ferðirnar sem
Bæjarleiöir heföu boöið þeim í. Hún
sagöi aö sér líkaði ljómandi vel að
ferðast í bíl en líklega væru rúturnar
betri.
Margrét sagöi aö hún hefði mjög
gaman af því aö feröast og nýlega fór
hún t.d. í Þórsmörk meö Safnaöar-
félaginu. „Þaö var mjög góö ferö eins
og þessi er líka,” sagöi Margrét.