Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Side 12
12 DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: FIÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÚNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: RÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglysingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Genginu haldið uppi Ekki er búizt við gengisfellingu alveg á næstunni. Ríkisstjórn og Seðlabanki hafa kosið að halda genginu uppi. Gengisfellingar er þörf og hefur verið í nokkra mánuði. Gengi krónunnar er fallið í raun. En ríkis- stjórnin hikar við að láta skráð gengi falla. Því veldur meðal annars, að kjarasamningar verða lausir eftir nokkra daga. Ríkisstjórninni þykir ekki fýsilegur kostur að fella gengið í þann mund, sem kjarasamningar eru lausir og farið verður að semja um kaup og kjör. Almenningur fagnar ekki gengisfellingu. Hún þýðir verðhækkanir, aukin verðbólga. Hún þýðir, að verð á innfluttum vörum hækkar, nokkuð sem menn gleðjast ekki yfir í jólamánuðinum. En ekki þýðir til lengdar að halda gengi krónunnar hærra en það er í raun. Staða fiskvinnslunnar sýnir, að hún hefur ekki þolað lækkun gengis Bandaríkjadollars ofan á fiskverðshækkun til útgerðar. Staðan hefur því um nokkurt skeið verið sú, að fiskvinnslan hefur verið rekin með tapi. Tapið er nú sagt 8-9 prósent á frystingu. Einnig er tap á söltun, bæði saltfiski og saltsíld. Frystihúsin hafa yfirleitt selt í dollurum. Þegar Bandaríkjadollar hefur fallið, þýðir það auðvitað, að hagur frystihúsanna hefur versnað að sama skapi. Þetta hafa ríkisstjórn og Seðlabanki ekki haft að leiðarljósi. Þvert á móti hefur gengi krónunnar verið haldið uppi með óeðlilegum hætti. Annað hefur stýrt afstöðu ríkisstjórnarinnar, það er óttinn við, að eitthvað aukin verðbólga mundi hleypa öllu í bál og brand í kjarasamningunum. Staðan í fiskvinnslu og útgerð hefur nokkuð skánað við sölu á ferskfiski, sem hefur gefið góðan arð. Staða útgerðar hefur oft verið verri. Bátaútgerð hefur gengið þokkalega. Auðvitað ganga hin margfrægu skuldaskip illa sem fyrr. Fyrst og fremst mæðir á frystingu. Frystihúsamenn segjast eiga upphæðir inni hjá við- skiptabönkunum, sem hafi grætt á mismun gengis doll- ars og annarra mynta. Því hafna bankamenn. Hinir síðarnefndu segja, að viðskiptabankar fiskvinnslunnar hafi ekki hagnazt á þessu misgengi. Bankarnir hafa hvorki heimildir né getu til að verða við beiðni fisk- vinnslunnar um 300-400 milljón króna greiðslur til vinnslunnar. Auðvitað er gengisfelling krónunnar eina lausnin í þessari stöðu. Við hörmum gengisfellingar. En hvað annað er unnt að gera, meðan verðbólga er hér á landi margfalt meiri en í viðskiptalöndum okkar ár eftir ár? Auðvitað er gengisfelling aðeins ein afleið- inga þessa mismunar á verðbólgustigi. Kostnaður inn- anlands vex hraðar en verðlag á útflutningsvörum okkar. Því stoðar ekki að segja, að gengisfelling sé eitt gömlu úrræðanna, meðan önnur betri ráð fyrirfinnast ekki. Þegar gengi krónunnar er haldið of háu í lengri tíma, verður til útsala á erlendum gjaldeyri. Meira er flutt inn '*n skyldi, því að innfluttar vörur verða þeim mun ódý'ari. Viðskiptahallinn vex. Erlend skuldasöfnun vex Þetta er ekki heilbrigð stj órnarstefna. Það er eðlilegt, að ríkisstjórnin óttist næstu kjara- samninga. Þeir gætu enn einu sinni kollvarpað stjórnar- stefnunni eins og varð fyrir rúmu ári. En slíka stjórnarstefnu er ekki unnt að samþykkja. Það er ekki fært að leggja blessun yfir þá stefnu, sem hefur gjaldeyri á útsölu. Haukur Helgason. Siðblinda Það sem einna helst virðist há mönnum í allri umíjöllun þeirra um það mál sem'hvað efst hefur verið á baugi í fjölmiðlum um all- langa hríð og nefnt hefur verið Hafskipsmálið, er að þetta mál sem slíkt er ætíð talið vera mál ríkisins. Með því að þetta sé mál ríkisins þá er það orðið vert umfjöllunar inrian veggja Alþingis. Alþingi hefur að sjálfsögðu með það að gera ef slælega er á málum haldið í einhverju þeirra fyrirtækja sem rekin eru af ríkinu. Það kemur til vegna þess að fjárveitingavaldið er í höndum Alþingis og þar af leiðir að eftirlit þarf að vera með því af þess hálfu, að reksturinn sé í lagi. En Hafskip er ekki ríkisfyrirtæki: Það kemur ekki Alþingi né ríkis- kassanum við þó að slík fyrirtæki úti í bæ séu séu sett á stofn og/eða sett á hausinn. Slíkt er alfarið mál þeirra manna sem standa að verkn- aðinum. En þegar svo er komið að gjaldþrot sh'ks fyrirtækis er farið að skipta verulegu máli fyrir buddu hins almenna launamanns í landinu, vegna þess að ríkissjóður hefur í gegnum lán frá Utvegs- bankanum til þess verið gerður ábyrgur fyrir skuldunum, þá er málið að sjálfsögðu orðið vert þess að Alþingi láti það til sín taka. Það er vegna þess að Útvegsbankinn er ríkisfyrirtæki, þjóðbanki. Kjallarinn KRISTÍN S. KVARAN ÞINGMAÐUR FYRIR BANDALAG JAFNAÐARMANNA stað í framtíðinni. Alþingi þarf einnig að takast á við þann vanda sem snýr að þjóðinni vegna þess máls. Og Alþingi verður að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar innan ríkisfyrirtækja verði svo miklir að menn missi tök á kring- umstæðum og hleypi af stað at- Útvegsbankinn stóreykur viðskipti sín við Hafskip. Bankinn þar sem Albert er formaður bankaráðs stó- reykur viðskipti sín við fyrirtækið sem er að hluta til eign formanns bankaráðsins. Þessi tvö hlutverk/ störf fara ekki saman - það er pólitísk siðblinda að láta sér detta i hug að gegna þeim báðum sam- tímis. Ríkissaksóknari Það er hins vegar ekki nokkur ástæða til þess að ætla að Albert Guðmundsson verði sekur fundinn um lögbrot af einu eða neinu tagi. Þess vegna biður maðurinn að sjálfsögðu um rannsókn á þeim ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum varðandi afskipti hans af þessum tveim störf- um. Hann biður um að athugað verði, hvort hann hafi gert nokkuð það sem talist geti sakhæft. Ef ríkissaksóknari tekur málið til rannsóknar - telur það rannsókn- arhæft (sem ég efast stórlega um) þá þykist ég þess fullviss að Albert Guðmundsson verður á engan hátt sekur fundinn um að hafa brotið lög. Þvert á móti, hefur hann alveg örugglega gætt þess vel og vand- lega að halda sig réttum megin við þau. Það er sáraeinfalt. Það sem er hins vegar langt þvi frá að vera sáraeinfalt er að hér er ekki um „Þess vegna er þetta mál miklu almenning og Alþingi." heldur Útvegsbankamál, en Hafskipsmál, hvað snýr að og varðar Útvegsbankamálið Það er því, í þessu tilfelli, hlutur Útvegsbankans að þessu máli sem er áhugaverður og varðar Alþingi. Þess vegna er þetta mál miklu heldur Utvegsbankamál, en Haf- skipsmál, hvað snýr að og varðar almenning og Alþingi. Það getur vel reynst koma í dagsljósið að ekki hafi verið með öllu rétt að málum staðið hvað varðar rekstur Hafskips. Ef svo reynist vera, að aflokinni rannsókn, að ekki sé allt með felldii þá er það vitaskuld mál þess tíma að bregðast við sem skyldi. Það sem mestu varðar nú er að Alþingi komist til botns í því að hve miklu leyti það getur komið í veg fyrir að slíkt og þvílíkt éigi sér burðarás hliðstæðri þeirri sem hér er leitast við að reifa. Albert Albert Guðmundsson, núverandi iðnaðarráðherra, hefur óneitan- lega dregist mjög mikið inn í um- ræðuna um hlut Útvegsbankans að þessu máli. Það er vegna þess að samtímis því að hann átti sæti sem formaður bankaráðs Útvegs- bankans - þá var hann einnig stjórnarformaður Hafskips. Það getur ekki farið fram hjá neinum heilvita manni að þessi tvö störf fara ekki á nokkurn hátt saman. Hvílík siðblinda að láta sér detta það í hug. Ég efast um að annað eins dæmi finni stað nokkurs stað- ar, þó leitað væri logandi Ijósi. Á þessum sama tíma gerist það að að ræða spurningu um lagalegt atriði heldur pólitískt og siðferði- legt atriði. Sami maðurinn getur ekki (hver sem hann er) samtímis verið hags- munagæsluaðili fyrirtækis og hagsmunagæsluaðili banka - hvors gegn öðrum. Einn og sami maður- inn. Það fer ekki saman að Albert né hver sem er annar, gæti hags- muna Útvegsbankans gagnvart Hafskip sem formaður bankaráðs um leið og hann gætir hagsmuna Hafskips gagnvart Útvegsbankan- um. Litli maðurinn Það verður og allra hluta vegna að koma fram, og það skiptir meg- inmáli, hver ber skaðann. Það verður einnig að koma fram hver varð þess i raun og veru valdandi að hinn frægi „litli maður“ í þjóð- félaginu á nú yfir höfði sér sérstak- an skatt vegna þess skaða sem hinn margnefndi ríkisbanki hefur orðið fyrir, að því er virðist vegna slælegs eftirlits og slævðrar dómgreind- ar þeirra sem ekki hafa tekið tí- manlega í taumana og áttað sig á stöðu sinni. Kristín S. Kvaran. a „Það sem er hins vegar langt því frá ^ að vera sáraeinfalt, er að hér er ekki um að ræða spurningu um lagalegt atriði, heldur pólitískt og siðferðilegt atriði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.