Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Side 8
8
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Hæstaréttar-
dómariámóti
dauðarefsingu
Ellí Carlsdóttir, fréttaritari
DV í Boston:
William Brennan, hæstaréttar-
dómari, sagði fyrir skemmstu að
með dauðarefsingunni væri farið
ómanneskjulega með hina
dæmdu og þeir meðhöndlaðir
eins og dauðir hlutir, fyrst leikið
með þá og þeim síðan varpað í
úrganginn.
Hinn 79 ára gamli dómari gerði
þessa athugasemd í óvenjulega
harðri árás á dauðarefsingarlög-
in i erindi sem hann flutti í
Kaliforníuháskóla. „Hið sví-
virðilegasta morð leysir ekki
ríkið undan þeirri stjórnarskrár-
bundnu skyldu að virða manns-
lífið eða það sem mannleg virð-
ing heitir," sagði dómarinn.
Brennan dómari hefur verið
fyrir liinum frjálslyndari í hæsta-
rétti Bandaríkjanna en þeir hafa
verið í minnihluta.
Einvígihjá
Timmanog
Kasparov
Kasparov, hinn nýi heims-
meistari í skák, kom um helgina
til Hollands til þess að tefla þar
þessa viku sýningareinvígi við
Jan Timman, hollenska stór-
meistarann, sem er þriðji hæsti
skákmaður í heimi að ELO-stig-
um (2640). Munu þeir tefla sex
skáka einvígi.
Þetta eru fyrstu kappskákir
Kasparovs síðan hann vann
heimsmeistaratitilinn.
Timman á í byrjun næsta árs
að tefla við sovéska stórmeista-
rann Yusupov um réttinn til að
skora á heimsmeistarann að ári.
Áður á Karpov, sem tapaði titlin-
um til Kasparovs í nóvember,
rétt á tækifæri til þess að endur-
heimta heimsmeistaratitilinn
með öðru einvígi við Kasparov.
Villlátaákæra
Marcosforseta
Corazon Aquino, ekkja hins
myrta andófsleiðtoga, Benigno
Aquino, segist mundu láta hand-
taka Ferdinand Marcos, núver-
andi forseta Filippseyja, ef hún
sjálf næði kjöri í forsetakosning-
unum í febrúar næsta.
„Ég mundi láta ákæra hann,“
sagði hún og bætti síðan við:
„Kannski að það verði gert án
þess að ég þurfi að koma til.“
Hún hefur margítrekað lýst því
yfir að hún telji Marcos ábyrgan
fyrir morðinu á Aquino sem
skotinn var til bana í landgöngu-
stiga á flugvellinum í Manila
þegar hann var að koma heim
úr útlegð og sjúkrahúsvist í
Bandaríkjunum.
Táragas og svipur not-
aö á blakka í Durban
Óeirðalögregla í Suður-Afríku
dreifði í gær þúsundum blakkra
mótmælenda eftir fjöldafund þeirra
í hafnarborginni Durban.
Baráttusamtök blökkumanna í
Durban skipulögðu fundinn þar sem
krafist var að blökkumannaleið-
toganum Nelson Mandela yrði sleppt
úr haldi.
Heiðursgestir fundarins voru átta
leiðtogar Lýðræðisfylkingar blökku-
manna, UDF, er nýverið hafa verið
látnir lausir úr fangelsi eftir að sak-
sóknari féll frá ákærum á þá fyrir
meint landráð.
Eftir fundinn fóru fundarmenn með
hrópum um götur Durban, köstuðu
múrsteinum í bifreiðir og verslanir
hvítra og hrópuðu slagorð. Kalla
þurfti til liðsafla lögreglu er dreifa
varð fundarmönnum með svipum og
táragasi.
Hátíðisdagur hvítra
Hvítir Suður-Afríkumenn halda í
dag upp á afmæli frækins sigurs Búa
yfir stríðsmönnum Zulumanna árið
1838. Búist er við mótmælum blökku-
manna í tilefni dagsins og eru her
og lögregla í viðbragðsstöðu.
Götuóeirðir í hafnarborginni Dur-
ban hafa fram að þessu ekki veríð
eins alvarlegar og nú. Hvítir líta á
borgina sem sitt rótgróna yfirráða-
svæði og hafa fram að þessu ekki
liðið neinn óróa innan borgarmar-
kanna annan en þann er verið hefur
í hverfum blökkumanna umhverfis
Durban síðustu mánuði.
Jarðsprengja drepur sex
Jarðpsprengja drap í nótt sex
manns úr tveim fjölskyldum hvítra á
þjóðvegi skammt frá landamærunum
að Zimbabve.
Talsmaður hersins sagði að talið
væri að hér væri um að ræða eina
af jarðsprengjum þeim er liðsmenn
Afríska þjóðarráðsins komu fyrir á
hluta þjóðvegakerfisins við landa-
mærin að Zimbabve fyrir rúmum
þrem vikum.
Herflokkum hefur tekist að finna
meirihluta jarðsprengjanna en þrátt
fyrir það hafa þær valdið miklum
usla og ótta í landamærahéruðum.
Ein slík jarðsprengja drap blakkan
dráttarvélabílstjóra um síðustu
mánaðamót. Fórnarlömbin í gær eru
fyrsta hvíta fólkið er verður jarð-
sprengjunum að bráð.
Óeirðalögregla dreifði í gær þúsundum blakkra mótmælenda í hafnar-
borginni Durban með svipum og táragasi. Mikil ólga er nú í Suður-
Afriku. í dag halda hvítir hátiðlega upp á frækinn sigur sinn yfir stríðs-
mönnum Zulumanna árið 1832.
Andrúmsloftið
mengar Norðursjó
Nýjar rannsóknir sýna að Norður-
sjórinn er alvarlega mengaður af
andrúmsloftinu jafnt sem iðnaðarúr-
gangi sem berst með vatnsföllum til
sjávar eftir því sem vestur-þýskir
vísindamenn segja.
Walfried Michaelis prófessor sagði
á blaðamannafundi í Bonn að vís-
indamenn hefðu fært sönnur á að
30-50% þungra málma, sem finna
mætti í hinum vestur-þýska hluta
Norðursjávar, hefðu borist með and-
rúmsloftinu. - Áður höfðu allir geng-
ið út frá því sem gefnu að mengunin
væri nær einvörðungu komin með
framburði vatnsfalla.
Ekki sagði prófessorinn neinar
sönnur vera fyrir því að þessi meng-
un væri aðallega komin frá Bretlandi
þar sem kolamengun andrúmslofts-
ins þykir hafa valdið miklu um hinn
„súra“ dauða skóganna í Evrópu.
Sagði hann að blýið virtist aðallega
komið frá útblæstrí bifreiða í Ham-
borgog Bremen.
Vestur-þýskir vísindamenn
telja að ekki megi aðeins kenna
menguðum árframburði um
mengun Norðursjávar heldur
eigi mengaðir loftstraumar í
andrúmsloftinu þar einnig
verulegan hlut að máli.
Erfiðisvinna getur valdið
hjartameini og krabba
Ellí Carlsdóttir, fréttaritari DV i
Boston:
Erfiðisvinnumönnum er miklu
hættara við að deyja úr hjartasjúk-
dómum og krabbameini heldur en
kyrrsetumönnum, samkvæmt niður-
stöðum rannsóknar, sem nýlega var
opinberuð. Rannsókn þessi stóð yfir
í 30 ár og tók til 2.292 karlmanna.
Ef frá voru taldar reykingar, of hár
blóðþrýstingur og kolesterol þá var
erfiðisvinna aðalvaldurinn að
hjartasjúkdómum samkvæmt þessari
rannsókn. - Af karlmönnum á milli
35 og 64 ára í erfiðisvinnu dóu 13,7
af hverjum þúsund úr hjartakvillum
eða krabbameini, en af kyrrsetu-
mönnum 8,5 af hverjum 1000.
Af mönnum í léttum erfiðisstörfum
dóu 10,1 af hverjum þúsund úr þess-
um sjúkdómúm og í meðalerfiðum
störfum dóu 11,1 af hverjum þúsund.
Það var læknadeild Bostonarhá-
skóla sem kynnti þessa rannsókn á
árlegu móti samtaka um heilbrigðis-
mál almennings.
Um leið komu fram niðurstöður
rannsóknar heilbrigðismiðstöðvar
Texasháskóla þar sem bar á því að
erfiðisvinnumenn nýttu sér illa heil-
brigðisfræðslu sem atvinnurekand-
inn bauð þeim upp á ókeypis. En
fengju þeir frí í vinnunni til þess að
notfæra sér hana þá gerðu þeir það
frekar sem aftur leiddi af sér bættari
heilbrigðisvenjur þeirra.
t HíCAmo.N motíc, mc.
t>jrwi r.
YFTACH KATZUft. 2ACH1NQY, JONATHAN :
: nrflvt 0 sw Os
Strákamtr
úr
„Heítv
tpskkv
0FTHEWOLF
Múmer sex er sú djaffaaía og iyndnaata
aiþeímöiium
MU.toxr*
VfMm u WlOAMCttií
ISt.F.NSKUR TEXTJ
FJORAR TOPPMYNDIR SFM ENGIN
ALVÖRULEIGA MÁ LÁTA SIG VANTA.
Pöntunarsími
91-17620.
Dreifing,
Sigluvík sf.
YFIR100 GENGU
í GILDRUNA
Á annað hundrað manns á flótta
undan réttvísinni gengu í gildru
lögreglunnar í Washington um
helgina og voru handteknir eftir
að hafa þegið boð í veislu sem yfir-
valdið efndi gagngert til í þeim
tilgangi að egna fyrir þá.
Yfir 3.000 manns, sem lögreglan
hefur leitað, voru sendir boðsmiðar
í fagnaðinn þar sem auk veislu-
fanga var boðið upp á ókeypis
aðgöngumiða að kappleik, sem
fyrir löngu er orðið uppselt á, og
eins möguleiki á að vinna í happ-
drætti miða og ferð til New Orleans
á úrslitaleik í ameríska fótboltan-
um.
Lögreglumenn brugðu sér í gervi
þjóna og þjónustumeyja og veittu
gestunum höfðinglegar móttökur.
Þegar ljóst var að ekki mundu fleiri
mæta til fagnaðarins bauð veislu-
stjórinn gestina velkomna og til-
kynnti þeim að þeir væru hand-
teknir.
Til veislunnar var boðað undir
fölsku flaggi sjónvarpsíþróttafrétta
og veisluboðin send í pósti á síð-
ustu kunnu heimilisföng þessa
fólks sem sumt var eftirlýst fyrir
alvarleg afbrot eins og fíkniefnaaf-
brot og líkamsárásir. - Tveir í hópi
hinna handteknu voru eftirlýstir
fyrir morð.