Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1985, Side 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. OKTOBER1985.
i
Rjúpnaveiðinerhafin:
„Mörg ár síðan menn
hafa séð eins mikið”
—segir Sverrir Scheving Thorsteinsson
Þœr voru varar um sig rjúpurnar undir Ulfarsfelli i vikunni og létu menn
ekki koma of nœrri sér og á innfelldu myndinni sést hvað gerðist ef of
nærri var komið. Þœr vita liklega hvað þær eiga i vændum.
Rjúpnaveiðitíminn er genginn í
garð og máttu fyrstu skotveiðimenn-
imir byrja í morgun en fram að 22.
desember má skjóta. Eigi færri en 10
þúsund manns stunda skotveiði hér-
lendis og eru þeir í öllum landshlut-
um. Enda er víst komin spenna í
margan manninn og verður örugg-
lega mikill púðurreikur næstu daga.
Gæsaveiðar standa líka yfir þessa
dagana og hefur vist gengið á ýmsu.
Margir hafa það að atvinnu að
skjóta rjúpur og er víst töluvert upp
úr því að hafa, en kuldalegt er það og
ekki beint f jörugt starf.
Þar sem rjúpnaveiðin er nú að
hefjast í dag og margir orðnir
spenntir höföum viö samband við þá
Amþór Garöarsson fuglafræöing,
Sverrir Scheving Thorsteinsson,
jarðfræðing og skotveiðimann, og
Sveinbjöm Benteinsson, bónda að
Draghálsi.
„Það má ekki búast við mikilli
breytingu og þá er miöaö við síðustu
ár, fer mikið eftir veðri og snjólagi,”
sagði Amþór Garðarsson er við
spurðum um væntanlega rjúpnaver-
tíð. „Það er gott snjólag fyrir hana
um fjöll og hálendi. Rjúpan hefur
góöa haga og ég á ekki von á neinum
uppgripum. En þetta getur breyst á
stuttum tíma ef veöurfar breytist.”
„Jú, við heyrum sögur af rjúpum
og þá frá smalamönnum sem segjast
hafa séð töluvert af henni. Bændur
tala um að rjúpur hafi sést mikiö og
þá víða um landið,” sagði Sverrir
Scheving Thorsteinsson. „Menn
segja þetta góðri veðráttu að þakka,
mildu og kyrru veöri, það hjálpai
mikiðtil.”
— Hafiö þið fengið fregnir af viss-
um stöðum?
DV-mynd G. Bender.
VEIÐIVON
GunnarBender
„Já, það var óbein talning í
nágrenni Reykjavíkur og fyrir
austan fjall hafa menn sé mikiö af
rjúpu. Höfum fregnir af rjúpum í
Borgarfirði, Dalasýslu og Mývatns-
sveit og víðar. Það hefur oft verið
talað um mikið og svo veröur
kannski lítið úr, en nú gegnir öðru
máli því að mörg ár eru síðan menn
hafa séð eins mikið.”
— Á að fara til rjúpna næstu daga?
„Já, það er öruggt ef veðurfar
verður ekki þeim mun verra. Ætli ég
og yngri strákurinn minn kikjum ekki
upp í Grafning eða Hengil, það þýðir
líklega ekki að fara í Bláfjöll, það
verða svo margir þar.”
— Svo þið eru bjartsýnir?
„Já, ef taka má mark á því sem
maður hefur heyrt og menn hafa tal-
aðumsínámilli.”
„Ég hef verið að smala og ekki séð
neina rjúpu, maður hefur yfirleitt
alltaf séð eitthvað en ekkert núna.
Rjúpurnar eru liklega bara svona
ofarlega ennþá,” sagöi Sveinbjörn
Beinteinsson er viö spurðum um
rjúpur í næsta nágrenni við Drag-
háls.
— Á ekki að skreppa til rjúpna,
Sveinbjöm?
„Jú, ætli maöur kíki ekki einhvern
daginn þegar vel viörar, búiö að vera
gott veður, aðeins rigning núna. Ég
hef ailtaf farið til rjúpna síðan ég var
strákur, fer upp á Skarðsheiði og
stundum austur á Botnsheiði. ’ ’
G.Bender
„Sá sem fær 70 rjúpur þekkir fjöllin”
— segir Þórður Halldórsson frá Dagverðará
Þórður Halldórsson frá Dag-
verðará á Snæfellsnesi er maöurinn
sem fiskar renni hann færi, miði
hann á rjúpu eða annaö kvikt hæfir
hann. Einn af hressari skyttum
þessa lands en hann hefur oft farið til
rjúpna og skotið fjölda af þeim, kann
því margar rjúpnasögur. Við slógum
á þráðinn til hans í tilefni þess að
rjúpnaveiðin er að byrja.
— A aö fara til rjúpna núna,
Þóröur?
„Eg hef stundum farið til rjúpna
héma fyrir norðan og mann munar
ekki um það þótt maður verði áttræð-
ur núna í nóvember. Maður gæti náð
í 10 rjúpur, ekki meira,”
— Hvers vegna ekki meira?
„Það er allt í lagi að skjóta en það
má ekki ganga nærri neinum stofni. ’ ’
— Finnst þér ekki synd að skjóta
rjúpur?
„Nei, mér finnst meiri synd að
drepa kálf.”
— Fer rjúpunni fjölgandi eða
fækkandi?
„Ég hef enga trú að þetta sé nein
stórfjölgun eins og sumir skotveiði-
menn hafa sagt, rjúpunum fjölgar
svona hægt og sígandi. Eg held að
það verði að fá skyttumar, sem eru
Þórður Halldórsson frá Dag-
verðará. DV-mynd G. Bender.
vanar og mikið í þessu, til að segja
um hvort það verði fjölgun en ekki
skrifstofumenn.”
— Er þér eitthvað sérstaklega
eftirminnilegt frá fyrri árum?
„Já, það gerðist margt og ég man
eftir tveimur köllum á Snæfellsnesi
sem snöruðu 1000—1300 rjúpur og þá
var rjúpan spök, þetta var útflutn-
ingsvara. Fyrir frostaveturinn mikla
1918 var mikið af rjúpu, hún var í
þúsundatali þar sem lyng var. Þá
féll hún svo að það sást ekki rjúpa á
eftir. Síðan hefur rjúpan aldrei náð
sér, ég hef aldrei séð þessar lægðir
og annað. Sá sem fær 70 rjúpur þekk-
ir fjöllin og veit hvernig á að haga
sérviðhana.” G.Bender.
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor afhendir Guðjóni Frið-
rikssyni 25 þúsund króna verðlaun
úr Móðurmálssjóði á föstudag.
DV-mynd: ÞK
Móðurmálssjóður:
Guðjón Frið-
riksson fékk
verðlaunin
Guöjón Friðriksson, blaðamaður á
Þjóðviljanum, hlaut á föstudag verð-
laun úr Móðurmálssjóði — Minningar-
sjóði Björns Jónssonar, fyrrum rit-
stjóra, alþingismanns og ráðherra.
Guðjón hlaut verðlaunin fyrir „góðan
stíl og ljóðrænar mannlífsmyndir” í
skrifum sínum á undanförnum árum.
Móöurmálssjóður var stofnaður
árið 1943 til að verðlauna mann er
hefur blaðamennsku að aðalstarfi,, og
hefur að dómi sjóðsstjómarinnar
undanfarin ár ritað svo góðan stíl og
vandað íslenskt mál, að sérstakrar
viðurkenningar sé vert” eins og segir í
skipulagsskrá sjóðsins.
Áður hafa niu íslenskir blaðamenn
hlotið styrk úr Móðurmálssjóði. hhei.
Morötilraunin í Osló:
Neitar enn
að ræða við
lögregluna
Islendingurinn, sem nú situr í
gæsluvarðhaldi í Osló og ákærður
hefur verið fyrir morðtilraun á lög-
reglumanni þar í borg, neitar enn að
tala í yfirheyrslum. Hann hefur hins
vegar kært gæsluvarðhaldsúrskurð-
inn.
Lögreglan í Osló sagði í morgun að
ekkert nýtt hefði komið fram í máli
þessa manns. Líklegt væri að á næstu
dögum yrði maðurinn sendur í geð-
rannsókn.
APH
j dag mælir Pagfarl________í dag mælir Dagfari______ídagmælir Dagfari
Malagafanginn á heimavelli
t fyrravetur bárust þær fréttir
hingað til lands að ungur islendingur
hefði verið handtekinn suður á Spáni,
nánar tiltekið á Malaga, og þar hefði
hann mátt dúsa í fangelsi mánuðum
saman upp á vatn og brauð. Þessar
fréttir fengu mjög á landann sem er
góðhjartaður og miskunnsamur og
má ekki aumur sjá á nokkrum
manni. Áður en varði var hafist
handa um almenna fjársöfnun fyrir
Malagafangann og gekk maður und-
ir manns hönd að leysa hann úr
haldi.
Ekki dró það úr vorkunnsemi ts-
lendinga að við og við bárust bréf frá
fanganum í prísundlnni, þar sem
hann lýsti á dramatískan hátt hörm-
ungum sfnum og aumkunarverðri
vistinni Innan fangelsismúranna, og
bjuggust menn við þvi á hverrl
stundu að tilkynning bærist um
dauða fangans vegna vosbúðar og
pyndinga spánskra fangelsisyfir-
valda.
Eftir margra mánaða harðræði og
elnangrun barst sú gleðifregn til ts-
lands að fanginn væri loks laus og
var honum jafnskjótt sendur farmiði
þar sem fanglnn var boðinn velkom-
innhelm.
1 öUu þvi irafári, sem yfir gekk til
að forða þessum veslings einstæðingi
og saklausa fóraarlambi úr höndum
spánskra illmenna, láðist alveg að
geta þess hvers vegna manninum
hafði verið stungið inn. Helst var þó
að skilja að meintur glæpur hans
hefði verið sá, að hafa verið gripinn i
misgáningi fyrir refsibrot, sem ein-
hver annar hefði framið.
Aldrel hefur almennilega verið
upplýst hvað endanlega olli þvi að
fanginn slapp úr prísundinni. t Helg-
arpóstinum í síðustu viku er hins
vegar haft við þennan fanga viðhafn-
arviðtal, opinskátt og hreinskilið,
eins og nú tíðkast, og þar kemur
fram að það var enginn annar en
sjálfur utanrikisráðherra sem gekk í
málið í tilefni af helmsókn forseta ts-
lands til Spánar. Má af þessu sjá að
Malagafanginn hefur verið látinn
laus í skiptum fyrir forsetann og
diplomatiskan frið milli Spánar og
tslands. Af þessu er ljóst að Malaga-
fanglnn er og hefur verið þungavigt-
armaður í pólltikinni og ekki nema
von að vlð hann séu birt viðhafnar-
viðtöl eftir helmkomuna.
Það láðist aftur á móti að taka það
fram i þessu sama viðtali að Malaga-
fanginn hefur gert það gott eftir að
hann kom heim. Munu fáir menn hér
á landi hafa getið sér jafngott orð hjá
lögreglunni í Reykjavík sem þessi
viðfrægi og stórpólitíski Malaga-
fangi þvi varla hefur það innbrot ver-
ið framið hér á höfuðborgarsvæðinu
að slóðina mætti ekki rekja til þessa
sama manns. Um það leytl, sem við-
talið er tekið, mun kappinn hafa setið
í Síðumúlanum fyrir margföld inn-
brot og aðra smáglæpi sem hann tel-
ur óþarfa að rekja i viðtölum við f jöl-
mlðla.
Sýnir það vel muninn á spönskum
fangelsum og islenskum að meðan
hann þarf að smygla út bréfum úr
prísund sinni á Spáni býður hann
blaðamönnum til viðtala hér í Siðu-
múlanum.
I viðtalinu kemur fram að fangels-
isvistin hafi ekki verið jafnslæm á
Spáni eins og af er látið því yfir fang-
elsismúrana rigndi yflr hann og
samfangana margfdldum skömmtum
af hvers kyns flkniefnum sem héldu
bæði honum og öðrum fangelsislim-
um við efnið. Er helst að skilja að
það hafi verið óþarfa afskiptasemi
hjá íslenska utanríkisráðherranum
að skipta á sér og forsetanum og
hrekja sig úr þessu ókeypis gósen-
landi f iknief nanna.
Malagafanginn heldur því statt og
stoðugt fram að hann sé saklaus af
ákærum á hendur sér fyrir þjófnað á
Spáni. Sú afneitun er afar trúverðug
enda varla við þvi að búast að mað-
ur, sem lætur greipar sópa um ís-
lensk heimili, nenni að vera að stela
einhverju smáræði af bláfátækum
Spánverjum. Sannleikurinn er lika
sá að menn fá ekki blaðaviðtöl við sig
á forsíðum nema þeir steli af tslend-
ingum á heimavelli.
Dagfari.