Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Qupperneq 10
10 DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. Utiönd Utiönd Utiönd Utiönd Nordmenn áhyggjufullir vegna tíðra olíuslysa Öryggismál á norðlægum haf- svæðum, þar sem Norðmenn pumpa upp olíu og gasi fyrir millj- ónir á hverjum degi, eru nú mikið til umræðu í Noregi. Það er ljóst að auðæfin í jarðlög- unum undan Noregsströndum eru gífurleg og hafa mikla þýðingu fyrir framtíðarþróun norskra efna- hagsmála. Á skömmum tíma hefur Norð- mönnuiii tekist að byggja upp full- komið net olíuborpalla með ný- justu tækni sem völ er á. Og Norð- menn eru stoltir af hinni nýju stétt olíuathafnamanna. Tíð slys að undanförnu á vinnslu- svæðum olíunnar hafa þó skyggt á stoltið og fengið menn til að huga frekar að öryggiskröfum í iðnaðin- um. í október síðastliðnum sprakk borhola á einum oiíuborpalla norska ríkisolíufélagsins Statoil með þeim afleiðingum að einn maður fórst og 80 manna áhöfn borpallsins þurfti að yfirgefa vinnustað sinn í skyndi. Það slys nánast endurtók sig í síðasta mánuði er sprenging varð í borholu á Gullfaks-svæðinu þar sem unnið er að byggingu nýrra borpalla. Fyrrgreind óhöpp hafa leitt til þess að Statoil hefur látið gera umfangsmiklar kannanir á örygg- isbúnaði og sérstök rannsóknar- nefnd hefur verið skipuð til að endurmeta öryggisreglur. Óhöppin í október og nóvember eru ekki þau einu sem um ræðir. Frá því norski olíuiðnaðurinn sleit barnsskónum hefur slysatíðnin verið óvenjutíð. Versta slysið átti sér stað í marsmánuði árið 1983 er olíuborpallurinn Alexander Kiel- land sporðreistist og honum hvolf- di. I ICielland slysinu fórust alls 123 Háværar gagnrýnisraddir í kjölfar slysaöldunnar hafa gagnrýnisraddir hækkað. Gagn- rýni hefur einna mest verið áber- andi i röðum forystumanna í nor- skum verkalýðsfélögum. Telja þeir að öryggissjónarmið- um hafi verið fómað fyrir gróða- hagsmuni á olíusvæðunum. Skjót- fenginn gróði hafi ráðið stefnu norsku ríkisstjórnarinnar. Forystumenn ríkisolíufélagsins og stjórnvöld hafa auðvitað harð- lega neitað ásökunum verkalýðs- félaganna og telja gagnrýni þeirra í hæsta máta ósanngjarna. „Frá því við hófum olíuvinnslu okkar fyrir 16 árum höfum við komið á fullkomnasta öryggiskerfi á oliuborsvæðum sem til er í heim- inum,“ segir blaðafulltrúi Statoil, Haakon Lavik, og visar allri gagn- rýni á bug. Versta olíuslysið við Noregsstrendur átti sér stað í mars árið 1980 er olíuborpallurinn Alexander Kielland sporðreistist. í því slysi fórust 123 menn. Að sögn blaðafulltrúans eru engin þau ráð til er gersamlega útiloka slys á olíusvæðunum. Sprengislysin í október og nóvemb- er endurspegli aðeins tölfræðilega möguleika á slíkum slysum. „í þetta sinn var röðin einfaldlega komin að okkur,“ sagði Haakon Lavik. Það þykir staðfesta áhyggjur norsku ríkisstjórnarinnar af örygg- is- og mengunarmálum þegar bann var lagt við borunum Exxon og Shell fyrirtækjanna á borsvæðum norðan heimskautsbaugs á meðan heimskautsvetur stæði yfir. Yfir- leitt er talað um að heimskautsvet- urinn með öllu sínu skammdegi hefjist 15. nóvember og standi yfir í þrjá mánuði. Norsk yfirvöld skýrðu ákvörðun sína með því að segja að fyrirtækin hefðu ekki sýnt fram á að hafa yfir að ráða nægilega fullkomnum tæknibúnaði til að standast heim- skautsveturinn, auk þess sem ýmsu hefði verið ábótavant við aðbúnað starfsmanna á þessum norðlægu slóðum. Ibúar norðurhéraða óánægðir Ákvörðun norskra stjómvalda um bann við borunum á norður- svæðunum hefur verið harðlega gagnrýnd í Norður-Noregi. Olíufélögunum hafði verið veitt leyfi til borana með nokkrum fyrir- vara og höfðu lagt í mikinn undir- búning. Ibúar dreifbýlissvæða á norðurslóðum hugðu einnig gott til glóðarinnar og kunnu vel að meta aukin umsvif hinna erlendu olíufé- laga er glæddi annars fábreytt atvinnulíf. Shell olíufélagið hefur einnig gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að hafa tilkynnt um bannið með svo litlum fyrirvara og segir ák- vörðunina hafa valdið félaginu miklu fjárhagslegu tjóni. Hefur olíufélagið krafist þess að ákvörð- uninni verði breytt. Formælandi Exxon olíufélagsins í Noregi lét hafa eftir sér í blaða- viðtali við norskt dagblað að ák- vörðunin um allsherjarbannið væri hneykslanleg. „Ef við hefðum vitað um að banna ætti alla borun eftir 15. nóvember hefðum við aldrei lagt í þá gífurlegu fjárfestingu er við lögðum í. Við sendum borpalla upp eftir og það eitt að loka fyrir olíustreymið þarna norður frá í þessa þrjá mánuði mun kosta okk- ur tug milljóna norskra króna.“ Þúsund og ein nótt á tuttugustu öldinni Ásgeir Eggertsson, fréttaritari DV íMunchen: Hver hefði haldið að ævintýra- höllin, sem listamaðurinn Hund- ertwasser byggði í Vin, sé ætluð illa stæðu fólki í samfélaginu. Samt er raunin sú. 50 íbúðir eru í húsinu og umsækjendur um þær eru 150. Þolir ekki hversdagslega byggingarlist Hvernig fékk Fiedensreich Hundertwasser þá flugu í höfuðið að byggja þetta hús og hafa það svona útlítandi? - Hundertwasser segir ómannúðleg hús vera erkió- vini sína. Hann berst gegn einhæfri og innihaldslausri byggingarlist sem hann segir tröllríða manna- byggðum. Ekki notar hann fallegri orð um arkitektana. Hundertwasser fékk svo tækifæri til að sýna hvað í honum bjó þegar Bruno Kreisky, fyrrum kanslari Austurríkis, ruddi honum braut í gegnum skriffinnskuskóginn í Vínarborg. Biðu margir fullir eftir- væntingar þess að sjá hvað kæmi út úr því þegar Hundertwasser og Josef Krawina legðu saman. Kraw- í anda „náttúruhús" með orkuspar- andi miðstöðvarkerfi, gróðurmold- arsalernum og fleiru. Ekki átti að nota nein gerviefni í þá byggingu. En kostnaðaráætlun varð viða- meiri en verjanlegt var. Umhverfis- verndarsjónarmiðin urðu því að víkja fyrir sparnaðarsjónarmiðum. - Þar með sagði Krawina bless. Hundertwasser stóð einn eftir að byggingu hússins. Ekkerteins Dag hvern var hann á þeytingi á milli handverksmannanna. Þeir urðu fljótt örvæntingu nær við verk sín. Engin tvö skúmaskot voru eins útlítandi. Hundertwasser hvatti þá til þess að láta eigin andagift ráða við smíðina. Allir máttu iðnaðarmennirnir leggja flísar í hvers konar hlykkjum og með hvaða útflúri sem þá fýsti. Listamaðurinn lagði til að flísar væru settar í hverja þá glufu sem þeim varð komið við. Beinar línur eða rétt hom eru þyrnir í augum Hundertwassers. I öllum herbergjum er fyllt upp í öll horn, allir kantar gerðir ávalir. Ef meistarinn rak augun í einhvern Listamaðurinn, Friedensreich Hundertwasser, uppi á einum af þrettán bakgörðum sem eru á ævintýrahúsinu. ina starfaði í upphafi að skipulagn- ingu hússins með listamanninum. „Náttúruhús“ Krawina vildi strax byggja annað og meira en ævintýrahöll. Hann sá Hundertwasser einsetti sér að byggja hús i anda „Þúsund og einnar nætur“. Það stendur á horninu á Kegel- og Löwengasse, ef einhver hefur áhuga á að koma og skoða. flöt, sem honum fannst of hvers- dagslegur, lét hann slaghamarinn ríða og linnti ekki fyrr en flöturinn hafði fengið sitt „persónulega“ útlit. Þetta mósaíkgólf, sem múr- arinn er að leggja síðustu hönd á, er dæmigert fyrir þá frjálsu aðferð sem notuð var. Enginn neyddur Gagnrýnendur þessa framtaks segja að fólki eigi eftir að líða illa í umhverfi þar sem það fái ekki að ráða útliti íbúðanna sjálft. Hund- ertwasser færir þau rök fram að enginn verði neyddur til að búa í húsinu. Einnig að hver og einn geti breytt íbúðinni að eigin smekk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.