Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 9
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. Uttönd Uttönd Sovéskum Siberíuhreindýrum gefið á gaddinn. Tekist hefur að bjarga þúsundum hreindýra frá svelti með stórefiis fóðurgjöf auk þess sem heilu stofnarnir hafa verið fluttir til. Jaröbönn hjá hreindýrunum Þúsundir hreindýra í Síberíu geta orðið hungurdauðanum að bráð þvi að ísgljá þekur nú hreindýramosann i högum þeirra. Þessi jarðbönn varna þeim að krafsa sig í beitina. Reynt hefur verið að fljúga með fóður til þeirra og gefa út á gaddinn, en veður hefur hamlað þyrluflugi. Stórum hreinahjörðum hefur verið smalað burt af freðmýrunum og yfir á aðgengilegri haga, en 115.000 dýr eru enn talin vera í hættu. Venjulegast eru hreindýr mjög dugleg að bjarga sér og krafsa sig niður úr snjónum í mosann, en í s'íðasta mánuði gerði asahláku, svo að freðmýrarnar urðu auðar. Síðan fraus ofan í alla bleytuna og niður úr klakanum gátu þau ekki barið. Rússar telja að á þessum slóðum (vestan við Beringsund, sem skilur að Sovétríkin og Bandaríkin) séu venjulega nær 500.000 hreindýr. HUNGURVERKFALL HJÁ UNESCO Formaður starfsmannafélags Menntastofnunar Sameinuðu þjóð- anna (UNESCO) lauk á föstudag fjögurra daga hungurverkfalli sínu, þegar MBow framkvæmdastjóri UNESCO féllst á kröfurnar um stofnun samninganefndar starfsfólks og stofnunarinnar um fækkun starfs- liðs. Formaðurinn og sex aðrir starfs- menn höfðu fastað i anddyri aðal- stöðva stofnunarinnar í París til þess að fylgja þessum kröfum eftir. UNESCO hefur neyðst til þess að segja upp um 800 manns eftir að Bandaríkin og Bretland hafa dregið sig út úr stofnuninni. Þessi tvö aðild- arríki höfðu lagt til um 30% af ráð- stöfunarfé stofnunarinnar, en voru óánægð með starfsemi hennar, sem þau töldu pólitískt hlutdræga og bruðlsama. Um 2.300 manns starfa í aðalstöðv- um UNESCO í París. Nokkur hundr- uð þeirra lögðu niður vinnu í byrjun síðustu viku vegna uppsagnanna. Fólksflótti frá Austur-Þýskalandi til Vestur-Þýskalands: 20 ÞÚSUND FLYTJ- AST í ÁR Ketilbjörn Tryggvason, DV, Vest- ur-Berlín: Á ári hverju sækja þúsundir aust- ur-þýskra borgara um leyfi til að flytjast til Vestur-Þýskalands. Ná- kvæm tala um fjölda þessara beiðna er aldrei gefin upp hjá austur- þýskum yfirvöldum en sérfræðingar vestanmegin telja töluna langt yfir hundrað þúsund á ári. Flestir þessara umsækjenda kaupa sér einungis vandræði með þessari tilraun sinni til að komast til vest- ursins. Að sögn kunnugra kemur það oft fyrir að viðkomandi missi vinnu, eða lækki í launum, börn umsækj- enda fá ekki lengur inni á dagheimili og ættingjar fá jafnvel að kenna á hegningarharmi yfirvalda. Fæstir fá að flytjast úr landi og fer það reyndar nokkuð eftir atvinnu- greinum og þar með mikilvægi ein- staklingsins hvort hann fái að flytj- ast yfir hinn illræmda múr sem liggur milli þessara tveggja þýsku ríkja. Hingað til hefur Vestur-Þjóðverjar tekið á móti velflestum þessara flóttamanna og hafa jafnvel reynt að fá austur-þýsk yfirvöld til að hækka kvótann um leyfilegan fjölda þeirra er flytjast mega úr landi. Árið 1984 fengu um 40 þúsund manns að flytjast til vestursins, en fregnir herma að talan sé helmingi lægri þetta árið, eða um 20 þúsund manns. Til viðbótar við þennan fjölda kaupa vestur-þýsk yfirvöld árlega pólitíska fanga frá Austur-þýska- landi. Hafa Vestur-Þjóðverjar frá því múrinn var reistur 1963 borgað samtals 3,5 milljarða þýskra marka til þessara þarfa og með því keypt um 30 þúsund pólitíska fanga frjálsa. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson Islensk M og ensk “ KNATTSPYRNA Víðir Sigurösson ÍSLENSK KNATTSPYRNA 1985 íslensk knattspyrna er komin út, ítarlegri en nokkru sinni fyrr. í bókinni er að finna nákvæmar töflur um leiki, leikjafjölda og markaskor einstakra leikmanna auk 300 mynda. íslensk knattspyrna '85 er besta heimildarit um íslenska knattspyrnu sem völ er á. . . Verð kr. 1.488.- Þetta er 5. árbókin Saga Westham er komin út. Bókin fjallar í máli og myndum um Westham, sögu þess og sigra. Westham er eins og kunnugt er eitt frægasta knattspyrnulið Bretlands og í dag eitt af toppliðunum. Verð kr. 975.- If= OKHLAÐAN l X ± X JL JL X X . J ALLT A SAMA STAÐ! ÞVERHOLTI11. Síminn á öllum deildum 27022. ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.