Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985. íþróttir Lítið um stórleiki — Í3. umferðenska deildabikarsins t gær var dregið i 3. umíerð enska deildabflcaratau. Melstarar Norwich iá erflðan leik — útllelk á gervigrasinu í Loton. Stúrliðin drógust lítið saman, Liverpool leikur 6 Anfield við Brighton og Man. Utd. leikur einnig á helmavefli gegn West Ham. Everton leikur hins vegar á áflvelli — í Shrewsbury. Lelklrnir i 3. umferðinni verða leiknir 28. tfl 30. október. Einn lelkur nema jafntefll verðl. Ekki leikið heima og að hetanan eins og i 2. umferðinni. Niöurstaöan af drsettinum varö þessi: Watford-QPR Derby-Nottingham Forest Shrewsbury-Everton Luton Town-Norwich Birmingham-Southampton Man. City-Arsenal Portsmouth-Stoke Líverpool-Brighton Man. Utd-West Ham Swindon-Brentford eöa Sheff. Wed. Leeds-Aston Villa Coventry-West Bromwich Oxford-Newcastle Chelsea-Fulham Grimsby-Ipswich Orient eöa Tottenham-Wimbledon. -hsim Spurs enn á eftir Bruce Frá Sigurbirni Aðalsteinssynl, frétta- ritara DV i Englandi: Tottenham er enn á höttunum á eftir miðvörðunum Steve Bruce bjá Nor- wicb og Alvin Martin hjá West Ham. Uklegra er talið að Bruce verði fyrir valinu hjá Lundúnaliðinu en hann hefur átt mjög góða leiki fyrir Nor- wich. Norwicb hefur þegar hafnað tveimur tflboðum frá Peter Sbreeves, stjóra Spurs, en kunnuglr telja að Sbreeves eigi ef tir að reyna aftur. -fros Pábnar Slgurðason. Komast Haukar í 2. umferð? — mæta Taby Basket á morgun Tekst Haukum að komast i aðra umferð í Evrópukeppni bikarhafa? Þeirri spurningu f «s t svarað á morgun en þá nuetir liðið ssnska liðinn Taby Basket f Stokkhólmi. Haukar eiga all- scmilega möguleika en liðið vann fyrri leik llðanna sem fram fór í Hafnarfirðl með fimm sflgum, 88-83. -fros Golfmót hjáGR Vegna fjölda áskorana veröur haldiö enn eitt mót hjá Golfklúbbi Reykjavfkur á morgun, laugardag. Mótið veröur styrktarmót fyrir sveit GR sem keppir í Evrópukeppni félags- liða í golfi í nssta mánuöi. Leikin verður 18 holu punktakeppni með fuliri forgjöf. Ræst veröur út kl. 9.00 til 13.00. íþróttir fþróttir íþróttir Steve Cram kemur I mark þegar hann setti heimsmetið i míluhlaupi 6 Bislett-leikvanginum i Ösló i sumar. Spánverjinn Josó Luis Gonzales virðist langt, iangt ó eftir en náði þó fjórða besta tima sem þá hafði nððst i míluhlaupi. Hljóp á 3:47,79 minútum. Cram langt á undan Árangur í blaupum á millivega- lengdum í sumar hefur i einu orðið sagt verið stórkostlegur. Þar ber hæst heimsmetin í 1500 m, míluhlaupi og 5000 metrum. Tveir kóngar skipta þeim á milli sín, Steve Cram, Englandi, og Marokkómaðurinn Said Aouita. Þrátt fyrir hlð mikln hlaup hins 24 ára Englendings, Steve Cram, í Osló í sumar, 3:46,31 min., komst það þó ekki í hálfkvisfl hvað athygli snerti við þegar landi hans, Roger Bannister, varð fyrstur manna til að hlaupa míluna, 1609,3 metra, á innar við fjórum mínútum. Það var í Oxford í mai 1954 og Roger hljóp á 3:59,4 mín. Rauf þar mlkinn múr sem lengi virtist óvinnandi. En það var skammt stórra högga á milli eftlr að læknastúdentinn Bannister vann afrek sitt. Hann átti beimsmetíð aðeins í nokkrar vikur. Sfðar á árinu 1954 bættí Ástralíu- maðurlnn John Landy met Bannisters verulega. Ef þeir Bannister og Cram hefðu hlaupiö saman í methlaupum sínum hefði Cram verið 87,3 metrum á undan Bannister í mark. Það hafa sér- fræðingar reiknað út en auövitaö er allur samanburður á þessum tveimur heimsmetum út í hött, þó gaman geti veriö aö leika sér aö slikum tölum. Aöstæður í dag á hlaupabrautum eru svo allt aörar og betri. Gerviefnin hafa séð til þess. Þó er þjálfun miklu full- komnari í dag og bestu hlauparamir allir atvinnumenn. Tveir Norömenn bjuggu til hina skemmtilegu teikningu hér að neöan, reiknuðu út muninn í metrum á hinum ýmsu heimsmetum sem sett hafa veriö á míluhlaupi frá þvi Bannister setti heimsmet sitt 1954 og Cram í sumar og einnig eru myndir af þeim hlaupurum sem þar koma viö sögu. Þaö er óþarfi aö fara fleiri oröum um hana — hún skýrir sig sjálf. -hsím. ÞROUN HEIMS- METSINS í MÍLU — eftir hið fræga met Roger Bannister 1954 Síðan Roger Bannister, Englandi, varö fyrstur til að hlaupa miluna á innan við fjórum minútum árið 1954 hefur heimsmetið verið bætt 14 sinnum, síðast í sumar, þegar Steve Cram, Englandi, hljóp á 3:46,31 min. Það var þó miklu melri viðburður 1954 þegar Bannister, sem nú er með kunnustu læknum á Bretlandseyjum, setti heimsmetið fræga eftir góða aðstoð Chris Chataway, sem „dró” Roger í hetansmetið. Chataway var mun kunnari sem 5000 m hlaupari og vann sem slikur mörg góð afrek. Eftir að hlaupaferli hans lauk varð hann kunnur stjómmálamaður, þingmaður og ráðherra íhaldsflokksins. En lítum á þróun heimsmetsins frá 1954, þegar Roger Bannister setti heimsmetið Iræga. 3:59,4 — R. Bannister, Engl. 1954 3:57,9 — J. Landy, Ástralíu 1954 3:57,2 — D. Ibbotson, Engl. 1957 3:54,5 — H. Elliott, Ástralíu 1958 3:54,4 — P. Snell, N-Sjál. 1962 3:53,6 — M. Jazy, I'rakklandi 1965 3:51,3 — J.Ryan,USA 1966 3:51,1 — J.Ryan,USA 1967 3:51,0 — F. Bayi, Tanzaníu 1975 3:49,4 — J. Walker, N-Sjál. 1975 3:49,0 — S. Coe, Englandi 1979 3:48,8 — S. Ovett, Englandi 1980 3:48,53 — S. Coe, Englandi 1981 3:48,40 — S. Ovett, Engl. 1981 3:47,33 — S. Coe, Englandi 1981 3:46,31 — S. Cram, Englandi 1985 „Leikmenn rifust og æptu hver að öðrum eftir að við töpuðum gegn Tecca í fyrrakvöld. Ástandið er orðið voða- Enn eil hjá í< Kvennalandsliðið máti « á mótinu f Hollandi er það tslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik mátti sætta sig við þriðja tapið úr jafnmörgum leikjum er liðið lék gegn Hollendingum. Leikurinn, sem var liður í alþjóðlegu móti, iór fram í Hollandi og reyndust heima- menn öllu sterkari. Lið þeirra vann ellefu marka sigur, 26—15, eftir að átta marka munur hafði verlð á liðun- um í hálfleik. Eins og í leik Islands við Noreg í fyrrakvöld hafði Island í fullu tré í við mótherja sína á fyrstu mínútum leiks- ins. Hollendingarnir náðu undirtökun- um rétt um miðjan hálfleikinn er leikur íslenska liðsins hrundi. Þær hol- lensku héldu síöan strikinu í síöari hálfleiknum en þokkalegur leikkafli Islendinga undir lokin varð þess vald- andi að munurinn varð ekki meiri. Is- land hefur nú leikið gegn Noregi, Ung- verjalandi og Hollendingum. Tveir leikir eru eftir og eru þeir gegn slök- Sigurður Svainsson. Bannister, 87,3 m Ibbotson, 77,3 m Elliott, 60,6 m Snell, 51,6 m Ryun, 34,7 m Wollter, 22,4 m Coe, 7,7 m Bayi, 32,0 m Oveft, 14,8 m iþróttir (þróttir (þróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.