Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Side 6
6 DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Eyjólfur Melsted búinn afl koma maukinu í pressuna og þrýstir vatninu út. Vatnsósa pappírinn biflur vinnslu í þvottabalanum. Fremst sjáum við pappírsklumpa tvo. Sá Ijósari er orðinn þurr í gegn og tilbúinn til brennslu. Pressan pressuö: segir Eyjólfur Melsted Fáar þjóöir lesa og gefa út eins mörg dagblöö og við Islendingar. Á hverjum degi fyllast blaða- og tímaritagrindur íslenskra heimila af nýjustu útgáfun- um og mestur hluti þeirra endar ævi- skeið sitt í sorptunnunni nokkrum dög- um síðar. j — Hvað er annað hægt aö gera viö dagblaðabunkana en fleygja þeim? spyrja nú sumir. j Hér á íslandi hefun þeim yfirleitt verið hent beint á haugana. Fram aö þessu hefur lítill hluti jpappírsstaflans farið í einhvers konar endurvinnslu. Hjá milljónaþjóðum eflendis ber meira á endurvinnslu dagblaða en hér. I Bandaríkjunum er til dæmis algengt að sjá stóra stálgáma við íbúðahverfi og eru dagblaðakaupendur hvattir til aö kasta blöðunum í þá eftir notkun i staðinnfyrirað kastaþeimísorpið. Þegar blaðagámarnir eru síðan full- ir eru þeir teknir og dagblaðapappír- inn endurunninn. Oft eru það ýmiss konar líknarfélög sem sjá um útgerð slíkra pappírsgáma og fá vissa umbun fyrir sitt verk frá þeim fyrirtækjum er sjá um endurvinnslu pappírsins. Dagblaöapappír er þó brúklegur i ýmislegt. Eyjólfur Melsted tónlistarmaður hefur í tvö ár gert sér mat úr þeim dag- blöðum er til falla á heimili hans. Með sérstakri pressu hefur hann unnið bréfklumpa er hann hefur síðan notað sem öndvegis eldsneyti í viðarofninn í sumarbústaðnum. Með þessu segist Eyjólfur hafa sparað sér mikil eldi- viðarkaup og líklega stórfé. „Eg rakst á þessa pressu í Þýska- landi fyrir nokkrum árum,” segir Eyjólfur, ,,á þeim tíma er umræða um orkusparnaö var hvað almennust. Þetta er sáraeinfalt verkfæri og fer lít- iðfyrirþví.” Eyjólfur byrjar á því að rífa dag- blöðin sín í þunnar ræmur. „Ætli ég noti ekki svona tvö helgarblöð í hvert holl,” segir Eyjólfur. Síðan kemur hann þeim fyrir í bala fullum af vatni. Stærð balans skiptir ekki máli. Oft er þægilegt að hafa hann á svölunum eða í skúrnum, sæmilegur þvottabali er fyrirtak. Dagblaðaræmunum er skellt í vatnið og þær látnar liggja í bleyti þar til pappírinn er orðinn vel vatnsósa. Aö sögn Eyjólfs er yfirleitt nóg að láta pappírinn liggja í svona einn sólar- hring. Pressan pressuð Eftir sólarhing í bleyti er pappírs- deigið orðið boðlegt í pressuna. „Ég tek einfaldlega vænan slurk af vatns- ósa pappírnum og nota pressuna til að pressa úr honum allt það vatn sem mögulegt er. Pressan myndar svo bréfklump sem ég læt þorna í liðlega viku áður en hann er hæfur til brennslu,” segir Eyjólfur. Pressan góða sem Eyjólfur rakst ó í Þýskalandi. Einföld smið og ódýr. Pressuninni lokið, klumpurinn tekinn úr. Að sögn Eyjólfs hafa bréfklumparnir hans reynst fyrirmyndar eldiviður í viðarofni sem hann á í sumarbústaðn- um. „Ég nota nú yfirleitt annan eldiviö til að kveikja með upp í ofninum en bréfklumparnir hafa síðan reynst vel við aö halda hitanum í bústaðnum. Þetta myndar fljótt glóð og brennur ekki með miklum loga, auk þess sem þeir taka mjög fljótt eld,” segir Eyjólf- u.. Ekki kvað Eyjólfur neina ólykt af pappírsklumpunum er þeir brynnu en DV-myndir KAE. sagöi hugsanlega varasamt að brenna þeim annars staðar en í lokuðum eld- stæðum. „Askan af þessu er mjög fín, stundum nota ég hana til áburöar þannig að hér er um gjörnýtingu á dag- blaðapappírnum að ræða.” Ekki kvaöst Eyjólfur vita af öðrum er stunduöu slika brennslu á dagblaöa- pappír en kvaö bér um mjög svo ein- faldan verknað að ræða og sniöugan fyrir þá sem spara vildu eldiviðar- kostnað viö upphitun sumarbústaöa sinna, ekki síst á köldum árstíðum. Verð- og þyngdarmerking- ar á brauði og kökum Nokkuð hefur borið á fyrirspurn- um á Neytendasíðu um reglur þær er gilda um þyngdarmerkingar á brauði og kökum. Þann 7. des. 1983 gaf Verðlagsstofnun út nýjar reglugerðir um verð- og þyngdar- merkingar á brauði, kökum og kexi. Eftirfarandi upplýsingar eru tekn- ar úr nýjasta tölublaöi Verðkynning- ar er Verðlagsstofnun gefur út. 1. Á eftirtöldum vörum er skylt að gefa upp bæði verð á sölueiningu og verð á kílói eða 100 g miðað við köld brauö. a. Matarbrauð alls konar, heilt og skorið í sneiöar, flatkökur og hveiti- kökur. b. Kex, smákökur, tvíbökur, hrökkbrauð og þess háttar. 2. Á eftirtöldum vörum má sleppa upplýsingum um verð á kílói eöa 100 g ef lágmarksþyngdar er getið. Rúnnstykki, horn, kruður, kruöuboll- ur, pylsu- og hamborgarabrauð og þess háttar. 3. Á eftirtöldum vörum nægir að gefa upp verð á sölueiningu: Tertubotnum, formkökum, vínar- brauðum, snúöum, sætum bollum, kleinum, þurrkökum, kransakökum, r jómakökum og þess háttar. Nánari upplýsingar fást á skrif- stofu Verðlagsstofnunar, Borgartúni 7, Reykjavík, sími 27422. Auglýsingaþjónustan Sameinumst öfl um taó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.