Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR 284. TBL.-75. og 11. ÁRG.- MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1985. Stefán Árnason kom aö lokuðum dyrum með 412 milljóna króna tilboð í Hafskipseignimar: „BÓIÐ AÐ ÁKVEÐA AÐ EIMSKIP FÁIÞETTA ” Þrátt fyrir að Sefán Árnason, forstjóri í Svíþjóð, sé tilbúinn að bjóða 412 milljónir í eigur Hafskips ef hann fœr frest til að láta mats- menn kanna þessar eigur verður honum ekki gefinn kostur á að kaupa. Stefán ræddi bæði við skiptaráð- anda og lögfræðing Otvegsbank- ans. Hann kom að lokuðum dyrum. „ Það er greinilegt að búið er að ákveða að Eimskip fái þetta. Ég talaði við lögfræðing Útvegsbank- ans og hann sagði að þetta væri flókið mál og búið að ákveða að Eimskip fengi þessar eigur. Þó að i boði væri hærra tilboð væri ekki hægt að fresta þessu. Ég sé því ekki að ég geti gert meira í þessu máli, sagði Stefán í viðtali við DV. Ragnar Hall skiptaráðandi sagði að það yrði tekið á móti öllum til- boðum. Hins vegar yrði að vera samkomulag um það við Otvegs- bankann þvi hann ætti stærstu veð í eignum Hafskips. Hann hefði því vísað Stefáni til fulltrúa bankans. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, sagði að líklega yrði ekki skrifað undir kaupsamninga í dag. Tilboðsfresturinn átti að renna út um hádegið í dag. Líklegt væri að Eimskip færi fram á tveggja daga frest til að skrifa undir. Verið væri að kanna lausa enda málsins. Hann sagði jafnframt að það væri fjarri lagi að Eimskip væri að kaupa skip Hafskips á brotajárnsverði. Menn þekktu markaðsverð þessara skipa Og það væri ekki ágreiningur um verðið á milli Eimskips og Otvegs- bankans. APH Kennarar úr BSRB? 75% kjör- sókn — atkvæði talin á laugardag „Ég reikna með að kjörsókn verði þetta um 75%. Nú þegar hafa kjör- gögn komið frá 69% þátttakenda í atkvæðagreiðslunni," sagði Hörður Zóphaníasson, formaður yfirkjör- stjórnar, þegar við spurðum hann um þátttöku í atkvæðagreiðslu kennara um úrsögn úr BSRB. „Kosið var í gær og fyrradag. Það verður ekki byrjað að telja atkvæðin fyrr en þau eru öll komin í okkar hendur. Ef veðurfarið verður áfram eins og það er nú reikna ég fastlega með að talning geti farið fram á laugardaginn," sagði Hörður. - sos Unnið að flokkun atkvæða kennara. DV-mynd: GVA. dagar tiljóla Umræðumarum Hafskip og Útvegsbankann - sjá bis. 2 og 26 Verkfallhjá UNESCO - sjá bis. 9 Tippað á tólf - sjá bls. 4 36 pmsenthækkun íheimilisbók- haldiDV — sjábls.7 ArnarflugselurBoeingþotu tilað bæta lausafjárstöðuna - sjá bis. 5 ÍBK vannupp tuttugustiga forskotÍR -sjábls. 16-17 Bókalisti DV1985: Kjæmested átoppnum —sjábls.2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.