Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985.
15
Menning
Menning
Menning
Menning
Hálf ur veruíeiki
Sýning Eyjólfs
Einarssonar
íListmunahúsinu
Eyjólfur Einarsson var lengi vel
einn af síöustu móhíkönum þess
bylgjustíls í afstraktlist sem Þor-
valdur Skúlason innleiddi og enn
eimir eftir af hjá núlifandi septemb-
ermönnum. Línur og litir eru lagðir á
myndflötinn í miklum sveiflum og
leitast er viö að skapa myndrænar
líkingar fyrir náttúrleg öfl. En meö-
an eldri bylgjumenn voru allir í há-
loftunum var Eyjólfur jarðbundnari
í líkingum sínum. Eg haföi a.m.k. á
tilfinningunni aö hann væri í raun aö
mála landslag og gefa til kynna
mannlega nærveru í því. Stundum
undu línur hans upp á sig, mynduöu
kjarnaform sem voru eins og ávæn-
ingur af anatómíu.
Herslumunur
Ég þykist nú hafa verið sannspár
því á síöustu tveimur árum hefur
Eyjólfur verið aö nálgast veruleika
hlutanna hægt og bítandi og á
sýningu hans í Listmunahúsinu
vantar nú aöeins herslumuninn upp á
þaö aö hann stígi það skref til fulls.
Eins og stendur ríkir nokkurs kon-
ar millibilsástand í verkum hans,
kannski hálfur veruleiki. Megin-
áherslur þeirra rekja rætur sínar til
afstraktmálverksins og hér á ég viö
hina stóru fleti og burðarása sem
hvorir tveggju eru málaðir með þeim
glæsibrag sem Eyjólfur er þekktur
fyrir. Þessir þættir styöja síðan viö
þá atburði sem eiga sér staö í mynd-
unum, sjálft frumlagiö.
Þegar aö þeim kemur notar Eyjólf-
ur ýmsa tækni súrrealista, vitnar
jafnvel í velþekkt súrrealísk mótíf,
taflborðiö, teninginn, eggið. Mest
beitir hann þó því bragöi súrrealista
Eyjólfur Einarsson — Fönix, 1984 (nr. 19).
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
aö umturna hinu þekkta eöa gera þaö
óvirkt meö einhver jum hætti.
Þokkafull skáldverk
Andstæðum fyrirbærum er teflt
saman, viötekin f jarvídd og rými eru
tekin úr sambandi, óskiljanleg atvik
gerast, en þó er alltaf eins og okkur
komi þetta allt viö. Eyjólfur er þó
gersneyddur djúpstæðri bölsýni
margra sígildra súrrealista. Hann er
ekki í því aö senda tilverunni langt
nef eöa umbylta trú okkar á rökræna
heimsmynd heldur miklu fremur aö
leita ævintýranna í hvunndeginum,
draga þau fram áhorfandanum til
ánægju.
Því er hætt viö aö mörgum þyki
þessi verk Eyjólfs einum of gæf,
einum of smekkleg. Víst er aö sum
þeirra eru ekki nógu áríðandi, önnur
eru of fastmótuð til aö ná flugi. En
þar sem Eyjólfi tekst best upp, í
mörgum vatnslitamyndanna, mál-
verki eins og „Fönix” (nr. 19) eöa
„Funi” (nr. 42), nær hann aö skapa
þokkafull skáldverk sem eiga brýnt
erindi við okkur.
Péttft' íit'lfíwm \M>if
frú Hmfafdat
Hin eilífa leit
(iuðn v tteimeiu > ii<*uir
Eg gehgfrá b<vnum
BÆKUR
ÞRIGGJA
SYSTKINA
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
sent frá sér tvær nýjar ljóöabækur.
Þær eru Ég geng frá bænum eftir
Guönýju Beinteinsdóttur frá Grafar-
dal í Borgarfiröi og Hin eilífa leit eftir
Pétur Beinteinsson, bróöur hennar.
Einnig hefur Hörpuútgáfan sent frá
sér endurútgáfu á Bragfræði og hátta-
tali Sveinbjarnar Beinteinssonar sem
einnig er bróöir þeirra.
I Grafardal í Borgarfirði ólust upp í
byrjun þessarar aldar átta systkini
sem flest hafa oröiö þekkt fyrir ljóöa-
gerð og kveöskap. Áður hafa komið út
ljóöabækur eftir Einar og Sigríði og í
undirbúningi er útgáfa ljóðabókar eftir
Halldóru.
Bragfræði og háttatal Sveinbjarnar
kom fyrst út áriö 1953 og bætti þá úr
brýnni þörf sem kennslubók í rímna-
og vísnakveöskap. Var hún strax tekin
í notkun í framhaldsskólum og víöar
sem kennslubók. Háttatalið var síðar
gefiö út á snældu þar sem höfundurinn
kveður rímnalögin. Um langt árabil
hefur bókin veriö ófáanleg enda seldist
hún fljótlega upp.
Bragfræði og háttatal er 77 bls. aö
stærð auk eftirmála og er gefin út í
kiljuformi. Bók Guðnýjar er 44 bls.
Bókin er meö myndum í höröu bandi.
Bók Péturs er 88 bls. með sama um-
búnaöi og bók Guðnýjar. Pétur Þór
Bjarnason gerði myndir á bókakápur.
IteUTIJT
famnt héiiendis
Það er ekki á hverjum degi sem HTH kynnir
nýtt útlit á eldhúsinnréttingum.
Fyrir skömmu voru tvær útlitsgerðir kynntar í
Danmörku, HTH 2400 og HTH 2500. Þessar
nýju innréttingar hlutu strax frábærar viðtökur
og hafa þær fengið lof fyrir nútíma hönnun og
einkar smekklegt útlit.
Gæðin eru óbreytt og afborgunarkjörin þau
bestu sem þekkjast - allt að 12 mánaða
lánstími.
Vertu velkomin á sýningu okkar um helgina
að skoða nútíma hönnun á HTH eldhús-
innréttingum.
A innréttingahúsiö
I 1 Hátegsvegi 3 105 Rvík. s. 27344 / i
r.TiR
1r hth fréttir hth préttir hth FR]
I .
...
'JTR .
u*