Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1985, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1985, Blaðsíða 25
DV. MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985. 25 Peningamarkaður Innlári með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir em verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatrygginguqi. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hveija þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- fryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærriávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverjú 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði 25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6 mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 34,1%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reynist hún betri. Vextir færast tvisvar á ári. Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hasstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaða \ verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir spariQár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs lslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og .. 100 þúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfín eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum.Lánin eru til 31 árs. I.án til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lifeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin átig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð ög með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 4- 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eflir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 1,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í desember 1985 er 1337 stig en var 1301 stig í nóvember. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985 er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3392 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 .10.12.1985 INNLÁNMEÐSÉRKJÖRUM p SJÁSÉRLISTA if 11 X -IB AtiyAi bankh 1! 1111 Iflimi INNLÁN ÚVERÐTRYGGD SPARISJÓÐSBÆKU R Úbundin innstæða 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán.uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25,0 6 mán.uppsógn 31.0 33.4 30.0 28.0 28.0 30.0 29.0 31.0 28.0 12mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 32.0 SPARNAÐUR- LÁNSRtTTURsParað3-5mán. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 INNLÁNSSKÍRTEINI Sp. 6mán.ogm. Til 6 mánaöa 29.0 28.0 30.0 28.0 26.0 23.0 29.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁNVERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 6 mán.uppsögn 2.0 3.5 1.5 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 3.0 2.0 3.5 1.0 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLAN úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34.0 2) kge 34.0 koe 32.5 kge kge kge 34.0 almennskuloabrEf 32.03 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 vidskiptaskuldabrEf 35.02 kge 35.0 kB. 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 ÚTLÁNVERÐTRYGGÐ skuldabrEf AA21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL ERANILEIÐSLÚ SJÁNEOANMAlSI) ifuaii iu uuituuiuiusiramjeiusiu eru a Zö,07o voXLUm. vegna uuiuuungs, i ouiv y,oy0, í BandaríkjadoUurum 9,5%, í sterUngspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Sandkorn Sandkorn Fæstir vilja fá kartöflur í skóinn, jafnvel þótt þær séu franskar. Ekki franskar! Nú líður að jólum og að því að litlu borgararnir fái gott í skóinn. Á einu heimili var verið að brýna það fyrir yngsta heimilismanninum að nú yrði hann að vera þægur því annars fengi hann ekki gott í skóinn en í stað þess fengi hann kart- öflu i skóinn þegar hann væri óþægur. Sá litli vildi ekki una þessu og var þá eldri bróðir hans fenginn til vitnis um að hann hefði fengið kart- öflu í skóinn þegar hann var óþægur. Að þessum upplýsingum fengnum þagði sá litli um stund en sagði síðan með þungri áherslu: Ég vil ekki fá franskar kartöflur í skó- inn minn! Ljósamergð Nýlega var tekið í notkun hús eitt mikið í Öræfum. Er það eins konar fjölnota- hús. Þar er saman komið undir einu þaki: skóli, samkomuhús, íþróttahús, bókasafn, heilsugæslustöð og guðveithvað fleira. Ekki er það nú ætlunin að fara að gera úttekt á byggingu þessari. Hitt þyk- ir í frásögur færandi, sem glöggskyggnir blaðamenn á Eystrahorni hafa upplýst, að ljósin í samkomusal hússins hafi átt að vera miklu fleiri en þau eru nú. Upphaflega hafi þau nefni- lega útt að vera nákvæm- lega jafnmörg og íbúar hreppsins. En svo fór þó að ljósunum var fækkað af ókunnum ástæðum. Við talningu á þeim kom í ljós að nú voru þau nákvæmlega jafnmörg og konurnar í Öræfunum! Þykir þetta skemmtileg til- viljun og er það mál manna að kvenpeningur lýsi upp þetta nýja hús. Skósmiðurinn og þjófamir Flestir muna eftir þjófa- flokkunum sem gengu ljós- um logum í Reykjavik og nágrenni síðastliðið sumar og í haust. Var fólk farið að hafa uppi alls konar varúðarráðstafanir, ef það þurfti að bregða sér frá dagstund eða lengur, til að veija hýbýli sín fyrir þjóf- unum. Við heyrðum til að mynda af skósmið einum ágætum sem fékk það hlut- verk að gæta húss ná- granna síns. Nágranninn bjó hinum megin við göt- una. Þurfti hann í ferðalag og bað því skósmiðinn að lita nú eftir húsi sínu á meðan. Skósmiðurinn hóf eftir- litsstörf um leið og ná- granninn var farinn. Gætti hann hússins af kostgæfni, enda skyldi enginn þjófur þar inn fyrir dyr. Svo var það eina nóttina að skósmiðurinn hrökk upp við vélarhljóð á götunni. Hann sentist fram úr og sá að bíll hafði stoppað við hús nágrannans. Út úr honum stigu nokkrir ungir menn, allir með vasaljós, og fóru að sniglast í kringum húsið. Skósmiðurinn þurfti nú ekki frekar vitnanna við en hringdi i lögregluna. Innan stundar geystust þrir lag- anna verðir í öllum skrúða inn götuna. Viku þeir sér strax að ungu mönnunum og spurðu byrstir hvaða skýringu þeir gæfu á þessu næturgöltri. Mönnunum vafðist tunga um tönn. En rétt þegar lögreglan var að komast á þá skoðun að þeir væru sannarlega tukthús- tækir datt upp úr einum næturgestanna að hann væri sonur húseigandans. Hann hefði bara ætlað að leita að únamöðkum í garð- inum hjá pabba! s Lögreglan hefur í nógu að snúast. Ólafur Þ. Þórðarson. Snjóflóðavam- ir Við skulum ekki láta okkur detta í hug að við séum án æðri handleiðslu meðan blessaðir þingmenn- irnir okkar standa upprétt- ir. Það þarf ekki annað en að minnast nýlegrar heim- sóknar þingmanna Vest- fjarðakjördæmis til Isa- Qarðar til að öðlast full- vissu um þetta. En í téðri heimsókn sátu þingmennirnir sumsé fund bæjarstjórnar. Bar þar á góma snjóflóðavarnir í kaupstaðnum. Kom þá Ólafur Þ. Þórðarson þing- maður frarn með þá frómu tillögu að barrtrjám yrði plantað i þessu skyni i landi kaupstaðarins. Nú er það svo að barrttjá vaxa afar hægt. Það myndu því líða 50-60 ár þar til græðlingar Ólafs yrðu þess umkomnir að stöðva með- alsnjóflóð. Er hætt við að einhveijir yrðu orðnir lang- eygir eftir vörnunum fyrir þanntíma. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Jólatilboð! +++ 20% 2 afsláttur af öllum kuldaskóm næstu daga, Skóverslun Þórðar Péturssonar miðvikudag og fimmtudag. Laugavegi 95 Sími 13570. Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181 JOldtllbod• Nú styttist tiljóla,því ekki aö sleppa þrifunum í ár og mála upp á nýtt. Viö veitum 15% afslátt af málningu í desember. Opið laugardag tilkl. 18 CTl BYGGINGAVÖBUR] BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 simi 28600 STÓRHÖFÐA simi 671100 RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.